IKEA ætlar að minnka matarsóun um helming á næstu þremur árum

IKEA hygg­ist ætla að taka á mat­ar­sóun frá veit­inga­stöðum versl­an­anna. Á ári hverju fara 43.000 tonn af mat í ruslið frá IKEA.

IKEA hendir tæplega 43.000 tonnum af mat á hverju ári.
IKEA hendir tæp­lega 43.000 tonnum af mat á hverju ári. Mynd: EPA

Sænska hús­gagna­versl­unin IKEA ætlar að helm­inga mat­ar­sóun á veit­inga­stöðum versl­ana­keðj­unnar á næstu þremur árum. Mark­miðið á að spara rekstr­arfé og minnka vist­spor fyr­ir­tæk­is­ins.

Auk þess að vera stærsta hús­gagna­verslun í ver­öld­inni rekur IKEA eina af stærstu veit­inga­húsa­keðjum í heimi. IKEA rekur 392 versl­anir í 48 löndum um allan heim og í öllum versl­un­unum er að finna veit­inga­stað þar sem seldur er hefð­bund­inn sænskur matur, eins og Íslend­ingar þekkja vel.

Samkvæmt könn­unum sem fyr­ir­tækið hefur gert á rekstri sínum er um það bil 300 kíló­grömmum af mat hent á dag á hverjum veit­inga­stað sem IKEA rekur. Á hverju ári fara þess vegna tæp­lega 43.000 tonn af mat í ruslið frá veit­inga­stöðum IKEA.

Veit­inga­stað­irnir eru víð­ast mjög vin­sælir. Á síð­asta ári borð­uðu um það bil 650 milljón manns í versl­unum IKEA. Veit­inga­stað­ur­inn á Íslandi er með stærstu veit­inga­stöðum á land­inu.

Að sögn tals­manns veit­inga­rekst­urs IKEA var gerð könnun á því hversu miklum mat var kastað, í 84 versl­unum. Þar var greint hvaða daga og hvenær dags matnum var hent. Með því að beita nið­ur­stöðum þess­arar könn­unar hefur IKEA tek­ist að minnka mat­ar­sóun um 79 tonn. Það var ein­fald­lega gert með því að elda minna af honum þegar eft­ir­spurnin var lítil.

„Miðað við að með­al­verð á hverjum seldum skammti er 5 evrur, þá höfum við sparað 880.000 evrur sem hefðu ann­ars farið í ruslið,“ er haft eftir Ylvu Magn­us­son, tals­manni IKEA Food Services, á vef Reuters.

Samkvæmt Sam­ein­uðu þjóð­unum fer þriðj­ungur þess matar sem fram­leiddur er í heim­inum beint í ruslið. Efna­hags­legt tap vegna mat­ar­só­unar og mat­ar­taps nemur um 940 millj­örðum doll­ara og 8 pró­sent útstreymis gróð­ur­húsa­loft­teg­unda á hverju ári. Sjálf­bærni­mark­mið Sam­ein­uðu þjóð­anna frá 2016 miða að því að minnka mat­ar­sóun um helm­ing til árs­ins 2030.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár