Vöxtur Antifa í Bandaríkjunum andsvar við uppgangi öfgahægrisins

Banda­rískir ráða­menn saka Antifa um að bera ábyrgð á því að mót­mælin sem nú ein­kenna banda­rískt þjóð­líf hafi brot­ist út í óeirðir. Trump vill að hreyf­ingin verði stimpluð sem hryðju­verka­sam­tök en það gæti reynst erfitt.

Víða í Bandaríkjunum standa yfir mótmæli í kjölfar morðsins á George Floyd.
Víða í Banda­ríkj­unum standa yfir mót­mæli í kjöl­far morðs­ins á George Floyd. Mynd: EPA

Nýlega hefur Donald Trump Banda­ríkja­for­seti skotið föstum skotum í átt að Antifa, hópi aðgerð­ar­sinna gegn fas­isma. Bæði Trump og ráð­herrar í rík­is­stjórn hans hafa sakað Antifa um að bera ábyrgð á því að mót­mælin sem nú ein­kenna banda­rískt þjóð­líf hafi brot­ist út í óeirðir.

Til að mynda lét William Barr dóms­mála­ráð­herra þessi orð falla á blaða­manna­fundi í vik­unni: „Við höfum sönn­un­ar­gögn fyrir því að Antifa og aðrir sam­bæri­legir öfga­hópar sem og erlendir æsinga­menn með fjöl­breyttar stjórn­mála­legar skoð­anir hafa stuðlað að og tekið þátt í ofbeld­is­fullum aðgerðum.“

Þann 31. maí lýsti Trump því yfir að banda­rísk stjórn­völd ætl­uðu sér að skil­greina Antifa sem hryðju­verka­sam­tök. Óljóst þykir hvernig því verður háttað enda er ekki hægt að líta á Antifa sem sam­tök, frekar mætti lýsa Antifa sem form­lausri hreyf­ingu.

Minnir á viðbrögð við mannréttindabaráttu svartra á 7. áratug 20. aldar

„Það er mjög erfitt að sjá hvernig það verður fram­kvæmt,“ segir Pontus Jarvstad um fyr­ir­ætl­anir Trump í sam­tali við Kjarnann en Pontus vinnur nú að dokt­ors­verk­efni um and­fas­isma á Norð­ur­lönd­unum. Hann segir mik­inn aðdrag­anda liggja að baki þeirri stöðu sem komin er upp í mál­efnum Antifa í Banda­ríkj­unum. Þar hafi hreyf­ingar nas­ista og fas­ista mætt harðri and­stöðu og and­spyrnu frá Antifa og með­limir slíkra hreyf­inga í kjöl­farið talað um skerð­ingu á tján­ing­ar­frelsi. „Núna eru þau nátt­úr­lega mjög glöð ef þetta myndi ger­ast, að Trump myndi reyna að setja ein­hvern hryðju­verka­stimpil á Antifa,“ segir Pontus.

Hann bætir því við að fjölda­hreyf­ingar líkt og Antifa séu auð­vitað mjög flókin fyr­ir­bæri. „Það er ekki hægt að segja að þau séu bara frið­sam­leg eða bara ofbeld­is­full. Fjölda­hreyf­ingar taka á sig alls konar form og það snýst bara um sögu­legt sam­hengi, menn­ing­ar­legt sam­hengi, það snýst um svo margt.“

Í kjöl­farið víkur Pontus máli sínu að bar­áttu svartra fyrir auknum mann­rétt­indum í Banda­ríkj­unum á sjö­unda ára­tug síð­ustu aldar og þeirri mót­stöðu sem sú mann­rétt­inda­hreyf­ing þurfti að þola af hálfu yfir­valda. „Þá sáum við til­hneig­ingu frá rík­inu til að reyna að grafa undan (e. deligitemize) þess­ari mann­rétt­inda­hreyf­ingu með því að segja að þau væru bara komm­ún­istar, að þau væru ofbeld­is­fullir komm­ún­istar sem vildu gjör­bylta banda­rísku sam­fé­lagi.“

Að hans mati er ákveðin hlið­stæða fólgin í við­brögðum yfir­valda þess tíma við við­brögð Trumps um þessar mundir. Black Lives Matter sé stór og fjöl­breytt mann­rétt­inda­hreyf­ing sem er ítrekað bendluð við Antifa, anar­kista og menn­ing­ar­lega marx­ista, svo eitt­hvað sé nefnt, til þess að draga úr áhrifa­mætti hreyf­ing­ar­innar.

Rætur Antifa liggja í Evrópu

Saga Antifa er marg­slungin og alls ekki bundin við Banda­ríkin. Fyrsta hreyf­ingin sem fylkti sér á bak við þetta nafn spratt fram í Weimar-lýð­veld­inu og nafn þess­ara for­víg­is­manna því upp á þýsku: Antifaschistische Aktion.

„Þetta merki sem er notað nú til dags átti upp­haf sitt á milli­stríðs­ár­unum í Þýska­landi. Það var notað af komm­ún­ista­flokknum í Þýska­landi og áður en nas­ist­arnir komust til valda voru mikið af götu­bar­dögum milli nas­ista og komm­ún­ista,“ segir Pontus um upp­hafsár Antifa og ein­kenn­is­merki hreyf­ing­ar­innar sem enn er notað í til­tölu­lega óbreyttri mynd.

And­fas­ism­inn nær þó aftar í evr­ópskri sögu segir Pontus: „And­fas­istar voru búnir að skipu­leggja sig löngu fyrir það, eins og til dæmis á Ítalíu áður en Mus­sol­ini kom til valda. Þar voru mis­mun­andi and­fasískir hópar, bæði frá vinstr­inu og líka að ein­hverju leyti frá frjáls­hyggju­fólki þess tíma.“ Pontus bendir á að sú frjáls­hyggja sem hér um ræðir sé ólík frjáls­hyggju dags­ins í dag sem helst birt­ist okkur í nýfrjáls­hyggju. Frekar hafi þetta verið fólk sem aðhyllt­ist frjáls­lynd við­horf og var stað­sett vinstra megin á póli­tíska ásnum – enska hug­takið liber­als sé að ein­hverju leyti lýsandi.

„Margir sáu það mjög snemma að fas­ism­inn væri ógn á móti verka­lýðs­hreyf­ing­unni. Það sem var mik­il­vægt þá var að verka­lýðs­hreyf­ingin átti part í því að byggja upp lýð­ræði.“ Fas­ism­inn var þar af leið­andi bæði ógn gegn verka­lýðs­hreyf­ing­unni sem og lýð­ræð­inu.

Í bar­áttu sinni hafi and­fas­istar not­ast við ólík verk­færi. Sumir ein­beittu sér að því að skrifa gegn fas­ist­unum, aðrir ein­beittu sér að því að koma í veg fyrir að fas­istar gætu hist og skipu­lagt sig sem hreyf­ingu.

Þessi andi náði líka til Íslands og Norð­ur­land­anna. „Á Norð­ur­lönd­unum voru alls ekki eins blóðug átök eins og gerð­ust í hinum Evr­ópu­lönd­unum,“ segir Pontus. Til dæmis hafi ólíkir hópar keppst við að syngja og mark­miðið ein­fald­lega að vera hávær­ari en hinn hóp­ur­inn. „En svo voru líka götu­bar­dagar. Það gerð­ist líka á Íslandi, það voru komm­ún­istar í götu­bar­dögum gegn nas­istum hérna á Íslandi á milli­stríðs­ár­unum og líka á Norð­ur­lönd­unum.“

Styrkur andfasista vex og hnígur í takt við ógn fasismans

„Þetta kemur í bylgjum. And­fas­ismi er nátt­úr­lega bara ein­hvers konar svar við fasískum hreyf­ingum,“ segir Pontus um styrk hreyf­ing­ar­innar. Hann segir að fólk sem standi að skipu­lagn­ingu and­fasískra hreyf­inga sé oft rót­tækt fólk með rót­tækar skoð­anir sem vinnur með við­kvæmum hópum, hópum sem sam­anstendur af fólki sem á það að hættu að verða fyrir ofsóknum af hálfu fas­ista. Hann nefnir flótta­fólk og inn­flytj­endur sem dæmi.

„Það sem maður getur sagt um módern and­fasískar hreyf­ingar í Evrópu er að þær eiga upp­haf sitt á árunum í kringum 1980-90. Þá sáum við upp­haf nýrrar and­fasískrar hreyf­ingar í Evrópu,“ segir Pontus, en þá hafi Antifa sprottið aftur upp sem and­svar við fasískum hreyf­ingum sem settu sig upp á móti auknum fjölda inn­flytj­enda og flótta­manna í Evrópu. Þannig hafi inn­flytj­endum fyrst og fremst staðið ógn af fas­isma í Evrópu á síð­ustu ára­tugum í stað verka­lýðs­ins áður.

Hann segir að umfang Antifa hafi ekki vaxið á síð­ustu árum í Evrópu. Í Banda­ríkj­unum sé hins vegar annað uppi á ten­ingnum að mati Pontusar: „Þegar Trump var kos­inn opn­aði hann póli­tískt rými þar sem öfga­hægrið gat vaxið.“ Þar af leið­andi hafi hreyf­ing and­fas­ista þar í landi vaxið fiskur um hrygg upp á síðkastið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

georgefloyd

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár