Vanda endurkjörin formaður KSÍ

Ársþing KSÍ fór fram í dag og þar var kjör­inn for­maður: Vanda Sig­ur­geirs­dóttir, sem hefur gegnt starf­inu frá því í fyrra­haust, sigr­aði Sævar Pét­urs­son.

Vanda Sigurgeirsdóttir.
Vanda Sig­ur­geirs­dóttir. Mynd: Skjáskot: RÚV

Vanda Sig­ur­geirs­dóttir, sem var fyrst kjörin for­maður Knatt­spyrnu­sam­bands Íslands (KSÍ) í októ­ber í fyrra, var end­ur­kjörin for­maður á árs­þingi sam­bands­ins í dag. Hún atti þar kappi við Sævar Pét­urs­son, fram­kvæmda­stjóra KA, og fékk yfir­burð­ar­kosn­ingu. Vanda fékk alls 105 atkvæði, ða rúm­lega 70 pró­sent greiddra atkvæða, en Sævar 44, eða tæp­lega 30 pró­sent greiddra atkvæða.

Vanda var kjörin í fyrra­haust í kjöl­far þess að Guðni Bergsson, þáver­andi for­maður KSÍ, sagði af sér emb­ætti auk þess sem stjórn sam­bands­ins vék í heild sinni. Það gerð­ist eftir að frá­sagnir af kyn­ferð­is­of­beldi og áreitni lands­liðs­manna í knatt­spyrnu komu upp á yfir­borð­ið.

[adspot]Í des­em­ber í fyrra var birt skýrsla nefndar sem Íþrótta­sam­band Íslands (ÍSÍ) skip­aði til að gera úttekt á við­brögðum og máls­með­ferð KSÍ vegna kyn­ferð­is­of­beld­is­mála sem tengd­ust leik­mönnum í lands­liðum Íslands. Þar kom meðal ann­ars fram að KSÍ hafi fengið upp­lýs­ingar um meinta hópnauðgun tveggja lands­liðs­manna fyrir ell­efu árum síðan í byrjun júní síð­ast­lið­inn. Eftir til­kynn­ingu þar um frá starfs­manni sam­bands­ins, tengda­móður þol­and­ans, var meðal ann­ars rætt við annan ger­and­ann. Samt ákvað KSÍ að hlíta ráð­legg­ingu almanna­tengsla­fyr­ir­tækis og svara fyr­ir­spurnum fjöl­miðla um málið með vill­andi hætti.

Að mati nefnd­ar­innar mátti til sanns vegar færa að yfir­lýs­ing­arnar hafi borið með sér ákveðin merki þögg­un­ar- og nauðg­un­ar­menn­ingar, þar sem því var í reynd hafnað í yfir­lýs­ing­unum að mál kvenn­anna hefðu komið til vit­undar KSÍ.

Guðni Bergs­­son sagði í yfir­­lýs­ingu sem hann sendi frá sér í kjöl­farið að hann hafi borið ábyrgð á við­brögðum sam­­bands­ins, vegna þeirra ofbeld­is­­mála sem komu upp í for­­mann­s­­tíð hans. Sömu sögu væri að segja um miðlun upp­­lýs­inga til fjöl­miðla og almenn­ings. „Þar hefði ég getað gert bet­­ur.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár