Segist hafa fengið „gríðarlegan stuðning“ eftir sýknudóminn

Maður á sex­tugs­aldri sem ját­aði að hafa strokið þroska­skertri konu með kyn­ferð­is­legum hætti og látið hana snerta lim sinn utan klæða var sýkn­aður í Hér­aðs­dómi Suð­ur­lands árið 2017. Hann er ánægður með með­ferð­ina sem hann fékk í íslensku rétt­ar­kerfi. „Ég var í sam­bandi við móður stúlkunnar meðan á þessu stóð og þau buðu mér heim í kaffi,“ segir hann.

Mynd er sviðsett.
Mynd er svið­sett. Mynd: Shutterstock

„Ég hef fengið gríð­ar­legan stuðn­ing og alveg getað borið höf­uðið hátt,“ segir maður sem sýkn­aður var af ákæru um brot gegn þroska­skertri konu í sam­tali við Stundina.

Fjallað er ítar­lega um málið í nýjasta tölu­blaði, en mað­ur­inn var sýkn­aður í Hér­aðs­dómi Suð­ur­lands árið 2017 þrátt fyrir að hafa játað hátt­sem­ina að hluta, meðal ann­ars að hafa strokið kon­unni og fengið við það hold­ris, kysst hana á beran maga og látið hana snerta lim sinn utan klæða. Hér má lesa  umfjöllun um dóm­inn og vitn­is­burð geð­lækna sem komu að mál­inu.

Um er að ræða unga konu með miðl­ungs­þroska­hömlun og ein­hverfu­rófs­röskun, en hún hefur mælst með þroska á við 8 til 12 ára barn. Þótt mað­ur­inn sé með fram­heilaskaða og ekki sér­lega háa greind­ar­vísi­tölu var ekki deilt um það í mál­inu að umtals­verður þroska­munur væri milli hans og kon­unnar.

Í gögnum máls­ins kemur fram að mað­ur­inn hafi haldið áfram að umgang­ast kon­una og heim­sótt hana með leyfi móður hennar og stjúp­föður meðan málið var til rann­sóknar lög­reglu. Lög­reglan krafð­ist nálg­un­ar­banns á mann­inn í tvígang en í bæði skiptin var kröf­unni hafnað í Hér­aðs­dómi Suð­ur­lands en úrskurð­inum snúið við í Hæsta­rétti. Faðir kon­unnar reyndi jafn­framt að fá hana svipta lög­ræði til að vernda hana fyrir mann­inum, en því var hafnað.

Sami hér­aðs­dóm­ar­inn og hafn­aði nálg­un­ar­banns­kröf­unum og beiðn­inni um lög­ræð­is­svipt­ingu kvað svo upp dóm í kyn­ferð­is­brota­mál­inu ásamt tveimur öðrum þann 22. mars 2017 og komst að þeirri nið­ur­stöðu að ekki teld­ist sannað að mað­ur­inn hefði haft ásetn­ing til að brjóta gegn kon­unni.

Skipti þar sköpum að ekki þótti ljóst að kon­unni hefði „liðið illa“ meðan hátt­semin átti sér stað. Í Barna­húsi hafði hún tekið tví­vegis fram að sér hefðu þótt snert­ingar manns­ins óþægi­legar en fyrir dómi sagði hún aðeins að sér hefði liðið illa í kjöl­far atvikanna.

Dómurinn var ekki birtur á vef dóm­stól­anna á sínum tíma og mál­inu ekki áfrýjað til Hæsta­réttar. Fyrir vikið hefur ekki verið fjallað um það í fjöl­miðlum fyrr en nú.

„Þau buðu mér heim í kaffi“

„Ég var í sam­bandi við móður stúlkunnar meðan á þessu stóð og þau buðu mér heim í kaffi,“ segir mað­ur­inn í sam­tali við Stundina. Hann seg­ist hafa orðið fyrir aðkasti af hálfu aðstand­enda kon­unnar, einkum stjúp­móð­ur­innar sem hann sakar um að hafa ráð­ist á sig. Lögregla hafi ekki brugð­ist við því. Hann telur sig þó hafa fengið „mjög sann­gjarna“ með­ferð í rétt­ar­kerf­inu. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár