Fimm innanlandssmit greindust í gær

Virkum smitum fækkar frá því í gær en nú eru alls 114 í ein­angrun vegna COVID-19 sam­an­borið við 117 í gær. Fólki í sótt­kví heldur samt áfram að fjölga en í dag eru 989 í sótt­kví. Þrjú þeirra sem greindust með kór­ónu­veiruna í gær voru í sótt­kví.

Fimm ný kór­ónu­veirusmit greindust inn­an­lands í gær, þrjú af þeim sem greindust í gær voru þegar í sótt­kví. Fjöldi ein­stak­linga í ein­angrun fækkar á milli daga, voru 117 í gær en eru 114 nú. Líkt og í gær liggur einn ein­stak­lingur á sjúkra­húsi vegna COVID-19, þó ekki á gjör­gæslu.

Aðeins hefur hægt á fjölgun ein­stak­linga í sótt­kví. Í dag eru 989 í sótt­kví en voru 919 í gær. 14 daga nýgengi fyrir inn­an­lands­smit er nú 19,6 á hverja 100.000 íbúa. Það var 18,3 í gær og hefur hækkað dag frá degi síðan 20. ágúst þegar nýgengi var um 15.

Í landamæra­skimun fóru alls 1750 ein­stak­lingar í gær. Mótefna­mæl­ingar er beðið hjá fjórum ein­stak­lingum sem fóru í skimun á landa­mærum í gær. Nýgengi smita á landa­mær­unum er 11,2 á hverja 100.000 íbúa og lækkar frá því í gær en þá var það 12,3.

Ekkert smit hjá ríkisstjórninni

[links]Í gær­kvöldi var greint frá nið­ur­stöðum úr síð­ari skimun níu ráð­herra í rík­is­stjórn Íslands og reynd­ust öll sýni þeirra nei­kvæð. Greint var frá því á föstu­dag að ákveðið hefði verið að nær allir ráð­herrar í rík­­­is­­­stjórn Íslands þyrftu að fara í tvö­­­falda skimun og við­hafa smit­­­gát á milli, eftir að nokkur kór­ón­u­veirusmit greindust dag­inn áður hjá ein­stak­l­ingum sem dvöldu á Hótel Rangá. Rík­is­stjórnin snæddi kvöld­verð á hót­el­inu þriðju­dag­inn 18. ágúst, eftir að hafa haldið rík­is­stjórn­ar­fund á Hellu.

Í til­­kynn­ingu sem send var út á föstu­dag kom fram að ráð­herrar rík­­­is­­­stjórn­­­­­ar­innar telj­ist til „ytri hrings hins mög­u­­­lega smit­hóps“ og séu því ekki hluti þess hóps sem auknar líkur eru á að hafi verið útsettur fyrir smit­i.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár