Fjölþáttahernaður og fjölþáttaógnir

Víða um heim er reynt að hafa áhrif á lýð­ræð­is­legar kosn­ingar með ýmsum hætti, til dæmis með því að brjót­ast inn í kerfi, spilla með veirum, dreifa áróðri og fölsuðum upp­lýs­ingum. Hver er staða þess­ara mála á Íslandi?

Fjöl­þáttaógnir (e. hybrid threats) og fjöl­þátta­hern­aður (e. hybrid warfare) verða sífellt meira áber­andi og eru gjarnan nefnd í sömu andrá og netógnir (e. cyber threats). Fjöl­þátta­hern­aður hefur verið stund­aður frá fyrstu tíð en inter­netið hefur gjör­breytt aðstæðum og gert fleirum mögu­legt að stunda slíkan hernað og valda slíkum ógnum á fjöl­breytt­ari máta, m.a. með dreif­ingu fals­frétta. Nú er kosn­inga­bar­áttan fyrir for­seta­kosn­ingar í Banda­ríkj­unum í algleym­ingi og svo virð­ist að erlend ríki, sér í lagi Rússland, gangi lengra í því að reyna að hafa áhrif á nið­ur­stöður þeirra en nokkru sinni fyrr. Spyrja má í því sam­hengi: Hver er staða þess­ara mála á Íslandi, hefur eitt­hvað sam­bæri­legt verið að ger­ast eða gæti gerst hér á landi og eru stjórn­völd að gera eitt­hvað til að efla við­búnað vegna fjöl­þáttaógna?

Hvað eru fjölþáttaógnir?

Mik­il­vægt er að greina á milli fjöl­þáttaógna og netógna því netið er bara eitt af tækj­unum sem beitt er í nútíma fjöl­þátta­hern­aði; til að brjót­ast inn í hin ýmsu kerfi, spilla með veirum eða dreifa áróðri og fölsuðum upp­lýs­ingum. Með sífellt þró­aðri tækni má ná til þeirra aðila og hópa sem áróð­ur­inn bein­ist að með bein­skeytt­ari aðferðum sem áður voru óhugs­andi. Fjöl­þátta­hern­aður getur síðan auð­vitað einnig beinst að sam­skipta­kerf­unum sjálfum sem og öðrum kerfum sam­fé­lags­ins.

Fjöl­þátta­hern­aður hefur í raun verið til frá upp­hafi vega, t.d. í formi njósna, áróð­urs, blekk­inga og skemmd­ar­verka, ýmist til að grafa undan ríkj­andi stjórn­völdum í landi and­stæð­inga, eða ná und­ir­tökum í átökum og völdum í eigin landi. Þannig má sá fræjum tor­tryggni, magna upp óvissu um hvað sé satt og rétt og raska þannig póli­tískri sam­heldni. Það getur síðan tor­veldað ákvarð­ana­töku sem aftur getur hindrað rétt við­brögð við hættu­á­standi eða árásum. Ógnirnar þurfa ekki endi­lega að vera beinar eða virð­ast hættu­legar og kunna að líta vel út á yfir­borð­inu T.d. eins og efna­hags­legur stuðn­ingur, sem í raun gæti falið í sér þving­anir þar sem eitt­hvað hangir á spýt­unni. Kjarni máls­ins er að fjöl­þáttaógnir útmá línur á́ milli friðar, hættu­á­stands og stríðs sem gerir þær við­sjár­verð­ari og hættu­legri en sýn­ist í fyrstu.

[adspot]Gott dæmi um hefð­bund­inn fjöl­þátta­hernað, úr ekki svo fjar­lægri for­tíð, er þegar bresk og banda­rísk stjórn­völd steyptu hinum lýð­ræð­is­lega kjörna Múhameð Mossadeq af stóli for­sæt­is­ráð­herra Írans árið 1953. Hann hafði þá þjóð­nýtt olíu­lindir sem Bretar höfðu að mestu hirt arð­inn af og stað­fest hefur verið að CIA stjórn­aði aðgerðum sem gengu út á múta her­for­ingjum og fram­leiða og dreifa áróðri, sem gróf undan stjórn­völdum og studdi þar með við valdaránið. Slíkt fram­ferði Banda­ríkja­manna tíðk­að­ist víða um heim fram eftir tutt­ug­ustu öld (og gerir kannski enn), m.a. í Mið- og Suður Amer­íku­ríkjum þar sem Banda­ríkja­menn voru iðnir við að koma vinstrisinn­uðum stjórnum, sem voru óþægur ljár í þúfu, frá völdum.

Stjórnmálin á tímum upplýsingaóreiðunnar

Svo virð­ist sem hið gríð­ar­lega upp­lýs­inga­flæði sem Inter­netið býður upp á hafi gefið því sem kalla mætti stað­leysu­stjórn­mál aukið vægi, þar sem fyrst og fremst er höfðað til til­finn­inga og skautað fram­hjá stað­reyndum og smá­at­riðum. Gott dæmi um þetta er slag­orðið „Make America Great Again“. Þar er vísað til for­tíðar sem böðuð er dýrð­ar­ljóma alls þess góða sem var en ekki minnst á allt það slæma sem sem einnig var til staðar.

Til­finn­ingar eru útgangs­punktur á kostnað álits sér­fræð­inga, sem gjarnan er vísað er á bug með þeim rökum að þeir séu ein­angr­aðir í sínum fræða­heimi. Þetta and­rúms­loft nærir það sem kall­ast stað­fest­ing­ar­skekkja, sem er sú til­hneig­ing að leita ein­ungis skýr­inga sem styðja fyr­ir­fram­gefnar álykt­anir. Þegar fólk hefur með­tekið rangar upp­lýs­ingar verður því eðli­lega erfitt að leið­rétta þær, sér­stak­lega ef þessar röngu upp­lýs­ingar styðja sjón­ar­mið sem þegar hefur verið haldið fram. Þetta er sá jarð­vegur sem upp­lýs­inga­óreiðan þrífst í.

Nútíma fjöl­þáttaógnir eru því langt í frá bundnar við milli­ríkja­á­tök og hefð­bundin stríð því fjöl­þátta­hern­aði má beita árum saman á skil­greindum frið­ar­tímum. Vel skipu­lagðar fjöl­þátta­árásir, sem nýta sér inter­netið til að skapa upp­lýs­inga­óreiðu, setja fram stað­reyndir sem eru svo trú­verð­ugar að nán­ast er von­laust fyrir hinn almenna borg­ara að greina þær og véfengja. Fals­fréttir og falskar upp­lýs­ingar hafa heldur ekki ein­ungis bein áhrif, vegna þess að um leið og þær eru orðnar við­teknar má nota það í póli­tískum til­gangi – t.d. að afneita ýmsum óþægi­legum stað­reyndum á þeim for­sendum að þær séu fals­fréttir, eða „fake news“.

Bandaríkin auðvelt skotmark

Banda­ríkin eru kannski að fá allan yfir­gang­inn á und­an­förnum ára­tugum í bakið því þau hafa setið undir umfangs­miklum fjöl­þátta­árásum und­an­farin ár, sem er hugs­an­lega eina raun­hæfa leiðin til að klekkja á hinu öfl­uga her­veldi. Kenn­ingar um fjöl­þátta­hernað gera einmitt ráð fyrir því að grund­vall­ar­at­riði til að verj­ast slíkum árásum séu seigla og sam­heldni sam­fé­lags­ins fremur en vopna­við­bún­aður. Ríki eins og Rússland og Kína sem eru í stöðugri vald­sam­keppni við Banda­ríkin hagn­ast því aug­ljós­lega á því að skapa óreiðu og ringul­reið í banda­rísku sam­fé­lagi. Ef vel tekst til líta keppi­naut­arnir betur út í augum umheims­ins og hálfur sigur er unn­inn.

Rússar og Kín­verjar og jafn­vel Íranir reka því öfl­ugar áróð­urs­vélar sem dæla út ósönnum fréttum í þeim til­gangi að grafa undan trú­verð­ug­leika banda­rísks stjórn­kerfis og draga fram veik­leika sam­fé­lags­ins. Yfirvöld í Banda­ríkj­unum gáfu nýlega út ákærur á hendur sex rúss­neskum leyni­þjón­ustu­mönnum vegna umfangs­mik­illa og skað­legra netárása. Rússar reyndu með kerf­is­bundnum hætti að hafa áhrif á banda­rísku for­seta­kosn­ing­arnar árið 2016 og ef ætl­unin var að ýta undir kjör Donalds Trumps þá bendir margt til þess að það hafi tek­ist. Allt bendir til þess að þeir hafi haldið upp­teknum hætti og reynt að hafa áhrif á kosn­ing­arnar sem nú standa yfir. 

Nú hafa þeir ein­beitt sér að því að grafa undan Joe Biden með því að dreifa ósann­indum í gegnum sam­fé­lags­miðla og hefur jafn­framt orðið tals­vert ágengt í að valda glund­roða og ágrein­ingi í banda­rísku sam­fé­lagi.

Tilbúnar falsfréttir

Þegar óeirðir vegna morðs­ins á George Floyd stóðu sem hæst, sem end­ur­spegl­aði mik­inn klofn­ing í banda­rísku sam­fé­lagi, birt­ist frá­sögn á net­inu af mót­mæl­endum að brenna bibl­íur. Þetta var gripið feg­ins­hendi á lofti af innsta kjarna fram­boðs Donalds Trumps, enda fylgdi með mynd­band sem studdi frá­sögn­ina og sýndi hversu sið­spilltir og öfga­fullir and­stæð­ing­arnir væru. Hið sanna í mál­inu var hins­vegar að ein­hverjir höfðu notað eina, kannski tvær bibl­íur til að kveikja elda því skömmu áður höfðu trú­ar­sam­tök verið á svæð­inu og dreift bílfarmi af þeim til mót­mæl­enda.

Ástæður fyrir bibl­íu­brenn­unni voru ekki tryllt guð­leysi eða heift í garð trú­aðra heldur voru bibl­í­urnar nær­tækar þegar kveikja átti eld – án þess að hér sé verið að hvetja til ofbeld­is­fullra mót­mæla með íkveikjum. Þessi frá­sögn átti upp­runa sinn hjá rúss­nesku frétta­veit­unni Ruptly sem er fjár­mögnuð af rúss­neskum stjórn­völdum. Mynd­bandið sem fylgdi með var vand­lega klippt saman þannig að skilja mætti að bibl­íu­brennan væri mið­punktur mót­mæl­anna, sem er mjög fjarri sann­leik­anum.

Það vekur síðan athygli að svo virð­ist sem Donald Trump hafi með stefnu sinni og fram­komu gert sitt til auka þann skaða sem beit­ing fjöl­þátta­að­gerða t.d. Rússa hefur valdið. Ætla mætti að hlut­verk þjóð­ar­leið­toga væri einmitt að hvetja til still­ingar, þétta rað­irnar heima fyrir með því að telja kjark í fólk og styðja þær stofn­anir sem berj­ast gegn slíkum árásum. Trump hefur hins vegar lagt sig fram um að draga úr trausti almenn­ings til dóms­mála- og utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins og leyni­þjón­ust­unnar, van­virt for­ystu hers­ins, ógnað prent­frelsi og sett fram efa­semdir um heil­indi dóm­stóla. Nú síð­ast hefur hann vegið að grund­vall­ar­at­riði lýð­ræð­is­ins með því að efast um lög­mæti kom­andi kosn­inga og neita að skuld­binda sig til frið­sam­legra valda­skipta.

Er Ísland stikkfrí?

Íslend­ingar eru vænt­an­lega ekki stikk­frí þegar kemur að fjöl­þáttaógnum þó smæð og eins­leitni sam­fé­lags­ins gæti gert þær auð­veld­ari við­fangs en ella, en að sama skapi við­kvæm­ari. Þjóðar­ör­ygg­is­stefnan til­tekur ekki fjöl­þáttaógnir sér­stak­lega en á vett­vangi Þjóðar­ör­ygg­is­ráðs er þó fylgst með mála­flokknum. Athygli vekur að Ísland á ekki aðild að Evrópsku önd­veg­is­setri gegn fjöl­þáttaógnum (The European Centre of Excellence for Countering Hybrid Threats) eins og öll hin Norð­ur­löndin. Því var komið á fót árið 2016 til að styðja aðild­ar­ríkin í þeirri við­leitni að sporna gegn fjöl­þáttaógnum. Líklega er aðal­á­stæðan fjár­skortur en sam­kvæmt heim­ildum er unnið að því að Ísland ger­ist aðili að setr­inu.

Íslenskum stjórn­völdum er ekki kunn­ugt um að erlend ríki hafi reynt að hafa áhrif á nið­ur­stöður kosn­inga á Íslandi með beinum hætti. Utan­rík­is­ráðu­neytið á þó í reglu­legum sam­skiptum við banda­lags- og nágranna­þjóðir um fjöl­þáttaógnir og upp­lýs­inga­óreiðu. Þar eru metnar helstu leiðir sem erlend ríki kynnu að beita til að hafa áhrif á kosn­ingar á Íslandi. Samt sem áður er eng­inn innan stjórn­kerf­is­ins sem hefur það hlut­verk að greina mis­notk­un­ar­tækni við vís­vit­andi dreif­ingu rangra eða mis­vísandi upp­lýs­inga á sam­fé­lags­miðlum og í fjöl­miðlum. Þó hafa verið lagðar fram þings­á­lykt­un­ar­til­lögur um að koma á fót starfs­hópi til að leggja til leiðir að því hvernig kort­leggja megi dreif­ingu upp­lýs­inga­óreiðu á Íslandi og auka upp­lýs­inga­læsi.

Eftir að COVID-19 far­ald­ur­inn gaus upp var ljóst að dreif­ing rangra og mis­vísandi upp­lýs­inga var alþjóð­legt vanda­mál sem mik­il­vægt var að brugð­ist yrði við hér sem ann­ars staðar. Var því stofn­aður vinnu­hópur til að kort­leggja hugs­an­legar birt­ing­ar­myndir og umfang upp­lýs­inga­óreiðu vegna COVID-19 hér á landi og jafn­framt að gera til­lögur að aðgerðum til þess auð­velda aðgengi að traustum heim­ildum og upp­lýs­ingum. Hópurinn skil­aði nýverið grein­ar­góðri skýrslu um málið þar sem einnig er fjallað um upp­lýs­inga­óreiðu í víðu sam­hengi. Hópurinn hefur m.a. haft sam­starf við Vís­inda­vef Háskóla Íslands um birt­ingu réttra upp­lýs­inga um far­ald­ur­inn og einnig má nálg­ast ýmsar upp­lýs­ingar sem teknar eru saman á vef­svæði hóps­ins.

Aðför að tjáningarfrelsi og ritskoðun?

Það sem flækir málið er að hér er tek­ist á um grund­vall­ar­at­riði eins og tján­ing­ar­frelsi; hver ætlar að meta hvað eru réttar og rangar upp­lýs­ingar? Ætlum við að hafa upp­lýs­inga­lög­reglu? Erum við hugs­an­lega komin hættu­lega nálægt ein­hverjum Orwellískum heimi? Þetta eru rétt­mætar spurn­ingar sem mik­il­vægt er að svara eða a.m.k. hafa til hlið­sjónar þegar fjallað er um þessi mál. Grund­völlur lýð­ræð­is­ins er frjáls skoð­ana­skipti og rétt að staldra við þegar ríkið stofnar nefnd eða starfs­hópa sem mögu­lega eiga að fara að skil­greina hvað má segja og hvað ekki. Bent hefur verið á að ef bull og vit­leysa nái að sann­færa fólk þá sé það frekar til merkis um að eitt­hvað sé að í sam­fé­lag­inu, að lýð­ræðið sjálft standi höllum fæti, sem geri fólki ókleift að gera grein­ar­mun þar á.

Þó ákveðnar meg­in­reglur um tján­ing­ar­frelsi verði alltaf að vera í for­grunni má telja víst að stefna og aðgerðir stjórn­valda feli ekki í sér rit­skoðun. Vanda­málið eða ógnin er ekki mis­mun­andi skoð­anir og sjón­ar­mið, sem ein­hverjum kann að þykja óæski­leg eða hættu­leg og þurfi að kveða niður. Ógnin felst fremur í því þegar rangar upp­lýs­ingar eru settar fram með skipu­legum hætti, jafn­vel á vél­rænan en mjög trú­verð­ugan hátt, til að valda skaða, grafa undan öryggi, lýð­ræði eða tryggja óverð­skulduð völd og sér­hags­muni. Það hlýtur að vera keppi­kefli allra sem vilja tryggja opið og rétt­látt lýð­ræð­is­sam­fé­lag að koma í veg fyrir, eða í það minnsta upp­lýsa um slíkt með ein­hverjum skyn­sam­legum ráðum.

[adspot]Á tímum kóf­s­ins er ekki tek­ist á um mikla hags­muni sem varða utan­rík­is­mál, erlend ríki eða ger­endur á Íslandi. Þó eru ávallt und­ir­liggj­andi deilu­efni sem skjóta reglu­lega upp koll­inum og kynnu að gefa til­efni til upp­lýs­inga­föls­unar. Annað hvort vinna að eða hindra fram­gang til­tek­ins mál­staðar, bæði gagn­vart stjórn­völdum og ekki síður almenn­ings­á­liti. Er nær­tækt að nefna deilur um nýja stjórn­ar­skrá, þátt­töku í alþjóða­sam­starfi, eins og NATO, Schengen, EES eða ESB. Er skemmst að minn­ast þess hvernig áróð­urs­meist­urum tókst, með því að beina fölskum upp­lýs­ingum að til­teknum hópum, að hafa áhrif á nið­ur­stöðu lýð­ræð­is­legra kosn­inga um Brexit árið 2016. Að sama skapi gætu átök um fisk­veiði­kvóta, orku­stefnu og umhverf­is­mál, þar sem tek­ist er á um ríka hags­muni, auð­veld­lega orðið vett­vangur fyrir upp­lýs­inga­óreiðu – og er lík­lega þegar reyndin ef grannt er skoðað.

Eru íslensk stjórnvöld að taka við sér?

Ljóst er að geta til grein­ingar og aðgerða til að bregð­ast við á þessu sviði er nokkuð sem stjórn­völd verða að huga að með mark­viss­ari hætti en gert hefur verið hingað til. Viss skref hafa þó verið tekin, m.a. með stofnun Þjóðar­ör­ygg­is­ráðs og starfs­hópa á vegum þess. Vís­bend­ingar eru því um að stjórn­völd séu sér með­vituð um þetta en mik­il­vægt er að nálg­ast þessi mál sem m.a. fjalla um grund­vall­ar­þátt í lýð­ræð­inu, tján­ing­ar­frelsið, með opinni umræðu svo hún lendi ekki í skot­gröfum lituð tor­tryggni eða ótta.

Guð­laugur Þór Þórð­ar­son, utan­ríkis- og þró­un­ar­sam­vinnu­ráð­herra, átti í vik­unni fund með öðrum varn­ar­mála­ráð­herrum Norð­ur­landa ásamt for­sætis­nefnd Norð­ur­landa­ráðs. Þar var skýrsla Björns Bjarna­sonar m.a. til umræðu og voru net­ör­ygg­is­mál og fjöl­þáttaógnir ofar­lega á baugi: „Það kemur æ betur í ljós hversu mik­il­vægt inn­legg í örygg­is­mála­sam­starf Norð­ur­landa skýrsla Björns Bjarna­sonar er. Hún dregur fram þær miklu örygg­is­á­skor­anir sem blasa við okkur vegna fjöl­þáttaógna, og þar með talið netógna, fals­frétta og mis­vísandi upp­lýs­inga, sem hafa auk­ist mikið und­an­farin ár sam­hliða örri tækni­þróun, hrað­ari teng­ingum og sjálf­virkni­væð­ingu. Þetta kallar á bætta ástands­vit­und, aukið við­náms­þol og við­bragðs­getu.“

Af þessum orðum ráð­herr­ans má ráða að mögu­lega sé tíð­inda að vænta hvað varðar við­búnað Íslend­inga þegar kemur að fjöl­þáttaógnum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

upplýsingamál

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár