Hugfangin af jöklum og kvikunni sem kraumar undir

Hún gekk í geim­bún­ingi á Vatna­jökli og er með gas­grímu og örygg­is­hjálm til taks í vinn­unni. Hún heldur sig þó heima þessa dag­ana enda „verður maður að hugsa um land­lækni,“ segir eld­fjalla­fræð­ing­ur­inn Helga Kristín Torfa­dóttir, dóttir Ölmu Möller.

Þegar jörð skelfur á Reykja­nesi og óvissu­stigi almanna­varna er lýst yfir hækkar spennustigið á annarri hæð­inni í vest­ur­enda nátt­úru­fræða­húss­ins Öskju. Óvenju­legt land­ris og kviku­söfnun á þessum yngsta hluta lands­ins hefur haldið öllum við efnið frá því í byrjun jan­úar og einn þeirra vís­inda­manna sem þar starfar og fylgist með fram­vind­unni er Helga Kristín Torfa­dóttir, dokt­or­snemi í eld­fjalla­fræði.

Þessa dag­ana er hún reyndar að mestu heima­vinn­andi, eins og svo margir aðrir. Hún býr í for­eldra­húsum og þar er jarð­fræðin oft til umræðu. En það er neyð­ar­stig á öðrum víg­stöðvum hjá fjöl­skyld­unni því móðir Helgu er Alma Möller land­læknir. Fleira en eld­gosavá er því rædd við kvöld­verð­ar­borðið á því heim­ili. „Ég held mig mest heima þessa dag­ana,“ segir Helga, „svo ég sé nú ekki að bera smit í mömmu. Maður verður að hugsa um land­lækni.“

Áður en sam­komu­bann var sett á bauð Helga blaða­manni Kjarnans í heim­sókn í vinn­una á Jarð­vís­inda­stofnun Íslands. Dagana á undan, líkt og síð­ustu daga, hafði enn ein jarð­skjálfta­hrinan gengið yfir á Reykja­nesi.

Hún var á leið á skrif­stofu sína sem er inn af rann­sókn­ar­stofu Jarð­vís­inda­stofn­unar þegar Ármann Hösk­ulds­son, eld­fjalla­fræð­ingur og annar leið­bein­andi hennar í dokt­ors­verk­efn­inu, stopp­aði hana á gang­inum og spurði um „gos­n­æmi“ og fleira sem hljómar eins og lat­ína í eyrum þeirra sem ekki eru inn­vígðir í vís­inda­heim­inn. Í hóp­inn bætt­ist svo pró­fess­or­inn Þor­valdur Þórð­ar­son, sem einnig er leið­bein­andi hennar. Þarna voru þau að ræða um tölvu­líkön sem dag­lega eru keyrð til að spá fyrir um eld­gos og hvert hraun myndi renna ef til þess kæmi þar sem skjálfta­virknin er mest hverju sinni.

Það er ekki endi­lega von á gosi á næst­unni, jafn­vel ekki einu sinni á næstu árum eða ára­tugum, en Helga og sam­starfs­menn hennar vilja vera við öllu búin. Á rann­sókn­ar­stof­unni er því búið að raða upp marg­vís­legum bún­aði sem hægt er að grípa til með stuttum fyr­ir­vara. Þar er til dæmis að finna gas­grímur, örygg­is­hjálma með höf­uð­ljósum, hamra, gasmæla, nákvæm GPS-tæki og sýna­poka.

Helga Kristín hefur mikinn áhuga á ljósmyndun og birtir margar myndanna á Instagram.
Helga Kristín hefur mik­inn áhuga á ljós­myndun og birtir margar mynd­anna á Instagram.

Þetta er þó ekki sá bún­aður sem Helga er hvað þekkt­ust fyrir. Hún komst í fréttir á síð­asta ári eftir að hafa verið valin til að prófa nýjasta geim­bún­ing NASA við krefj­andi aðstæður á Vatna­jökli. Með þátt­töku sinni skrif­aði hún nafn sitt í sögu­bæk­urnar því hún varð fyrst í heimi til að stunda ísklifur í geim­fara­bún­ingi.

Verk­efnið var ekki aðeins mynd­rænt og spenn­andi heldur einnig mik­il­vægur þáttur í und­ir­bún­ingi fyrir hvorki meira né minna en ferða­lög til Mars í fram­tíð­inni. Þangað er Helga þó ekki að fara – þótt geim­ferðir heilli hana og hún myndi vissu­lega fagna tæki­færi til slíkra ferða­laga. En í augna­blik­inu heldur hún sig á jörð­inni, jörð­inni sem hana þyrstir í að læra meira um og rann­saka.

Helga Kristín komst að ýmsu sem betur mætti fara í geimbúningnum við prófunina á Vatnajökli. Meðal annars að stígvélin henta ekki vel til klifurs.
Helga Kristín komst að ýmsu sem betur mætti fara í geim­bún­ingnum við prófun­ina á Vatna­jökli. Meðal ann­ars að stíg­vélin henta ekki vel til klif­urs.

Helga Kristín er fædd í Reykja­vík árið 1992. For­eldrar hennar eru lækna­hjónin Alma Möller og Torfi Jónsson. Hún á einn bróður, Jónas Má, og hund­inn Móberg sem hún segir vissu­lega hluta af fjöl­skyld­unni.

Hún á ættir að rekja til Siglu­fjarðar í móð­ur­ætt og svo austur á land í föð­ur­ætt­ina. Og þó að fjöllin og jökl­arnir heilli seg­ist hún mikið borg­ar­barn.

Ung að aldri flutti hún með for­eldrum sínum til Sví­þjóðar þar sem þeir námu lækn­is­fræð­ina. Þar dvaldi fjöl­skyldan í tæp­lega ell­efu ár. „Ég var sem sagt mest alla grunn­skóla­göng­una í Svíþjóð og smit­að­ist mjög af sænsk­unni,“ segir Helga. „Ég mun örugg­lega aldrei tala íslensku full­kom­lega rétt!“

Hún seg­ist hafa verið for­vit­inn krakki, ekki mjög ræð­inn en þeim mun meira að hugsa. „Ég man eig­in­lega allt sem gerð­ist frá því að ég var eins og hálfs árs. Ég get útskýrt fyrir for­eldrum mínum af hverju ég gerði eitt­hvað eða sagði eitt­hvað þegar ég var mjög ung.“

Í Lundi í Svíþjóð, þar sem Helga ólst upp, var nóg að gera fyrir ævin­týra­þyrsta krakka. Á sumrin fór hún út í skóg og kom ekki heim fyrr en síð­degis, búin að eign­ast nýja vini og upp­götva margt nýtt. „Ég var mjög sjálf­stæð og lík­lega frekar frökk,“ segir hún um Sví­þjóð­ar­árin. „Það var mjög gott að vera barn í Svíþjóð. Þar var nátt­úran alltaf nálæg, skóg­ar­lundir um allt og gaman að fara í laut­ar­ferðir um helgar. Svíar eru dug­legir að stunda úti­vist og hafa það huggu­legt úti í nátt­úr­unni, þeir kunna það svo sann­ar­lega.“

Helga Kristín ásamt móður sinni, Ölmu Möller, á Svíþjóðarárunum.
Helga Kristín ásamt móður sinni, Ölmu Möller, á Sví­þjóð­ar­ár­unum.

Þegar fjöl­skyldan flutti aftur til Íslands árið 2003 hóf Helga nám í 6. bekk í Linda­skóla í Kópavogi. Íslenskan var þá ekki hennar sterkasta hlið. „Ég vissi ekki hvað fall­beyg­ing var. Ég held að það hafi nán­ast liðið yfir kennar­ann þegar hann komst að því.“

Námið hafi því reynst nokkuð strembið og að auki var Helga til að byrja með ekki með á nót­unum um allt sem var í gangi hjá börnum og ung­lingum í íslensku sam­fé­lagi. En það vildi henni til happs að hún eign­að­ist fljótt góða vini sem halda hóp­inn enn í dag.

Ekki undir pressu að verða læknir

Þó að það hafi verið nokkuð á bratt­ann að sækja í íslensku­nám­inu setti Helga stefn­una alltaf á Mennta­skól­ann í Reykja­vík og metn­að­ur­inn kom henni þangað að loknum grunn­skóla. „Ég vissi að MR væri góður und­ir­bún­ingur fyrir háskóla­nám. Ég vissi líka að mig lang­aði í vís­inda­tengt nám og mér fannst lækn­is­fræðin spenn­andi. En svo byrj­uðu jarð­fræði­tím­arnir í MR og þá fatt­aði ég að þar voru mörg áhuga­mál mín saman komin. Mamma og pabbi voru ekki að pressa á mig að verða læknir, þau hvöttu mig til að gera það sem ég hefði áhuga á. Það vill svo til að þau hafa sjálf mik­inn áhuga á jarð­fræði svo ég hef alltaf haft stuðn­ing þeirra og getað rætt við þau um það sem ég er að fást við.“

Eftir að mennta­skól­anum lauk var Helga orðin ákveðin í því að fara í jarð­vís­inda­nám. Með þá vissu í fartesk­inu byrj­aði hún á því að fara í leið­sögu­nám. Síðan hefur hún unnið tölu­vert sem jökla- og fjalla­leið­sögu­maður. Þá tók hún einnig meira­próf.

En það var áhugi á nátt­úr­unni sem ýtti Helgu út í jarð­fræð­ina. „Við fjöl­skyldan höfum ferð­ast mikið, bæði inn­an­lands og til fram­andi staða í útlöndum.“

Helga hefur því aldrei komið til Alicante eins og margir Íslend­ingar en hún hefur hins vegar komið til Galapa­gos-eyja, eld­fjalla­eyj­unnar Stromboli, Hawaii og Jan Mayen, svo dæmi séu tekin.

Áður en Helga hóf jarð­vís­inda­námið var hún farin að lesa í lands­lag hvert sem hún kom og hafði skiln­ing á þeim ferlum sem þar bjuggu að baki. Hvernig jöklar móta landið, hopa og skríða fram til skiptis. Hvernig eldsum­brot setja sterkan svip á allt okkar umhverfi. Og sér­stak­lega fannst henni sam­spil jökla og eld­fjalla spenn­andi.

Hóf jarðfræðinám í Holuhraunsgosinu

Jarð­fræði­námið lá vel fyrir Helgu og hún hóf það á áhuga­verðum tíma­punkti. Í fyrstu vik­unni hófst eld­gosið í Holu­hrauni. „En síðan hefur ekk­ert eld­fjall gosið og kannski kom­inn tími á það,“ segir hún og brosir. „Vís­inda­lega séð er ég spennt fyrir næsta gosi en auð­vitað vill maður alls ekki að það hafi slæm áhrif á sam­fé­lagið. Holu­hraunið er gott dæmi um gos sem var spenn­andi vís­inda­lega en stað­sett vel inn í landi og skap­aði litla hættu. Ég flaug yfir það nokkrum sinnum og fann hit­ann í gegnum flug­vél­ina. Svo kom ég þangað ári eftir að því lauk og bað­aði mig upp úr heitum læk sem rann tíma­bundið undan hraun­inu.“

Helga Kristín er menntaður leiðsögumaður og fer með fólk í jökla- og fjallaferðir.
Helga Kristín er mennt­aður leið­sögu­maður og fer með fólk í jökla- og fjalla­ferðir.

Allt sem var jökla- og eld­fjalla­tengt í nám­inu höfð­aði strax vel til Helgu. Þegar hún var að ljúka við BSc-námið var hún búin að ákveða að fara í meist­ara­nám með áherslu á eld­fjalla- og berg­fræði. „Meg­in­hluti meg­in­eld­stöðva lands­ins er undir jökli svo þetta sam­ein­aði allt það sem ég hafði mestan áhuga á.“

Á skrif­stofu Helgu í nátt­úru­fræði­hús­inu Öskju hanga jarð­fræði­kort af Öræfajökli, hæsta fjalli Íslands. Sá jök­ull stendur hjarta Helgu nærri því hún ákvað að gera hann að við­fangs­efni sínu í meist­ara­nám­inu og síðar í dokt­ors­nám­inu þar sem hún rann­sakar einnig eld­fjallið Beerenberg á Jan Mayen. Á skrif­stof­unni má svo einnig sjá sýn­is­horn af ýmsum berg­teg­undum; hrafn­tinnu, flikru­bergi og lít­inn hraun­mola úr Holu­hrauni.

Magnað að koma á jökul í fyrsta sinn

En hvað er það við jökla sem heillar?

„Jöklar eru þannig séð berg,“ svarar hún, „þeir eru úr ískristöllum. Mér finnst áhuga­vert hvað þeir breyt­ast mikið, það er eins og þeir séu lif­andi. Það er líka gaman að klifra í þeim. Þeir eru áber­andi í lands­lag­inu og kom­ast ekki upp með mikið án þess að maður sjái hvað þeir eru að gera. Þeir móta landið af miklum krafti, mynda dali og slípa fjalls­hlíðar. Þetta allt finnst mér mjög áhuga­vert.“

Þó að Helga hafi víða ferð­ast með fjöl­skyld­unni hafði hún ekki komið á jökul fyrr en hún hóf jarð­fræði­námið. „Það er magnað og svo­lítið dramat­ískt að koma á jökul í fyrsta sinn.“

En skoðum aðeins fræðin, hvað Helga hefur rann­sakað og hvað hún er að rann­saka núna.

Í meist­ara­nám­inu skoð­aði hún hvernig kviku­hólf eru byggð upp undir Öræfajökli og hvort þau væru mörg. Hún skoð­aði m.a. nýjasta gosið sem varð árið 1727 og er því fyrst til að rann­saka það gos. Einnig skoð­aði hún önnur hraun­lög í Öræfajökli í þeim til­gangi að bera saman upp­bygg­ingu kviku­kerf­is­ins milli gosa. Að auki mun hún svo ald­urs­á­kvarða eldri gosin. „Um leið og það er kom­inn aldur inn í jöfn­una getur maður séð hvernig kviku­kerfi Öræfa­jök­uls hefur þró­ast.“

Í dokt­ors­nám­inu fer hún út í meiri smá­at­riði og áfram er Öræfa­jök­ull við­fangið. Í upp­hafi þess fór hún með sýni til Frank­furt þar sem hún hafði aðgang að sér­hæfðu tæki sem notað er til að skjóta ley­sigeisla á krist­all­ana í hraun­inu til að „sjá hvað þeir eru að segja,“ útskýrir Helga. Í þeirri vinnu greindi hún fimm gos sem orðið hafa í Öræfajökli og bjó í kjöl­farið til hálf­gert líkan af mögu­legum kviku­hólfum.

En af hverju er svona mik­il­vægt að vita hvar kviku­hólfin eru?

Því þá er hægt að reyna að finna út hvar næsta gos gæti mögu­lega orðið í eld­fjall­inu og og þá er einnig hægt að bera sama dýpi skjálfta ef gos­órói fer af stað. Helga hefur þegar kom­ist að því að gosin fimm voru mis­mun­andi en að mögu­lega hafi tvö þeirra komið upp úr sama kviku­pok­anum. Einnig er til­gangur verk­efn­is­ins að „skilja eld­fjallið,“ segir Helga, „af hverju kvika stoppi á ákveðnu dýpi, hvort það séu ein­hverjir þrösk­uldar í skorp­unni. Gamall hafs­botn jafn­vel.“

Helga Kristín skoðar efnasamsetningu kristallanna úr Öræfajökli og Beerenberg sem gefa upp miklar upplýsingar um hegðun eldfjallanna.
Helga Kristín skoðar efna­sam­setn­ingu krist­all­anna úr Öræfajökli og Beerenberg sem gefa upp miklar upp­lýs­ingar um hegðun eld­fjall­anna.

Í dokt­ors­nám­inu mun hún einnig kafa djúpt í þessi fræði þar sem verk­efnið snýst að hluta til um lofts­lags­mál. „Hugs­an­lega hefur þynn­ing jök­uls­ins á Beerenberg, sem og önnur eld­fjöll undir jökli, komið eld­gosum af stað,“ segir hún. „Við það að þessu jök­ul­fargi sé lyft af jarð­skorp­unni og þar af leið­andi eld­fjöll­unum, er mögu­legt að þrýst­ingi sé létt af kviku­pok­unum sem komi gosum af stað. Það verður áhuga­vert að sjá hvort rann­sóknir mínar styðji þessa kenn­ingu. Þessar upp­lýs­ingar gætu verið mik­il­vægar á kom­andi árum í kjöl­far ham­fara­hlýn­unar og áhrifa hennar á jökla enda eru stærstu eld­stöðvar Íslands undir jökli.“

Goss að vænta í Öræfajökli

Öræfa­jök­ull byrj­aði að rumska fyrir þremur árum svipað og Eyja­fjalla­jök­ull gerði árið 1998. Sá síð­ar­nefndi gaus svo árið 2010. „Það gæti orðið svipað með Öræfa­jök­ull, að hann láti aðeins finna fyrir sér, það tekur hann tíma að hita sig upp,“ segir hún og horfir á jarð­fræði­kortið á veggnum á skrif­stof­unni og bætir við: „Þetta er mjög lif­andi land sem við búum í.“

Aðeins eru til heim­ildir um tvö síð­ustu gosin í Öræfajökli. Hann gaus síð­ast fyrir um þrjú hund­ruð árum og þar á undan árið 1362. Allt bendir til þess að hann hafi svo einnig gosið fyrir um 1.500 árum en aldur enn eldri gosa verður von­andi kunnur þegar Helga hefur lokið sínum rann­sóknum.

Ekki saklaust eldfjall

Öræfa­jök­ull er ekki sak­laust lítið eld­fjall. Hann hefur sýnt hvers hann er megn­ugur og gæti gert það aftur. Gosinu 1727 fylgdi jök­ul­hlaup og þrír menn týndu lífi.

Gosinu 1362 fylgdu enn meiri hörm­ungar. Það var stærsta sprengigos sem orðið hafði í Evrópu frá því Vesúvíus gaus árið 79 fyrir Krist. Í kjöl­far þess var nafn­inu á hér­að­inu undir jökli breytt úr Litla-hér­aði í Öræfi enda lagði gosið byggð­ina í eyði. „Í dag lík­ist Öræfasveitin meira Litla-hér­aði,“ segir Helga og rifjar upp að nafn jök­uls­ins hafi líka verið annað fyrir gos. Áður hét hann Knappa­fells­jök­ull, „sem er krútt­legt nafn og sak­leys­is­legt. En þetta gos var skelfi­legt og við verðum að vera við­búin sam­bæri­legu gosi ein­hvern tím­ann aftur.“

Öskulög úr Öræfajökli. Helga Kristín hefur greint fimm gos úr eldstöðinni í hraunlögunum. Sum þeirra hafa verið hamfarakennd.
Öskulög úr Öræfajökli. Helga Kristín hefur greint fimm gos úr eld­stöð­inni í hraun­lög­unum. Sum þeirra hafa verið ham­fara­kennd.

Helga, sem er vön fjall­göngum og jökla­ferðum, segir sýna­töku­ferð­irnar á Öræfa­jökul og eld­fjöllin á Jan Mayen, allt annað en auð­veldar. „Ég þarf að príla utan í klettum með bak­poka. Og það er ekki þannig að bak­pok­inn létt­ist eftir því sem líður á göng­una og ég borða meira af nest­inu. Hann þyng­ist bara af grjóti. Í lok dags er ég kannski með þrjá­tíu kíló á bak­inu.“

Eldfjöll eru að sögn Helgu jafn ólík og þau eru mörg og því er ekki hægt að yfir­fara rann­sókn­ar­nið­ur­stöður á einu þeirra yfir á önnur. „Það þarf að koma fram við hvert eld­fjall eins og ein­stak­ling.“

Þegar hún talar um eld­fjöllin og jöklana er engu lík­ara en að hún sé að lýsa mann­eskjum. Jökl­arnir „hegða sér“ með ákveðnum hætti og eld­fjöllin „fá í mag­ann, hrækja og gubba“. Hún segir rann­sókn­irnar krefj­ast nákvæmni en einnig hug­mynda­auðgi. Pælarinn Helga, sem man hvernig var að vera smá­barn, er þar á heima­velli.

Hún hefur líka gaman að því að deila því sem hún er að gera með öðrum og stofn­aði fyrir nokkrum mán­uðum Instagram-reikn­ing og er nú með tæp­lega 6.000 fylgj­endur. Hún hefur mik­inn áhuga á ljós­myndun og deilir þeim með fylgj­endum sínum í bland við fróð­leik um jarð­fræði. Henni finnst skemmti­legt að útskýra og kenna og vandar sig við að miðla flóknum upp­lýs­ingum með þeim hætti að sem flestir skilji. Við færsl­urnar fær hún svo ýmsar fyr­ir­spurnir víða að úr heim­inum sem hún reynir að svara sam­visku­sam­lega.

Síðustu mán­uði hefur hún verið í ess­inu sínu á Instagram enda margir for­vitnir um skjálfta­virkn­ina á Reykja­nesi.

Og aftur að þeim atburðum.

Frá því í jan­úar hafa jarð­skjálfta­hrin­urnar á Reykja­nes­inu komið í kippum. Sama má segja um land­risið sem er nú orðið 7-8 sentí­metrar. Daglega þurfa Helga og félagar því enn að upp­færa hraun­flæði­líkanið. „Virknin hefur nú færst vestar þannig að lík­urnar aukast á því að mögu­lega verði gosið í sjó þegar að kvikan kemst að lokum upp á yfir­borðið,“ segir hún þegar blaða­maður slær aftur á þráð­inn til hennar í gær, nokkrum vikum eftir heim­sókn­ina í Öskju.

Hún segir góðu frétt­irnar þær að gosið yrði lítið, það yrði til dæmis að öllum lík­indum minna en Holu­hrauns­gosið. „En miðað við sög­una þá er ljóst að þarna mun gjósa aftur. En hvenær er svo allt annað mál. Kannski ger­ist það ekki einu sinni á minni ævi. Þarna er gliðnun og alls konar veik­leikar í jarð­skorp­unni sem auð­velda kviku að koma upp á yfir­borðið. Við höfum ekki miklar upp­lýs­ingar um hvernig síð­ustu gos á þessu svæði voru. Við vitum hvenær þau voru, það síð­asta á þrett­ándu öld.

En við vitum líka að kvika er mjög löt. Hún hefur engan áhuga á að koma upp á yfir­borðið ef svo má segja. Þess vegna velur hún alltaf auð­veld­ustu leið­ina. Þess vegna rýnum við í sprungur og lands­lag til að spá fyrir um hvert hraun myndi renna. Og það sem við getum sagt er að annað hvort verða ein­hverjir atburðir þarna núna eða þá að þessar hrær­ingar eru upp­haf að ein­hverju tíma­bili. Vegna þeirrar óvissu fylgj­umst við náið með alla daga og veitum við­bragðs­að­ilum og sveit­ar­stjórnum reglu­lega upp­lýs­ingar um stöð­una.“

Á létt­ari nótum segir Helga að fyrst gos sé yfir­vof­andi á annað borð væri kannski heppi­legt að fá það núna í miðjum heims­far­aldri þegar umferð um Kefla­vík­ur­flug­völl er sama og engin.

Helga Kristín við störf á Jan Mayen þar sem hún rannsakar eldfjall sem hún segir svipa til Snæfellsjökuls að ýmsu leyti.
Helga Kristín við störf á Jan Mayen þar sem hún rann­sakar eld­fjall sem hún segir svipa til Snæ­fells­jök­uls að ýmsu leyti.

Helga býr vel að því núna, þegar hún þarf að vinna heima, að hafa nýverið lokið mik­illi sýna­vinnu og getur því ein­beitt sér að tölv­unni. Það fer þó að koma að því að hún sjái tækin á rann­sókn­ar­stof­unni í Öskju í hill­ingum. Hún von­ast til að allt verði um garð gengið í sumar þegar komið verður að slíku tíma­bili í dokt­ors­verk­efn­inu.

Annað sem teng­ist vinn­unni hefur einnig breyst. Til stóð að fara í rann­sókn­ar­leið­angur til Tenerife og La Reunion, eyju fyrir utan Madaga­skar í Afríku. Af þessum ferðum verður ekki í bráð.

Rútínan raskast

Svo við­ur­kennir Helga fús­lega að rútínan hafi aðeins farið úr skorðum eftir að vinnan færð­ist nær alfarið heim. Vinnu­tím­inn hafi orðið óreglu­legri og stundum sé erfitt að koma sér að ein­beita sér og koma sér að verki. Eflaust tengja margir við þetta.

Helga er á undan áætlun með dokt­ors­verk­efnið og stefnir að því að ljúka því á þremur árum. Nema að eitt­hvað óvænt komi upp á. Sem hefur kannski gerst einmitt núna.

Úr rómantískri gamanmynd í hamfaramynd

Hún stendur þó ekki ein í ströngu jarð­vís­inda­nám­inu því kær­asti hennar, Daníel Þór­halls­son, sem hún kynnt­ist í jarð­fræð­inni í háskól­anum, flutti til Hawaii síð­asta sumar til dokt­ors­náms. Helga deilir fal­legri minn­ingu um það þegar hann flutti út: „Þetta var svo­lítið bíó­mynda­mó­ment,“ segir hún og hlær. „Ég var á Jan Mayen við rann­sóknir og átti að vera komin heim tím­an­lega til að kveðja hann. En ég tafð­ist þar út af þoku. Þegar ég loks komst heim þá var hann akkúrat kom­inn út á flug­völl á leið til Hawaii. Svo við kvödd­umst á flug­vell­inum eins og í róm­an­tískri gam­an­mynd.“

Daníel ákvað að koma heim til Íslands þegar ljóst var að það stefndi í ferða­bann í Banda­ríkj­unum. Hann rétt náði að kom­ast heim í gegnum Kanada áður en af því varð. „Hann var einmitt að klára sótt­kví núna áðan,“ segir Helga sem hafði þar til þá ekki getað fagnað heim­komu hans með faðm­lagi. „Hann hefur orðið að fylgja fyr­ir­mælum tengda­móður sinnar og við því þurft að halda fjar­lægð okkar á milli.“

Jöklarnir einstöku

Daníel deilir þó áfram athygli Helgu með jöklunum og eld­fjöll­unum. Þessum fyr­ir­bærum sem hún getur engan veg­inn ímyndað sér Ísland án. „Jökl­arnir eru svo ein­stakir. Og þeir eru svo mik­il­vægir. Þeir eru mik­il­vægir fyrir lofts­lagið okkar og núna eru breyt­ingar á lofts­lagi að hafa vond áhrif á þá. Það erum svo við menn­irnir sem berum ábyrgð á þeim breyt­ingum. Núna verðum við að hjálp­ast að við að snúa þeirri þróun við.“

Tæki­færið til þess er kannski einmitt núna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

jarðskjálfti

Mest lesið undanfarið ár