Bretar ætla að banna nýja bensín- og dísilbíla

Bresk stjórn­völd hyggj­ast taka loft­gæði í Bret­landi föstum tökum.

Bretar mega ekki kaupa nýja bensínbíla eða dísilbíla eftir árið 2040 ef stefna stjórnvalda gengur í gildi.
Bretar mega ekki kaupa nýja bens­ín­bíla eða dísil­bíla eftir árið 2040 ef stefna stjórn­valda gengur í gildi. Mynd: EPA

Bresk stjórn­völd hyggj­ast banna sölu allra nýrra bensín- og dísil­bíla frá árinu 2040 í von um að það muni bæta loft­gæði í breskum borgum og í nágrenni vega.

Sér­stakri áætlun verður fylgt til þess að bæta loft­gæði í Bret­landi enda er sam­fé­lags­legur kostn­aður tal­inn gríð­ar­legur vegna slæmra loft­gæða sem hafa áhrif á heilsu fólks. Talið er að töpuð fram­leiðni sam­fé­lags­ins í Bret­landi nemi um 2,7 millj­örðum punda á ári vegna meng­unar. Slæm loft­gæði eru jafn­framt ein helsta umhverf­is­hættan sem veldur heilsutjóni hjá fólki.

Frá þessu er meðal ann­ars greint á vef breska dag­blaðs­ins The Guardian. Víða í Bret­landi hafa loft­gæði ítrekað mælst verri en staðlar Evr­ópu­sam­bands­ins leyfa

Í til­kynn­ingu sögð­ust bresk stjórn­völd vera stað­ráðin í að taka til hend­inni í þessum mála­flokki og ná árangri á sem skemmstum tíma. Sveit­ar­fé­lög í Bret­landi munu hljóta sam­tals þrjá millj­arða í fjár­fram­lög til þess að mæta kostn­aði sem fylgir loft­gæða­á­ætl­un­inni.

Til greina kemur að skil­greina sér­stök „hrein­lofts­svæði“ þar sem bíl­stjórar eru rukk­aðir ef þeir aka meng­andi bílum. Slíkt er hins vegar talið vera loka­úr­ræði enda er hætta á að bif­reið­ar­eig­endur mót­mæli slíkum refsi­að­gerðum. Slíkt yrði ekki ósvipað gjöldum sem munu falla á eldri bíla sem aka í London frá og með 23. októ­ber á þessu ári. Borg­ar­yf­ir­völd þar hafa ákveðið að rukka alla bíla sem menga of mikið (flestir eldri en árgerð 2006) um 10 pund á degi hverjum.

Bensín- og dísil­bíla­bann rík­is­stjórnar Theresu May er í svip­uðum anda og nýjar reglur sem umhverf­is­ráð­herr­ann í rík­is­stjórn Emmanuel Macron í Frakk­landi kynnti nýverið. Þar verður sala nýrra bensín- og dísil­bíla bönnuð frá árinu 2040.

Áætlun breskra stjórn­valda verður kynnt í dag.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár