Telur rétt að skoða hvort stofna eigi vettvang til að vakta íslenskar kosningar

Utan­ríkis- og þró­un­ar­sam­vinnu­ráð­herra er ekki kunn­ugt um að erlend ríki hafi reynt að hafa áhrif á íslenskar kosn­ingar með beinum hætti, en telur að rétt sé að skoða hvort stofna eigi vett­vang til að vakta kosn­ingar hér á landi.

Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra.
Guð­laugur Þór Þórð­ar­son utan­rík­is­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

Guð­laugur Þór Þórð­ar­son utan­ríkis- og þró­un­ar­sam­vinnu­ráð­herra telur ástæðu til að skoða hvort ekki væri rétt að koma á fót vett­vangi hér­lendis til þess að „vakta kosn­ingar“ með til­liti til þess hvort ein­hverjir utan­að­kom­andi aðilar séu að reyna að hafa áhrif á lýð­ræð­is­lega ferla hér á landi.

Þetta kemur fram í svari ráð­herra við fyr­ir­spurn Helga Hrafns Gunn­ars­sonar þing­manns sem birt­ist á vef Alþingis í dag.

Í svari ráð­herra segir að til dæmis séu Danir með sér­stakan vinnu­hóp undir for­ystu dóms­mála­ráðu­neyt­is­ins þar í landi til þess að vakta sínar kosn­ingar, en að umfang og verk­efni slíks vett­vangs hér á landi yrði að lík­indum frá­brugðin sams konar fyr­ir­bærum í nágranna­lönd­unum vegna stærðar og upp­bygg­ingar stjórn­sýslu ríkj­anna sem um ræðir og þess hlut­verks sem örygg­is­stofn­anir þess­ara landa þjóna í þessu sam­hengi.

Ekki kunnugt um að erlend ríki hafi reynt að hafa áhrif hérlendis

Fyr­ir­spurn Helga Hrafns laut að því hvort ráð­herra væri kunn­ugt um að erlend ríki hefðu reynt að hafa áhrif á kosn­ingar á Íslandi með ein­hverjum hætti og hvort ráð­herra hefði í huga að kanna hvort svo hefði verið.

[adspot]

Í svari Guðlaugs Þór segir að honum sé „ekki kunn­ugt um að erlend ríki hafi reynt að hafa áhrif á nið­ur­stöður kosn­inga á Ísland með beinum hætti“ en að utan­rík­is­ráðu­neytið sé þó í reglu­legum sam­skiptum við banda­lags- og nágranna­þjóðir um fjöl­þátta ógnir og upp­lýs­inga­óreiðu, sem metnar eru sem „helstu leiðir sem erlend ríki kynnu að beita til að hafa áhrif á kosn­ingar á Íslandi.“

Í svari Guðlaugs Þór segir einnig að full­trúar utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins hafi farið og kynnt sér störf StratCom Centre of Excellence, sem er vett­vangur nokk­urra evr­ópskra NATO-ríkja á sviði boð­skipta, og Ísland hafi einnig tekið þátt í að manna stöður á vett­vangi Atl­ants­hafs­banda­lags­ins sem tengj­ast fjöl­þátta ógnum og upp­lýs­inga­óreiðu, meðal ann­ars til þess að stuðla að því að efla reynslu og þekk­ingu á mála­flokknum hér­lendis.

„Á síð­ustu árum hafa banda­menn Íslands á Norð­ur­löndum, í Evrópu og NATO farið að fylgj­ast betur með hvernig nýrri tækni er beitt til að hafa áhrif á lýð­ræð­is­lega ákvörð­un­ar­töku­ferla innan land­anna. Með nýrri grein­ing­ar­tækni er mögu­legt að aðlaga upp­lýs­inga­um­hverfi að hverjum og einum og nýta þar með per­sónu­grein­an­leg gögn til að vinna að fram­gangi ákveð­inna póli­tískra mark­miða. Þær ógnir sem stafa af nýrri tækni og bein­ast gegn grunn­gildum okkar og lýð­ræð­is­legu ákvörð­un­ar­töku­ferli krefj­ast aðkomu og sam­hæf­ingar ólíkra stjórn­valda,“ segir í svari Guðlaugs Þórs.

Þar segir einnig að morg­un­verð­ar­fundir um fjöl­þættar ógnir, sem þjóðar­ör­ygg­is­ráð stóð fyrir síð­asta haust auk ráð­stefnu um efnið í lok febr­úar hafi verið jákvætt skref í þá átt og að sú vinna haldi áfram.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár