Samgöngustofa birtir upplýsingar um björgunarfargjöld

WOW air skil­aði flug­rekstr­ar­leyfi inn til Sam­göngu­stofu klukkan 8 í morgun eftir að leigusalar létu kyrr­setja flug­vélar. Vefsíða Sam­göngu­stofu mun birta upp­lýs­ingar um björg­un­ar­far­gjöld og reyna að aðstoða strand­aða far­þega.

WOW air skil­aði inn flug­rekst­ar­leyfi sínu til Sam­göngu­stofu klukkan 8 í morgun eftir að ljóst var að leigusalar flug­fé­lags­ins í Banda­ríkj­unum létu kyrr­setja flug­vélar. Vefur Sam­göngu­stofu mun birta upp­lýs­ingar til að hjálpa far­þegum að kom­ast á áfanga­stað.

Þór­hildur Elín Elín­ar­dóttir

Þór­hildur Elín Elín­ar­dóttir, sam­skipta­stjóri Sam­göngu­stofu, segir nána sam­vinnu hafa átt sér stað á milli stofn­un­ar­innar og WOW air á meðan við­ræður flug­fé­lags­ins við kröfu­hafa og fjár­festa stóðu yfir. Því hafi ekki komið á óvart að leyf­inu hafi verið skilað inn. „End­ur­fjár­mögnun er heimil, svo fram­ar­lega sem flug­ör­yggi er aldrei stefnt í hættu,“ segir hún. „Þannig hefur þetta máli verið unnið af Sam­göngu­stofu í sam­skipti við þennan flug­rek­anda eins og aðra. Það er alltaf í fyrsta, öðru og þriðja sæti.“

Fljót­lega verða birtar á vef Sam­göngu­stofu upp­lýs­ingar um svokölluð björg­un­ar­flug, til að hjálpa far­þegum WOW air sem ekki hafa kom­ist á áfanga­stað vegna enda­loka flug­fé­lags­ins. „Vefurinn okkar verður miðjan í upp­lýs­inga­gjöf til far­þega, fjöl­miðla og ann­arra hlut­að­eig­andi,“ segir Þór­hildur. „Við miðlum upp­lýs­ingum jafn­óðum og þær birt­ast. Verk­efnið í dag er að hjálpa far­þegum að kom­ast á áfanga­stað eins fljótt og hægt er.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Fall WOW air

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár