Illugi sá eini sem ekki hefur tilkynnt um framboð

Mennta­mála­ráð­herra er eini þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins sem ekki hefur gefið út hvort hann sæk­ist eftir end­ur­kjöri. Fram­boðs­frestur rennur út á morgun.

Illugi Gunn­ars­son, mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra, og odd­viti Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Reykja­vík­ur­kjör­dæmi norður, er eini þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins sem ekki hefur gefið það upp hvort hann hygg­ist sækj­ast eftir end­ur­kjöri í kom­andi kosn­ingum.

Fram­boðs­frestur í próf­kjöri Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Reykja­vík­ur­kjör­dæm­unum rennur út um miðjan dag, eða klukkan 16, á morgun. Allir aðrir núver­andi þing­menn í kjör­dæm­unum hafa gefið það út opin­ber­lega hvort þeir hyggj­ast halda áfram eða ekki. Hanna Birna Krist­jáns­dóttir, fyrr­ver­andi inn­an­rík­is­ráð­herra og odd­viti flokks­ins í Reykja­vík­ur­kjör­dæmi suður, gaf það út fyrir nokkru síðan að hún myndi hætta í póli­tík nú í haust.

Hinir þing­menn flokks­ins í Reykja­vík, Brynjar Níelsson, Birgir Ármanns­son, Guð­laugur Þór Þórð­ar­son og Sigríður Á. Andersen, ætla öll að gefa kost á sér í próf­kjör­inu. Próf­kjörið fer fram 3. sept­em­ber næst­kom­andi. Guð­laugur Þór til­kynnti í dag að hann sækt­ist eftir fyrsta sæt­inu í öðru hvoru Reykja­vík­ur­kjör­dæm­inu.

Ekki hefur náðst í Illuga Gunn­ars­son, en hann er staddur í Ríó á Ólymp­íu­leik­unum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár