Guð­mundur Brynj­ólfs­son Mynd: Hordur Sveinsson

„Stríðsglæpamaður fluttur inn og stillt upp sem rithöfundi“

Guðmundur Brynjólfsson segir einn stærsta viðburð bókmennta ársins þann þegar „menn létu svo lítið að flytja hérna inn stríðs­glæpamann og stilla honum upp sem rithöfundi“ og átti þá við bókmennta­hátíðina Iceland Noir sem bauð Hillary Clinton til Íslands til að ræða bók sína Ríki Óttans.

Það var augljóst fyrir Guðmundi Brynjólfs­syni, höfundi og djákna, að Hillary Clinton fyrr­verandi utan­ríkis­ráðherra Bandaríkjana, væri „stríðs­glæpamaður stillt upp sem rithöfundi“ þegar hún mætti á Iceland Noir bókmennta­hátíðina í boði skipuleggjenda hennar, þegar bókmennta­árið og hvað stóð upp úr því var rætt í Jólabóka­boði Heimildarinnar. 

Töluvert hefur verið fjallað um komu Hillary á Iceland Noir en í stuttu máli kynnti bókmennta­hátíðin „einstakan bókmennta­viðburð í Reykjavík, sunnu­daginn 19. Nóvember“ í Eldborgarsal í Hörpu þar sem stofn­endur hátíðarinnar, Ragnar Jónasson og Yrsa Sigurðar­dóttir ætluðu að kynna hana á svið þar sem hún myndi ræða skáld­söguna State of Terror eða Ríki Óttans.

Í frétt á Vísi frá 14. september, sagði að Hillary væri „gestur Ragnars og Yrsu á hátíðina“ og haft eftir Yrsu að hátíðin væri ekki lengur lítil glæpasagna­hátíð þar sem sérstakur viðburður færi fram að henni lokinni og að miðasala á viðburðinn gengi vel eins og Yrsa …

Kjósa
31
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Reynir Vilhjálmsson skrifaði
    Nú er ómenningin komin til Íslands. Rithöfundar sem eiga venjulega virðingu skilið öskra eins og naut án þess að virða skoðanir annara. Auðvitað eru árásir Ísraela á Gasa ofbeldi sem ber að fordæma. En við meigum ekki gleyma að glæpir Hamas sem framdir voru meðal annars 1. október voru viðbjóðslegir og að Ísrael hefur auðvitað rétt á að verja sig. En öll vörn verður að vera innan marka sem stríðsréttur leyfir. Við verðum að geta rætt málin á skynsamlegum nótum þótt tilfinningarnar yfirbugi suma.
    Menn geta haft skoðun á Hillary Clinton eins og þeir vilja, en hún hefur ekki verið dæmd fyrir stíðsglæpi og það er óheiðarlegt að öskra á þá sem vilja hlusta á það sem hún hefur að segja.
    -2
  • Gudmundur Einarsson skrifaði
    "Það hafa hvað 36 börn látist í Úkraínu stríðinu frá upphafi. " Hvernig er hægt að taka fólk sem fer svona frjálslega með staðreyndir alvarlega.
    0
  • Kristbjörn Árnason skrifaði
    Á þessum tímum stríðshrjáðu tímum eiga handbolta-krakkarnir í stórum viðskiptum við þetta Ísraelska greiðslumiðlunarfyrirtæki sem lýst hefur yfir sérstökum stuðningi sinum við glæpaverk ríkisstjórnar Ísraels gagnvart stríðshrjáðum almenningi á Gasa til margra áratuga. Þessi stjórnvöld eru einnig að drepa fólk á svo nefndum ,,Vestur-bakka"
    3
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár