Eygló Harðardóttir gefur ekki kost á sér fyrir næstu kosningar

Eygló Harð­ar­dóttir, fyrr­ver­andi félags- og hús­næð­is­mála­ráð­herra, hefur gefið út yfir­lýs­ingu að hún muni ekki gefa kost á sér í næstu kosn­ingum. Enginn þing­maður eigi að sitja lengur en átta ár sam­fellt.

Eygló Harðardóttir
Eygló Harð­ar­dóttir Mynd: Birgir Þór Harðarson

Eygló Harð­ar­dóttir til­kynnti á Facebook-síðu sinni í morgun að hún muni ekki gefa kost á sér til þing­starfa fyrir Alþing­is­kosn­ing­arnar þann 28. októ­ber næst­kom­andi.

„Í nóv­em­ber 2008 tók ég sæti á Alþingi fyrir hönd Fram­sókn­ar­flokks­ins við erf­iðar aðstæður í miðju banka­hruni. Árin síðan hafa verið ein­stak­lega við­burð­ar­rík og árang­ur­inn af vinnu við efna­hags­lega end­ur­reisn íslensks sam­fé­lags hefur verið mik­ill.

Þar hef ég verið stolt af bar­áttu okkar fram­sókn­ar­manna gegn skuldum, hvort sem það eru skuldir heim­il­anna eða sá skulda­klafi sem erlendir kröfu­hafar vildu hengja á þjóð­ar­búið. Ég er jafn­framt einkar stolt af að hafa sem félags- og hús­næð­is­mála­ráð­herra komið á nýju hús­næð­is­kerfi, bætt hag líf­eyr­is­þega og unnið gegn ofbeldi í íslensku sam­fé­lagi,“ segir hún.

Hún seg­ist jafn­framt lengi hafa verið sann­færð um að þing­mennska eigi ekki að vera ævi­starf og talað fyrir stjórn­ar­skrár­breyt­ingum um að hver þing­maður sæti ekki lengur en átta ár sam­fellt á Alþingi. Í nóv­em­ber 2017 verða þau ár orðin níu hjá henni. Því telji hún rétt á þessum tíma­punkti að láta staðar numið og leita nýrra og skemmti­legra ævin­týra á öðrum vett­vangi.

„Ég vil þakka þeim fjöl­mörgu sem hafa stutt mig í mínum störfum í gegnum árin, kjós­endum fyrir það traust og trúnað sem þeir hafa veitt mér til að starfa í þeirra þágu, góðum félögum út um allt land fyrir gott sam­starf og síð­ast en ekki síst fjöl­skyldu minni. Það er von mín að kom­andi kosn­inga­bar­átta verði jákvæð og heið­ar­leg og að sam­vinnu­hug­sjón Fram­sókn­ar­flokks­ins muni þar ná góðum hljóm­grunni,“ segir hún.

Eygló var þing­maður Suð­ur­kjör­dæmis frá árinu 2008 til 2013 og Suð­vest­ur­kjör­dæmis síðan 2013 fyrir Fram­sókn­ar­flokk­inn. Hún var félags- og hús­næð­is­mála­ráð­herra 2013 til 2017 og sam­starfs­ráð­herra Norð­ur­landa 2013 til 2017.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2017

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár