Skotinn í bakið fyrir að gefa út Söngva Satans: „Líkt og líkaminn hefði misst máttinn“

Árið 1993 var norski útgefandinn William Nygaard skotinn þrisvar í bakið og var nærri dauða en lífi. Nokkru áður hafði hann gefið út skáld­söguna Söngvar Satans. Málið hefur þvælst endalaust í norska kerfinu; tekist er á um það enn í dag, um leið og það þykir táknrænt fyrir baráttu um samfélagsleg gildi.

William Nygaard
William Nygaard „Það var líkt og lík­am­inn hefði misst mátt­inn. Ég heyrði ekk­ert skot­hljóð.“ William hafði, þegar hann varð fyrir árásinni, fyrir nokkru gefið út skáld­sög­una Söngvar Satans og dauða­dómur trú­ar­bylt­ing­ar­leið­tog­ans Aya­tollah Ruhollah Khomeini, Fatwa, frá því í febr­úar 1989 náði yfir alla þá sem að útgáfu bók­ar­innar komu. Mynd: Ole Berg-Rusten / NTB

Gulnuð haustblöð þöktu jörðina þegar norski bóka­útgefandinn William Nygaard, einn þekktasti útgefandi Norður­landa, steig út í daginn árið 1993 og gekk að bíl sínum. Þá veitti hann því athygli að dekk var sprungið og sökum tíma­skorts afréð hann að hringja á leigubíl frekar en skipta um dekk. Á þessum tíma voru fáir með farsíma en William var með einn slíkan tengdan við rafmagn í bílnum. En hann náði aðeins að slá inn fyrstu tvær tölurnar áður en hann fann þungt högg í bakið. Í fyrstu hélt William að hann hefði fengið rafmagns­straum.

„Það var líkt og líkaminn hefði misst máttinn. Ég heyrði ekkert skothljóð,“ var vitnað í hann í greininni Drápstilræðið sem skók Noreg – en hún birtist þann 22. janúar árið 2022 á vef norska ríkis­útvarpsins. Ítarleg frétta­skýring sem fór í saumana á máli hans sem enn þann dag í dag er óleyst. En William hafði, …

Kjósa
24
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár