Nordea verður hluthafi í Meniga

Nordea, stærsti banki Norð­ur­land­anna, verður hlut­hafi í íslenska hug­bún­að­ar­fyr­ir­tæk­inu Meniga. Meniga hefur fest kaup á sænska fyr­ir­tæk­inu Wrapp en með kaup­unum hyggst Meniga keppa við Google og Facebook í staf­rænum aug­lýs­ingum.

Georg Lúðvíksson, forstjóri Meniga.
Georg Lúð­víks­son, for­stjóri Meniga. Mynd: Aðsend mynd

Nordea, stærsti banki Norð­ur­landa, verður hlut­hafi í íslenska hug­bún­að­ar­fyr­ir­tæk­inu Meniga í kjöl­far kaupa Meniga á öllu hlutafé í sænska fyr­ir­tæk­inu Wrapp. Kaupin gera Meniga að stærsta fyr­ir­tæki á sviði end­ur­greiðslu­til­boða á Norð­ur­lönd­unum en með kaup­unum hyggst Meniga keppa við Google og Facebook um að verða mark­aðs­leið­andi í staf­rænum aug­lýs­ingum í Evrópu.

Sérhæfir sig í sérsniðnum tilboðum

Sænska fyr­ir­tæk­inu Wrapp sér­hæfir sig í sér­sniðnum til­boðum til neyt­enda í Svíþjóð og Finn­landi og starfa með rúm­lega 350 fyr­ir­tækjum. Allir starfs­menn Wrapp munu fær­ast yfir í sam­einað fyr­ir­tæki sem mun starfa undir merkjum Meniga en með kaup­unum verða Meniga að stærsta fyr­ir­tæki á sviði end­ur­greiðslu­til­boða á Norð­ur­lönd­unum.

[links]Fyrrum eig­endur Wrapp verða hlut­hafar í Meniga en á meðal þeirra er bank­inn Nordea. Nordea bæt­ist þá í hóp Swedbank, UniCredit og Íslands­banka sem hafa þegar fjár­fest í Meniga.

Meniga hefur starf­rækt fríð­inda­kerfi á Íslandi síðan 2014 í sam­vinnu við yfir 200 fyr­ir­tæki. Í til­kynn­ingu frá fyr­ir­tæk­inu segir að með kaup­unum á Wrapp munu versl­anir og fyr­ir­tæki á Norð­ur­löndum nú geta boðið neyt­endum sér­sniðin end­ur­greiðslu­til­boð og fá skýran val­kost við aug­lýs­inga­kerfi á borð við Facebook og Google. Aug­lýs­inga­kerfið er eitt fyrsta sinnar teg­undar í heim­inum og býður bönkum að vinna saman að því að bjóða neyt­endum til­boð í gegnum snjall­síma­app og net­banka, sam­kvæmt til­kynn­ing­unni.[adspot]

Neytendur vilja í auknum mæli að gögn þeirra séu nýtt til að skapa persónulega upplifun

Georg Lúð­víks­son, for­stjóri og einn stofn­andi Meniga, segir að bankar séu í ein­stakri stöðu til að skapa aukið virði fyrir við­skipta­vini sína með sér­sniðnum til­boðum og verða þannig mark­aðs­leið­andi á staf­rænum aug­lýs­inga­mark­aði. „Neyt­endur eru í auknum mæli að fara fram á að gögnin þeirra séu nýtt til þess að skapa aukið virði og per­sónu­lega upp­lifun á þeirri vöru sem þeir nýta. Að sama skapi vilja þeir að farið sé með gögnin þeirra á ábyrgan og gagn­sæjan hátt,“ segir Georg í til­kynn­ingu frá fyr­ir­tæk­inu.

Meniga var stofnað árið 2009 og eru starfs­menn eftir sam­run­ann um 150. Hug­bún­aður Meniga hef­ur verið inn­leidd­ur hjá yfir 75 fjár­mála­stofn­un­um og er hann aðgengi­leg­ur yfir 65 millj­ónum ein­stak­linga í 30 lönd­um. Starfs­stöðvar fyr­ir­tæk­is­ins verða sem fyrr í Reykja­vík en einnig er fyr­ir­tækið með skrif­stofur í Lundúnum, Stokk­hólmi og Varsjá. Skrif­stofan í Stokk­hólmi hefur nú sam­ein­ast skrif­stofu Wrapp þar í borg og skrif­stofa Wrapp í Helsinki bæt­ist við hóp­inn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár