Arion banki hagnaðist um 15,5 milljarða á fyrri hluta árs

Salan á Valitor skýrir meiran en helm­ing hagn­aðar Arion banka á öðrum árs­fjórð­ungi, sem alls nam 9,7 millj­örðum króna.

Höfuðstöðvar Arion banka í Borgartúni.
Höf­uð­stöðvar Arion banka í Borg­ar­túni. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Hagnaður Arion banka nam rúmum 9,7 millj­örðum króna á öðrum árs­fjórð­ungi, sem er tæpum tveimur millj­örðum meira en á sama tíma í fyrra.

Áhrif söl­unnar á Valitor spila stóran þátt í hagn­að­inum, en þau komu að fullu fram á öðrum fjórð­ungi árs­ins og nam sölu­hagn­að­ur­inn 5,6 millj­örðum sem þýðir að hagn­aður af reglu­legum rekstri bank­ans nam um 4,1 millj­arði króna.

Sam­an­lagður hagn­aður bank­ans á fyrstu sex mán­uðum árs­ins nemur 15,53 millj­örðum króna.

Arðsemi eig­in­fjár bank­ans var 21,8 pró­sent á öðrum árs­fjórð­ungi, en bank­inn er með mark­mið um 13 pró­sent arð­semi eig­in­fjár. Á fyrstu sex mán­uðum árs­ins nam arð­semi eig­in­fjár 16,9 pró­sent. Vaxta­munur bank­ans var 3,1 pró­sent á öðrum árs­fjórð­ungi, sam­an­borið við 2,9 pró­sent á sama tíma í fyrra.

[adspot]

Í til­kynn­ingu frá bank­anum er haft eftir Benedikt Gísla­syni banka­stjóra að afkoman hafi verið góð og mestu skipti að kjarna­starf­semi bank­ans haldi áfram að þró­ast með jákvæðum hætti, auk þess sem salan á Valitor hafi klár­ast.

„Kjarna­tekjur bank­ans aukast um tæp 24% á milli ára ef horft er til ann­ars árs­fjórð­ungs og vegur aukn­ing í vaxta­tekjum þar þyngst. Jafn­framt náð­ist góður árangur á fjórð­ungnum þegar kemur að þókn­ana­tekjum sem hafa ekki verið hærri á einum fjórð­ungi og má rekja það meðal ann­ars til mik­illa umsvifa í fyr­ir­tækja­ráð­gjöf og eigna­stýr­ingu. Á móti kemur að aðstæður á fjár­mála­mörk­uðum hafa verið krefj­andi sem hefur nei­kvæð áhrif á fjár­muna­tekjur bank­ans,“ er haft eftir Benedikt í til­kynn­ingu bank­ans.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár