Makríll frá Íslandi sendur til Rússlands gegnum skattaskjól

Félög á Tortóla og í Panama fluttu inn íslenskan mak­ríl til Rúss­lands. Seljandi var fyr­ir­tækið Frost­fiskur í Þor­láks­höfn sem kom ekki að notkun skatta­skjóls­fé­lag­anna.

Innflutningsbannið breytti landslaginu
Inn­flutn­ings­bannið breytti lands­lag­inu Inn­flutn­ings­bannið á íslenskan mak­ríl sem sett var á eftir að Ísland studdi við­skipta­þving­anir gegn Rúss­landi Vla­dimírs Pútíns batt enda á sölu á fisk­teg­und­inni til lands­ins. Mynd: Shutterstock

Makríll frá Íslandi var seldur til Rúss­lands í gegnum fyr­ir­tæki í skatta­skjól­unum Panama og Tortólu áður en inn­flutn­ings­bann var sett á þessa fisk­teg­und. Þetta kemur fram í tolla­skjölum frá Rúss­landi um inn­flutn­ing á mak­ríl til lands­ins frá Íslandi. Tolla­skjölin eru frá árunum 2013 og 2014. Ekki kemur fram í tolla­skjöl­unum hver er eða var eig­andi fyr­ir­tækj­anna í skatta­skjól­unum sem flutti íslenska mak­ríl­inn inn til Rúss­lands. 

Inn­flutn­ings­bannið var sett á árið 2015 eftir að Ísland gaf það út að landið styddi við­skipta­þving­anir Evr­ópu­sam­bands­ins og Banda­ríkj­anna gegn Rúss­landi út af inn­rásinni á Krím­skaga, inn­limunar svæð­is­ins í Rússland og vegna stríðs­átak­anna í Úkraínu. 

Fram að þessum tíma var inn­flutn­ingur á mak­ríl, fiski sem til­tölu­lega nýlega er kom­inn inn í íslenska fisk­veiði­lög­sögu vegna hlýn­unar sjávar, frá Íslandi mik­ill. Árið 2013 seldu Íslend­ingar til dæmis 113 þús­und tonn af mak­ríl til Rúss­lands en þetta var um 1/3 hluti af allri mak­ríl­sölu Íslands það …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Panamaskjölin

Skýring

Hvernig pen­inga­slóð stjórn­enda Kaup­þings og maka þeirra liggur til Tortólu

Notkun eig­in­kvenna fyrr­ver­andi stjórn­enda Kaup­þings­banka á félögum á aflands­svæð­inu Kypur er enn eitt dæmið um það að þessir aðilar hafi not­ast við slík félög í við­skiptum sínum eftir efna­hags­hrunið 2008. Hreiðar Már Sig­urðs­son, fyrr­ver­andi for­stjóri Kaup­þings, og eig­in­konu hans tengd­ust til dæmis félögum í Panama­skjöl­unum og árið 2019 var sagt frá Tortóla­fé­lagi sem notað var til að halda utan um eignir á Íslandi sem tengd­ust þeim.

8 mín. lestur

Úttekt

Sæmarks­stjóri ákærður ásamt lög­manni fyrir stór­felld skatt­svik og pen­inga­þvætti

Sigurður Gísli Björns­son, sem í fjölda ára var einn umsvifa­mesti fisk­út­flytj­andi lands­ins, er sak­aður um að hafa stungið rúm­lega millj­arði króna undan sköttum og fært í gegnum falska reiknn­inga og aflands­fé­lög í eigin vasa. Hann er ákærður fyrir stó­felld brot á skatta­lögum, bók­halds­lögum og pen­inga­þvætti. Íslenskur lög­maður sem einnig er ákærður seg­ist sak­laus.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár