Fjölmiðlafulltrúi Trump segir ekkert hæft í fréttum af Reykjavíkurfundi

Fréttir um að Donald Trump, verð­andi Banda­ríkja­for­seti, vilji funda með Vladimír Pútín Rúss­lands­for­seta í Reykja­vík eru algjör­lega ósannar. Þetta segir verð­andi fjöl­miðla­full­trúi Hvíta húss­ins, Sean Spicer.

Fréttir af því að Trump vildi funda með Pútín í Reykja­vík bár­ust seint í gær­kvöldi. Þær komu fram í The Sunday Times í dag.Með fund­inum var Trump sagður vilja horfa til áhrif­anna sem leið­toga­fundur Ron­alds Reag­ans Banda­ríkj­anna og Mik­hail Gor­bat­­sjov, leið­toga Sov­ét­ríkj­anna, hafði en hann fór fram í Höfða árið 1986, eins og kunn­ugt er.

Í blað­inu segir að ráð­gjafar Trumps hafi rætt um þessi mál við póli­tíska ráð­gjafa í Bret­landi. Þá er greint frá því að rúss­neskum stjórn­völdum lít­ist vel á Ísland sem stað fyrir fund milli Trumps og Pútíns. Trump er sagður vilja ræða um kjarn­orku­vopn við Pútín og hvernig megi draga úr þeim, auk þess sem hann vill geri sam­skipti þjóð­anna betri. Óhætt er að segja að öll spjót hafi staðið á bæði Trump og Pútín að und­an­förnu, en rúss­nesk stjórn­völd hafa í skýrslum leyni­þjón­ustu­stofn­anna Banda­ríkj­anna verið sögð hafa beitt tölvu­árásum í kosn­ina­bar­áttu Trumps og Hill­ary Clinton til að ýta undir líkur Trumps á sigri.

Guð­laugur Þór Þórð­ar­son utan­rík­is­ráð­herra sagði við mbl.is í gær­kvöldi að íslensk stjórn­völd litu málið jákvæðum aug­um, en að hann hafi fyrst heyrt af mál­inu í frétt Sunday Times. „Við höfum ekki fengið neitt stað­fest eða nein erindi um þetta.“ Íslend­ingar hafi þó alltaf verið til­búnir að hjálpa til þegar leið­togar heims­ins hafi viljað funda. „Ís­lensk­um stjórn­­völd­um hef­ur ekki borist er­indi af þessu tagi. Ef ráða­menn í Was­hing­t­on DC og Moskvu munu óska þess for­m­­lega við ís­­lensk stjórn­­völd að þau skipu­­leggi leið­toga­fund í Reykja­vík mun rík­­is­­stjórn Íslands líta það já­­kvæðum aug­um og leggja þannig sitt af mörk­um til að bæta sam­­skipti Banda­­ríkj­anna og Rús­s­lands, minn­ug leið­toga­fund­­ar­ins í Höfða árið 1986,“ seg­ir í svar­i utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins við fyr­ir­spurn mbl.­is.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár