Þörf á fleiri úrræðum fyrir öryrkja

Á Íslandi eru 19.162 ein­stak­lingar með 75 pró­sent örorku­mat og hefur fjölgað um 29 pró­sent á tíu árum. Rúmlega þús­und færri þiggja örorku­líf­eyri.

ÖBÍ - Kröfuganga 1. maí 2018
ÖBÍ - Kröfu­ganga 1. maí 2018 Mynd: Bára Huld Beck

Nú eru 19.162 ein­stak­lingar með 75% örorku­mat á Íslandi og eiga því að öðru jöfnu rétt á örorku­líf­eyri. Þeim ein­stak­lingum hefur fjölgað um 4300 á tíu árum sem er um 29% aukn­ing. Hins vegar fá aðeins 18.009 ein­stak­lingar líf­eyri og hluti hóps­ins fær skertan líf­eyri vegna ann­arra tekna. Því eru rúm­lega 1000 öryrkjar sem þiggja ekki líf­eyri. Frá þessu er greint í Morg­un­blað­inu í dag.

Ekki hefur verið greint hvað liggur að baki því að fólk sækir um og fær metna örorku upp á 75% án þess að eiga rétt á líf­eyri. Samkvæmt Trygg­inga­stofnun kunna þó ýmsir hvatar að vera fyrir því. Öryrkjar geta í ein­hverjum til­vikum fengið greiðslur sem tengj­ast börnum og fríð­indi ann­ars staðar í sam­fé­lag­inu. Trygg­inga­stofnun veitir nú fólki sem metið er öryrkjar aft­ur­virkar greiðslur í tvö ár, eftir að umboðs­maður Alþingis birti álit þess efnis, og það getur þýtt að við­kom­andi fær veru­legar greiðslur í upp­hafi.

Samkvæmt heim­ildum Morg­un­blaðs­ins hefur nýgengi örorku auk­ist á und­an­förnum árum. Frá árinu 2006 hefur fjöldi nýrra öryrkja verið á bil­inu 1.140 til um 1.800 á ári. Stoð­kerf­is­sjúk­dómar og geð­rask­anir eru algeng­ustu ástæður 75% örorku og er þá miðað við fyrstu sjúk­dóms­grein­ingu en oft eru fleiri ástæður fyrir mat­inu. Á síð­asta ári voru geð­rask­anir ástæðan fyrir örorku­mati 495 ein­stak­linga og stoð­kerf­is­sjúk­dómar í 389 til­fella en 734 af öðrum ástæðum. Flestir þeirra sem metnir eru með 75% örorku eru á aldr­inum 55 til 64 ára eða 6813 í októ­ber 2018. Þótt nýgengi hafi auk­ist meðal ungra eru þó aðeins 24% hóps­ins 39 ára og yngri.

Þurfa fleiri úrræði

Sigríður Lillý Bald­urs­dóttir, for­stjóri Trygg­inga­stofn­unar, segir í sam­tali við Morg­un­blaðið að stofn­unin reyni að beina ungum umsækj­endum um örorku­líf­eyri í end­ur­hæf­ingu og á end­ur­hæf­ing­ar­líf­eyri. Hún segir að þó ekki alltaf hægt, alltaf komi dálítið af umsóknum frá ungu fólki um örorku­mat þar sem læknar skrifi upp á örorku og end­ur­hæf­ing­ar­að­ilar stað­festi að end­ur­hæf­ing sé full­reynd. Í þeim til­vikum hafi Trygg­inga­stofnun fá úrræði.

„Við erum ekki sátt við það. Geð­fötl­uðum fjölgar mikið. Þar þurfum við að finna fleiri úrræði. Einhver úrræði eru til en okkur hefur ekki tek­ist að tengja þau þannig að þau nýt­ist ein­stak­lingum vel. Það eru ákveðin von­brigði,“ segir Sigríður Lillý.

Sigríður nefnir að það sé nefnd á vegum félags­mála­ráð­herra sem er að fjalla um þessi mál og telur hún að meiri alvara sé hjá núver­andi ráð­herra en áður hefur verið til að finna úrræði og leiðir til að koma í veg fyrir að þessi þróun um nýgengi örorku verði að nátt­úru­lög­máli. Tekur hún fram að unnið sé að því á vegum ráðu­neyt­is­ins að gera stofn­un­inni kleift að grípa til fleiri úrræða, til að reyna að efla starfs­getu fólks

„Við getum gert margt betur,“ segir Sigríður Lillý þegar hún er spurð um ráð. Segist hún binda vonir við vinn­una í ráðu­neyt­inu. Þá séu í sam­fé­lag­inu öfl­ugir ein­stak­lingar og félög sem hafi verið að vinna með öryrkjum og öðrum sem hafa skerta starfs­getu. „Ég tel að við ættum að snúa hugs­ana­gangi okkar við. Hætta að nota hug­takið öryrki heldur ræða um starfs­getu fólks­ins og reyna að efla hana,“ segir hún. Þá segir hún að grípa þurfi inn í strax í skóla­kerf­inu. Þaðan komi ungir karl­menn sem líði illa en þá þurfi að grípa fyrr.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár