Haraldur Benediktsson hættur við að hætta

Fyrr í mán­uð­inum sagði Haraldur Bene­dikts­son að hann myndi ekki taka annað sæti á lista Sjálf­stæð­is­flokks í Norð­vest­ur­kjör­dæmi. Hann sigr­aði ekki í próf­kjöri en hefur nú skipt um skoðun.

Haraldur Benediktsson.
Haraldur Bene­dikts­son. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Haraldur Bene­dikts­son, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks, ætlar að þiggja annað sætið á lista flokks­ins í Norð­vest­ur­kjör­dæmi í kom­andi kosn­ingum. Hann hafði áður sagt að hann myndi ekki vera á lista ef hann tap­aði í odd­vitaslag gegn Þórdísi Kolbrúnu R. Gylfa­dóttur, vara­for­manni flokks­ins. Þórdís sigr­aði í próf­kjöri Sjálf­stæð­is­flokks­ins í kjör­dæm­inu með miklum yfir­burðum um síð­ustu helgi og fékk tæp­lega 60 pró­sent atkvæða í fyrsta sætið á lista.

Haraldur segir í sam­tali við Skessu­horn í dag að hann hafi á síð­ustu dögum með­tekið gríð­ar­legan fjölda áskor­ana um að þiggja annað sætið á list­anum. „Þar eiga í hlut bæði dyggir stuðn­ings­menn mínir í gegnum tíð­ina og einnig óflokks­bundið fólk sem annt er um stöðu lands­byggð­ar­innar. Ég get því ekki litið fram­hjá þeirri stað­reynd að þrátt fyrir allt virð­ist ennþá vera eft­ir­spurn eftir störfum mínum á þingi. Ég get því upp­lýst að ég lýsi mig til­bú­inn í fram­boðs­slag­inn.“

Í aðdrag­anda próf­kjörs­ins, sem fór fram síð­ustu helgi, sagði Haraldur í við­tali við Bæjarins besta að hann hygð­ist ekki taka annað sæti á lista, færi það svo að hann tap­aði í bar­átt­unni um odd­vita­sætið.

Þessir úrslita­kostir féllu í grýttan jarð­veg hjá sam­flokks­konum Haraldar, þeim var líkt við hót­anir í garð sam­flokks­fólks í kjör­dæm­inu og Haraldur auk þess sagður frekur, líkt og fjallað var um í umfjöllun Vísis. En nið­ur­staðan varð annað sætið fyrir Harald og því var allt útlit fyrir að hann myndi ekki setj­ast á þing eftir kom­andi kosn­ingar.

Það hefur nú breyst.

[adspot]Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn hefur nú tvo þing­menn í Norð­vest­ur­kjör­dæmi og kann­anir benda til þess að sú staða verði óbreytt. Ákvörðun Haraldar hefur því þau áhrif að Teitur Björn Ein­ars­son, sem lenti í þriðja sæt­inu í próf­kjör­inu og hafði vænt­ingar um að vera færður upp í annað sætið vegna fyrri yfir­lýs­inga Haraldar, er lík­ast til ekki á leið­inni á þing.

Brynjar hætti líka við að hætta

Haraldur er annar þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks sem er hættur við að hætta eftir að hafa ekki náð til­ætl­uðum árangri í próf­kjöri fyrir kom­andi kosn­ingar. Í gær greindi Brynjar Níelsson, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks í Reykja­vík, að hann hefði tekið þá ákvörðun að þiggja sæti á lista flokks­ins. Brynjar lenti í fimmta sæti í próf­kjöri flokks­ins í Reykja­vík en hafði sóst eftir öðru sæt­inu, og þar með odd­vita­sæti í öðru Reykja­vík­ur­kjör­dæm­inu. Nið­ur­staðan þýddi að Brynjar yrði í þriðja sæti á lista flokks­ins í öðru kjör­dæm­inu, en það er bar­áttu­sæti þar sem Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn hefur þrjá þing­menn í öðru Reykja­vík­ur­kjör­dæm­inu í dag og tvo í hinu.

Í stöðu­upp­færslu á Facebook sem Brynjar birti í gær sagði: „Mér var bent á af sér­fræð­ingum í eðli próf­kjara og Kreml­ar­lógíu flokks­ins að nið­ur­staða próf­kjörs­ins hafi verið í raun verið góð fyrir mig. Að lokum náð­ist að sann­færa mig um að ég hafi verið sig­ur­veg­ari próf­kjörs­ins, eig­in­lega stór­sigur.

Eftir að hafa legið undir feldi á þriðju viku, kóf­sveittur og illa lykt­andi hef ég ákveðið að þiggja sæti á list­anum, ef það stendur þá enn til boða. Ég er sann­færður um að stefna flokks­ins sé góð fyrir land og þjóð. Ég tel að ég geti orðið að liði í kom­andi kosn­inga­bar­áttu og er sann­færður um að sterkur og breiður Sjálf­stæð­is­flokkur er mik­il­vægur svo að okkur vegni vel, meira nú en oft áður.

Í Sjálf­stæð­is­flokknum eru margar vist­ar­verur og við erum ólík. En við eigum sam­eig­in­legar hug­sjónir sem birt­ast í grunn­stefnu flokks­ins. Við þurfum hins vegar að berj­ast fyrir stefn­unni og hug­sjón­unum. Þurfum kjark og þor í stað þess að ber­ast með straumnum, sem á það til að fara í mis­góðan far­veg, öllum til tjóns.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár