Fjórðungur segist svikinn vegna Brexit

Bretar myndu velja að vera áfram í ESB ef önnur atkvæða­greiðsla færi fram nú, ef marka má nýja skoð­ana­könnun.

Fjórð­ungur þeirra sem kusu með útgöngu Bret­lands úr Evr­ópu­sam­band­inu í þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu í fyrra segja Brexit-tals­menn hafa blekkt sig í aðdrag­anda kosn­ing­anna. Þetta kemur fram í nýrri könnun Opinium. Frá þessu er greint á vef Business Insider.

Nærri því einn tíundi þeirra sem kusu útgöngu segj­ast myndu kjósa að vera áfram í Evr­ópu­sam­band­inu ef kosið yrði á ný. Helm­ingur allra þeirra sem kusu í þjóð­ar­at­kvæða­greiðsl­unni segja að lof­orð Brexit-tals­manna - sem lof­uðu 350 millj­ónum punda auka­lega á viku í heil­brigð­is­kerfið – hafi verið heldur eða mjög vill­andi. 19 pró­sent kjós­enda segja kosn­inga­bar­átt­una hafa verið sann­orða.

Rík­is­stjórn Íhalds­flokks­ins undir for­sæti Theresu May hefur ítrekað neitað því að skuld­binda sig við lof­orðið um auknar fjár­veit­ingar til heil­brigð­is­mála. 26 pró­sent þeirra sem kusu útgöngu segj­ast þess vegna hafa verið blekkt af kosn­inga­bar­átt­unni sem barð­ist fyrir Brexit.

Í könn­un­inni koma fram miklar áhyggjur Breta af eigin fjár­hagi vegna Brexit. 39 pró­sent svar­enda búast við að fjár­hagur þeirra eigi eftir að versna á næstu árum. 23 pró­sent þeirra sem völdu Brexit segj­ast búast við verri fjár­hag á næstu tveimur árum vegna Brexit. Þegar til lengri tíma er litið segj­ast 31 pró­sent halda að þeim muni vegna betur eftir 10 ár en 30 pró­sent svar­enda segj­ast halda að þau muni hafa það verra.

Bretar virð­ast einnig hafa skipt um skoðun um útgöngu. Ef greidd yrðu atkvæði um það nú myndu 47 pró­sent kjós­enda velja að vera áfram í Evr­ópu­sam­band­inu en 44 pró­sent ganga út. Fimm pró­sent segj­ast ekki vita hvað þau myndu velja, ef marka má nið­ur­stöður Opinium.

Það er hins vegar ekki þar með sagt að Bretar séu sam­mála um að ný þjóð­ar­at­kvæða­greiðsla eigi að fara fram. Aðeins 39 pró­sent svar­enda í könn­un­inni segj­ast vilja fá aðra atkvæða­greiðslu, en 49 pró­sent segj­ast ekki vilja það.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár