Sjómannasamband Íslands mótmælir harðlega breytingum á lögum um áhafnir skipa

Sam­bandið hefur sent inn umsögn um breyt­ingar á lögum um áhafnir íslenskra fiski­skipa, varð­skipa, skemmti­báta og ann­arra skipa. Það telur að mönnun fiski­skipa og ann­arra skipa eigi alltaf að taka mið af öryggi skips og áhafnar.

Sjó­manna­sam­band Íslands mót­mælir harð­lega breyt­ingum á lögum um áhafnir íslenskra fiski­skipa, varð­skipa, skemmti­báta og ann­arra skipa í umsögn sinni á Sam­ráðs­gátt stjórn­valda sem birt­ist fyrir helgi.

„Mönnun fiski­skipa og ann­arra skipa á alltaf að taka mið af öryggi skips og áhafnar, ekki hvort þessi eða hin lög um stjórn fisk­veiða gildi um við­kom­andi skip,“ segir í umsögn sam­bands­ins en undir hana skrifar Val­mundur Val­munds­son, for­maður Sjó­manna­sam­bands Íslands.

„Reyndar væri miklu nær að stýri­maður og vél­stjóri væru um alltaf um borð í skipum undir 24 metrum þó ekki sé róið lengur en 14 klst. á hverju 24 klst. tíma­bili og engar und­an­þágur veittar.“

Sjó­manna­sam­band íslands bendir á að þessi teg­und fiski­skipa séu mjög öflug og með stórar vélar sem þurfi sína gæslu. Að skip­stjóri geti einn séð stjórn skips og vél­gæslu er aft­ur­för, að mati Sjó­manna­sam­bands Íslands.

Vilja samræma skilgreiningu smáskipa um áhafnir

Áformað er að leggja fram frum­varp til að sam­ræma skil­grein­ingu smá­skipa í lögum um áhafnir íslenskra fiski­skipa, varð­skipa, skemmti­báta og ann­arra skipa við reglur um veiði­leyfi með króka­afla­marki í lögum um stjórn fisk­veiða.

Í lögum um stjórn fisk­veiða segir að eng­inn megi stunda veiðar í atvinnu­skyni við Ísland nema hafa fengið til þess almennt veiði­leyfi. Þau séu tvenns konar, það er veiði­leyfi með afla­marki og veiði­leyfi með króka­afla­marki. Með lögum frá 2013 var nýrri máls­grein bætt við 4. grein laga um stjórn fisk­veiða sem segir að þeir bátar einir geti öðl­ast veiði­leyfi með króka­afla­marki sem eru styttri en 15 metrar að mestu lengd og minni en 30 brúttó­tonn. Óheimilt sé að stækka bát­ana þannig að þeir verði stærri en þessu nemur.

Í lögum frá árinu 2007 eru smá­skip skil­greind sem skip sem eru 12 metrar að skrán­ing­ar­lengd eða styttri. Á hverju fiski­skipi skal vera skip­stjóri en ann­ars er munur á því hvaða kröfur áhafna­lög gera til mönn­unar á skipum sem eru 12 metrar eða styttri ann­ars vegar og skipa sem eru 12 til 24 metrar, sam­kvæmt 12. grein áhafna­laga. Á skipum sem eru styttri en 12 metrar að skrán­ing­ar­lengd má skip­stjóri vera hinn sami og véla­vörður sé hann eini rétt­inda­mað­ur­inn í áhöfn, enda taki vinnu- og hvíld­ar­tími mið af 64. grein sjó­manna­laga. Að öðrum kosti skal vera véla­vörður. Á skipum sem eru styttri en 24 metrar skal vera stýri­maður ef úti­vera skips fer fram úr 14 klukku­stundum á hverju 24 klukku­stunda tíma­bili. Á skipi þar sem dag­legur úti­vist­ar­tími er styttri en 14 klukku­stundir er heim­ilt að vera án stýri­manns, enda hafi skip fengið útgefna heim­ild þess efnis frá mönn­un­ar­nefnd. Á þessum skipum skal jafn­framt vera yfir­vél­stjóri en farið úti­vera fram úr 14 klukku­stundum á hverju 24 klukku­stunda tíma­bili skal vera yfir­vél­stjóri og véla­vörður.

Stefnt á að leggja frumvarpið fram næsta haust

Samkvæmt þessu geta króka­afla­marks­bátar verið 15 metra langir en með því falla þeir ekki lengur undir ákvæði áhafna­laga um smá­skip, sem mið­ast við 12 metra, heldur skip 12 til 24 metra með þeim auknu kröfum til skip­stjóra-, stýri­manna- og vél­stjórn­ar­rétt­inda. Ef sigl­ing er styttri en 14 klukku­stundir þarf und­an­þágu frá mönn­un­ar­nefnd og má skipið þá vera án stýri­manns.

Bent hefur verið á að með breyttum reglum þá séu kröfur um mönnun skipa í ýmsum til­vikum orðin rík­ari en fyrir breyt­ingu sé ekki til staðar heim­ild frá mönn­un­ar­nefnd sam­kvæmt 12. grein áhafna­laga til að sigla án stýri­manns. Þetta hefur leitt til þess að sækja þarf reglu­lega um heim­ild til mönn­un­ar­nefndar. Samgöngu- og sveit­ar­stjórn­ar­ráð­herra áformar að leggja fram frum­varp um þetta efni á haust­þingi 2019 sem geri lag­fær­ingar þannig að ekki sé þörf á und­an­þágu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

sjávarútvegsmál

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár