Einar Sigurðsson hættir sem forstjóri MS í lok júní

Einar Sig­urðs­son, for­stjóri Mjólk­ur­sam­söl­unnar (MS) og Auðhumlu, hyggst láta af störfum 30. júní næst­kom­andi. Þetta kemur fram í frétta­til­kynn­ingu frá MS sem send var fjöl­miðlum nú síð­degis. Einar greindi stjórn Mjólk­ur­sam­söl­unnar frá ákvörðun sinni í gær, en hann hefur verið for­stjóri félags­ins frá árinu 2009.

Í til­kynn­ing­unni frá MS er haft eftir Einari: „Ég tek þessa ákvörðun vegna breyt­inga sem verða á högum fjöl­skyldu minnar í lok júní. Við hjónin ákváðum fyrir um ári síðan að hverfa bæði úr mjög anna­sömum stjórn­un­ar­störfum hér heima um mitt þetta ár og dvelja og starfa tölu­vert erlendis næstu miss­eri. Ég sný mér þar að nýjum verk­efnum sem ég hef lengi haft áhuga á að hrinda í fram­kvæmd, en jafn­framt mun ég áfram vinna fyrir hönd Mjólk­ur­sam­söl­unnar að upp­bygg­ingu nýs fyr­ir­tækis með hópi fjár­festa til fram­leiðslu og sölu á skyri í Banda­ríkj­unum.“

Einar segir Mjólk­ur­sam­sölunna hafa feng­ist við ögrandi við­fangs­efni á liðnu ári, meðal ann­ars vegna sam­keppn­is­mála, þar sem tek­ist sé á um túlkun á sam­spili búvöru­laga og sam­keppn­islaga. „Ég vona að það tak­ist að ljúka þeim málum áður en ég hætti nú í sumar.“

Áfrýj­un­ar­nefnd Sam­keppn­is­mála felldi nýverið úr gildi 370 millj­óna króna stjórn­valds­sekt sem Sam­keppn­is­eft­ir­litið lagði á Mjólk­ur­sam­söl­una í októ­ber vegna alvar­legra sam­keppn­islaga­brota. Áður óþekktur samn­ingur milli MS og Kaup­fé­lags Skag­firð­inga, sem MS byggði mál­flutn­ing sinn á fyrir áfrýj­un­ar­nefnd­inni, leiddi til þess að nið­ur­staða Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins var felld úr gildi. Sam­keppn­is­eft­ir­lit­inu var sam­hliða falið að rann­saka nánar verð­lagn­ingu MS á hrá­mjólk til ann­ars vegar tengdra fyr­ir­tækja og hins vegar keppi­nauta sam­stæð­unnar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár