Kosningabaráttunni snúið á haus

Landslag for­seta­kosn­ing­anna er gjör­breytt. Þrír hafa dregið fram­boð sitt til baka. Ólafur Jóhann Ólafsson afskrifar for­seta­fram­boð.

Ólafur Ragnar Grímsson, Andri Snær Magnason, Bæring Ólafsson, Halla Tómasdóttir, Elísabet Jökulsdóttir, Hildur Þórðardóttir, Guðrún M. Pálsdóttir, Ástþór Magnússon, Ari Jósepsson, Sturla Jónsson, Benedikt K. Mewes, Hrannar Pétursson og Magnús Magnússon.
Ólafur Ragnar Grímsson, Andri Snær Magnason, Bæring Ólafsson, Halla Tóm­as­dóttir, Elísabet Jök­uls­dóttir, Hildur Þórð­ar­dóttir, Guðrún M. Páls­dóttir, Ástþór Magn­ús­son, Ari Jós­eps­son, Sturla Jónsson, Benedikt K. Mewes, Hrannar Pét­urs­son og Magnús Magn­ús­son.

Ólafur Ragnar Grímsson ætlar sér að vera for­seti áfram, eftir 20 ára setu á Bessa­stöðum. Með ákvörðun sinni, sem hann til­kynnti um á mánu­dag, sneri hann kosn­inga­bar­átt­unni á haus og ljóst er að hún mun hafa áhrif á þá sem hafa legið undir feld­inum fræga. Í nýrri könnun MMR sem birt var í gær kom í ljós að meiri­hluti þjóð­ar­innar er ánægður með störf hans síð­ustu vikna og það sem vakti hvað mesta athygli var að 99 pró­sent kjós­enda Fram­sókn­ar­flokks­ins voru ánægðir.

Andri heldur áfram - þrír gefast upp

Tveir for­seta­fram­bjóð­endur drógu fram­boð sitt til baka sam­dæg­urs og Ólafur Ragnar til­kynnti að hann hefði skipt um skoðun; Vigfús Bjarni Alberts­son sjúkra­hús­prestur og Guð­mundur Franklín Jónsson hót­el­stjóri. Heimir Örn Hólmars­son hætti við fram­boð í nótt og sagði í til­kynn­ingu að Ólafur Ragnar væri ástæðan. Andri Snær Magnason rit­höf­undur segir ákvörðun for­set­ans engin áhrif hafa á fram­boð sitt.

Ólafur Jóhann afskrifar framboð

Nokkrir mögu­legir fram­bjóð­endur hafa líka gefið út á und­an­förnum dögum að þeir ætli ekki fram; Bryndís Hlöðvers­dóttir rík­is­sátta­semj­ari, Davíð Þór Jónsson hér­aðs­prestur, Linda Pét­urs­dóttir athafna­kona og Þor­grímur Þrá­ins­son rit­höf­undur. Bergþór Pálsson söngv­ari til­kynnti svo í gær að hann væri hættur við. Ólafur Jóhann Ólafsson, rit­höf­undur og aðstoð­ar­for­stjóri Time-Warner, segir í skrif­legu svari sínu til Kjarnans að hann ætli ekki í for­seta­fram­boð, en „þar sé ekki um neina sér­staka stefnu­breyt­ingu að ræða.“

Katrín Jak­obs­dóttir og Jón Gnarr voru lengi orðuð við fram­boð og nutu mik­ils stuðn­ings í skoð­ana­könn­unum. Þau gáfu það út fyrr á árinu að þau hugð­ust ekki bjóða sig fram og væru ánægð í sínum núver­andi störfum.

Þrettán í dag

Flestir for­seta­fram­bjóð­endur halda þó ótrauðir áfram. Halla Tóm­as­dóttir opnar kosn­inga­skrif­stofu sína á sum­ar­dag­inn fyrsta, Elísabet Kristín Jök­uls­dóttir segir Ólaf Ragnar með­virkan og hræð­ist ekki að fara á móti honum, Hrannar Pét­urs­son segir fram­boð Ólafs hafa verið áhuga­verðan snún­ing í bar­átt­unni, Hildur Þórð­ar­dóttir segir við RÚV að gær­dag­ur­inn hafi komið á óvart en hún ætli að halda sínu striki. Ástþór Magn­ús­son ætlar sér líka að sigra Ólaf.

Benedikt Kristján Mewes til­kynnti nýlega um fram­boð sitt og hann ætlar að halda því til streitu. Ari Jós­eps­son ætlar að halda sínu striki, sem og Guðrún Margrét Páls­dóttir. Bæring Ólafsson segir að ákvörðun Ólafs hafi ekki enn haft áhrif á sitt fram­boð. Hann láti vita ef eitt­hvað breyt­ist. Magnús Ingi Magn­ús­son, kenndur við Texas­borg­ara, ætlar áfram í fram­boð. Ekki hefur náðst í Sturlu Jónsson.

Guðni, Guðrún, Sigrún, Eiríkur og Stefán liggja enn saman undir feldi

Guðni Th. Jóhann­es­son sagn­fræð­ingur hefur enn ekki tekið ákvörðun um hvort hann ætli að bjóða sig fram, þó að hann segi vissu­lega að ákvörðun Ólafs hafi áhrif. Eiríkur Björn Björg­vins­son, bæj­ar­stjóri á Akureyri, og Sigrún Stef­áns­dóttir, for­seti hug- og félags­vís­inda­sviðs Háskól­ans á Akureyri, og Guðrún Nordal, for­stöðu­maður Árna­stofn­unar, segja við RÚV að þau séu enn að hugsa málið. Stefán Jón Hafstein segir í svari til Kjarnans að hann hafi haft á til­finn­ing­unni að apríl yrði svipti­vinda­samur í póli­tík­inni.

„Og reynd­ist sann­spár. Ákvarð­anir úreld­ast viku­lega, svo ég ætla mér að rýna ástandið enn betur næstu 2-3 vikur áður en loka­á­kvörðun verður tekin. Póli­tískar for­sendur kosn­inga­bar­átt­unnar til for­seta og þings hafa gjör­breyst," segir Stefán Jón. Ekki hefur náðst í Þorgerði Katrínu Gunn­ars­dóttir, fyrr­ver­andi mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra, en hún hefur verið að íhuga fram­boð.

Davíð Oddsson, rit­stjóri Morg­un­blaðs­ins, og Össur Skarp­héð­ins­son, þing­maður Sam­fylk­ingar, hafa báðir verið orð­aðir við fram­boð en hvor­ugur hefur gefið nokkuð út um það.

Jón ekki hættur við

Ein­hverjar vanga­veltur hafa skap­ast á sam­fé­lags­miðlum hvort fólk sem hafi áður gefið út að þau ætli ekki að bjóða sig fram, hafi nú skipt um skoðun í ljósi breyttrar stöðu. Jón Gnarr var lengi orð­aður við emb­ættið en hann til­kynnti í jan­úar að hann ætl­aði sér ekki að reyna að verða for­seti. Þar hefur ekki orðið breyt­ing á.

„Ég er mjög ham­ingju­samur í mínu lífi og sé enga ástæðu til að breyta því,” segir Jón í sam­tali við Kjarnann. „Það er eng­inn skortur á mið­aldra karl­mönnum í stjórn­málum á Íslandi svo ég sé ekki fram á að ég verði hold­gerv­ingur þess sem muni breyta ein­hverju.”

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

forseti2016

Fréttirforseti2016

Hvert atkvæði Davíðs kost­aði rúm­lega 1.100 krónur

Davíð Oddsson, rit­stjóri Morg­un­blaðs­ins, greiddi 1.103 krónur fyrir hvert atkvæði sem hann fékk í for­seta­kosn­ing­unum í sumar. Hann fékk rúm­lega 25 þús­und atkvæði og hafn­aði í fjórða sæti í kosn­ing­unum, með 13,7 pró­sent atkvæða. Andri Snær Magnason greiddi næst mest þeirra sem skip­uðu efstu sætin í kjör­inu. Hann greiddi 576 krónur fyrir hvert greitt atkvæði, en Andri Snær hlaut 14,6...
Fréttirforseti2016

Guðni Th. myndi rétt merja Höllu í ann­ari umferð for­seta­kosn­inga

Guðni Th. Jóhann­es­son, nýkjör­inn for­seti Íslands, myndi fá 52 pró­sent atkvæða ef haldin yrði önnur umferð í for­seta­kosn­ing­unum þar sem valið stæði á milli tveggja efstu fram­bjóð­end­anna. Halla Tóm­as­dóttir, sem fékk næst flest atkvæði, myndi fá 48 pró­sent atkvæða í slíkri kosn­ingu. Þetta kemur fram í könnun sem MMR hefur gert um málið. Eldra fólk studdi frekar Guðna Th. en...
Fréttirforseti2016

Skiptir engu máli að for­seti sé ekki í þjóð­kirkj­unni

Það er ekk­ert atriði að for­seti Íslands sé ekki í þjóð­kirkj­unni, segir verð­andi for­seti Íslands, Guðni Th. Jóhann­es­son. Það sé trú­frelsi á Íslandi sem sé varið í stjórn­ar­skrá. „Forseti á að geta staðið utan trú­fé­laga kjósi hann það. Hann á að geta verið í hvaða trú­fé­lagi sem er. Ég mun rækja mínar skyldur gagn­vart kirkj­unni eins og vera ber þrátt...

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár