Guðlaugur Þór mótmælti tilskipunum Trump formlega

Guð­laugur Þór Þórð­ar­son utan­rík­is­ráð­herra hefur mót­mælt til­skipun Donald Trump Banda­ríkja­for­seta, um bann við komu flótta­fólks og borg­ara frá sjö ríkjum til Banda­ríkj­anna, með form­legum hætti. Það gerði Guð­laugur Þór á fundi með Benjamin Ziff, aðstoð­ar­ráð­herra í utan­rík­is­ráðu­neyti Banda­ríkj­anna, í morgun. Ziff er staddur á Íslandi.

Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá utan­rík­is­ráðu­neyt­inu. Þar segir að Guð­laugur Þór hafi meðal ann­ars gert grein fyrir þeim afleið­ingum sem bannið hefði hér­lendis á íslenska rík­is­borg­ara með tvö­falt rík­is­fang, sem eiga upp­runa sinn að rekja til þeirra ríkja sem bannið nær til.

„Banda­ríkin hafa ætíð, og framar flestum öðrum, tekið opnum örmum á móti inn­flytj­endum sem hafa mótað sam­fé­lags­gerð­ina þar í landi með mjög jákvæðum og afger­andi hætti. Til­skipun Banda­ríkja­for­seta er því mjög fjarri því sem við höfum átt að venj­ast frá Banda­ríkj­unum, og þeim gildum sem við eigum sam­eig­in­leg. Í því fel­ast mikil von­brigði og því var mik­il­vægt að koma skila­boðum á fram­færi með skýrum hætti og milli­liða­laust. Sá er vinur er til vamms segir," er haft eftir utan­rík­is­ráð­herra í til­kynn­ing­unni.

Guð­laugur Þór mót­mælti einnig til­skipun Trump um að ekki megi veita fé til sam­taka eða stofn­ana sem veita upp­lýs­ingar um fóst­ur­eyð­ingar eða veita aðgang að öruggum fóst­ur­eyð­ingum erlendis. „Aðgengi að öruggum fóst­ur­eyð­ingum er mik­il­vægt mann­rétt­inda- og heil­brigð­is­mál og því veldur sú til­skipun Banda­ríkja­for­seta sömu­leiðis miklum von­brigðum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár