Píratar þurfa að fresta aðalfundi vegna veirusmits á Fellsströnd

Aðal­fundi Pírata verður frestað um eina viku sökum þess að starfs­maður Vogs á Fells­strönd, þar sem fund­ur­inn verður hald­inn, hefur greinst með kór­ónu­veiruna.

Aðalfundi Pírata fyrir komandi alþingiskosningar hefur verið frestað um viku.
Aðal­fundi Pírata fyrir kom­andi alþing­is­kosn­ingar hefur verið frestað um viku. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Aðal­fundi Pírata fyrir alþing­is­kosn­ing­arnar í haust, sem fram átti að fara dag­ana 14. til 15. ágúst, hefur verið frestað um eina viku og fer fram helg­ina 21. til 22. ágúst. Í til­kynn­ingu frá Pírötum kemur fram að ástæðan sé kór­ónu­veirusmit starfs­manns Vogs á Fells­strönd, þar sem aðal­fund­ur­inn fer fram.

„Hluti starfs­fólks var settur í sótt­kví eins og reglur kveða á um og er því ekki hægt að halda stærri við­burði á hót­el­inu vegna mann­eklu,“ segir í til­kynn­ingu flokks­ins.

Píratar ákváðu þrátt fyrir þetta að halda sig við það að halda fund­inn á Fells­strönd, sem er í Dala­sýslu.

„Fyr­ir­tæki og stofn­anir um allt land hafa þurft að skella tíma­bundið í lás þegar upp hafa komið smit en halda að því loknu ótrauð áfram. Að lifa með far­aldr­inum þýðir ekki að öll starf­semi skuli stöðvuð end­an­lega heldur vera nógu sveigj­an­leg til að bregð­ast við upp­á­komum sem þessum,“ segir í til­kynn­ingu Pírata.

Þar kemur fram að ítr­ustu sótt­varnir verði iðk­aðar á aðal­fund­inum, í sam­ræmi við verk­lags­reglur flokks­ins í far­aldr­inum sem unnar voru í sam­ráði við almanna­varnir.[links]

„Þannig er fjöldi fund­ar­fólks tak­mark­aður við 100, en gild­andi sótt­varna­tak­mark­anir kveða á um 200 manna hámark. Þá verður jafn­framt stuðst við aðrar hefð­bundnar ráð­staf­anir; s.s. spritt, fjar­lægð­ar­mörk, grímur þar sem ekki er hægt að virða fjar­lægð­ar­mörk o.s.frv.“

Öllum fund­inum verður auk þess streymt í gegnum fjar­funda­búnað flokks­ins. Frestur til þátt­töku á fund­inum hefur verið fram­lengdur um viku vegna þess­ara breyt­inga og sömu­leiðis fram­boðs­frestur í nefndir, stjórnir og ráð sem kosið er um á aðal­fundi flokks­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár