Finna engar aðrar skýringar en mannlegar athafnir

Hópur vís­inda­manna á launa­skrá banda­ríska rík­is­ins hefur rýnt í lofts­lags­gögnin og sent Donald Trump.

Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, telur loftslagsbreytingar ekki vera af mannavöldum, þvert á vísindalegar niðurstöður.
Donald Trump, for­seti Banda­ríkj­anna, telur lofts­lags­breyt­ingar ekki vera af manna­völdum, þvert á vís­inda­legar nið­ur­stöður. Mynd: EPA

For­seta­emb­ættið í Banda­ríkj­unum hefur sér­staka lofts­lagsút­tekt til skoð­unar um þessar mundir. Banda­rískir fjöl­miðlar, sem hafa lofts­lagsút­tekt­ina undir höndum, segja for­seta­emb­ættið hafa leynt til­veru skýrsl­unnar.

Í úttekt­inni lýsa vís­inda­menn sem starfa við 13 alrík­is­stofn­anir í Banda­ríkj­unum hinum víð­tæka skaða sem hlýnun jarðar hefur þegar haft í för með sér í Banda­ríkj­unum.

Donald Trump og rík­is­stjórn hans hefur sagst ætla að hætta stuðn­ingi sínum við Par­ís­ar­sam­komu­lagið. Í takt við það hefur for­set­inn skipað ann­ál­aðan efa­semda­mann um lofts­lags­breyt­ingar yfir Umhverf­is­stofnun Banda­ríkj­anna. Síðan Trump tók við emb­ætti for­seta í jan­úar hefur hann einnig snúið til­skip­unum Baracks Obama, for­vera síns í emb­ætti, sem lúta að bar­átt­unni við lofts­lags­breyt­ingar.

Úttektin sem vís­inda­menn­irnir hafa sent til Washinton kall­ast Climate Science Special Report. Þar segir að það sé „mjög lík­legt“ að meira en helm­ingur hlýn­un­ar­innar síð­ustu fjóra ára­tugi eða svo sé vegna athafna manna. Það gengur þvert á stað­hæf­ingar Trump-stjórn­ar­innar um að ábyrgð manna í lofts­lags­breyt­ingum sé óþekkt stærð.

Frá þessu er meðal ann­ars greint á vef Washington Post sem hefur úttekt­ina undir höndum. Um drög að úttekt­inni er að ræða en hún hefur þegar hlotið ítar­lega skoðun. Þar kemur fram það mat að mann­legar athafnir hafi leitt til hlýn­unar um 1,98 til 2,34 gráður frá 1951 til 2010.

„Margar vís­bend­ingar eru um að mann­legar athafnir, þá sér­stak­lega útblástur gróð­ur­húsa­loft­teg­unda, séu aðal­á­stæðan fyrir lofts­lags­breyt­ingum und­an­farið,“ segir í úttekt­inni. „Það eru engar aðrar skýr­ingar, og engir nátt­úru­legar hringrásir sem hægt er að finna í gögn­unum sem geta útskýrt lofts­lags­breyt­ing­arnar sem þegar hafa orðið.“

Enn er óvíst hvernig yfir­völd í Hvíta hús­inu munu bregð­ast við úttekt­inni. Margir vís­inda­menn eru sagðir líta á þetta sem til­rauna­verk­efni um afstöðu stjórn­valda til vís­inda eins og þau leggja sig.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár