Jón Gnarr ætlar ekki að bjóða sig fram til forseta

Jón Gnarr í þættinum Ísland Today, sem hóf göngu sína á Stöð 2 í kvöld.
Jón Gnarr í þætt­inum Ísland Today, sem hóf göngu sína á Stöð 2 í kvöld.

Jón Gnarr, dag­skrár­stjóri 365 og fyrr­ver­andi borg­ar­stjóri, ætlar ekki að bjóða sig fram til emb­ættis for­seta Íslands í ár. Hann úti­lokar það samt sem áður ekki að gera það seinna. Þetta kom fram í nýjum þætti á Stöð 2 í kvöld sem ber heitið Ísland Today. Þátt­ur­inn var sýndur á sama tíma og Ísland í dag og verður viku­lega á dag­skrá.

Jón hafði ekki viljað svara því und­an­farna daga hvort hann ætli sér að bjóða sig fram til for­seta í næstu kosn­ingum, en sagt að hann myndi til­kynna það í dag.

Í mars síð­ast­liðnum skrif­aði Jón pistil í Frétta­blaðið þar sem hann sagð­ist hins vegar ekki ætla að bjóða sig fram til for­seta. Þá hafði könnun sem blaðið birti nokkrum mán­uðum áður sýnt að 47 pró­sent aðspurðra vildu Jón í emb­ættið. Í pistl­inum sagð­ist Jóni óa við þeirri til­hugsun að verða hluti af þeim „ömur­lega og hall­æris­lega kúltúr" sem íslensk stjórn­mála­menn­ing sé. Hann sagð­ist þá ekki ætla að gera fjöl­skyld­unni sinni það að „standa aftur and­spænis freka kall­inum", sem hafi til­einkað sér til­ætl­un­ar­semi, frekju og dóna­skap í dag­legum sam­skiptum.

Jón opn­aði hins vegar á mögu­leik­ann á fram­boði á ný í Jólavöku RÚV, 20. des­em­ber síð­ast­lið­inn. Þar sagði Jón að honum þætti verk­efnið spenn­andi og hann „væri alveg til í að vera for­seti."

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár