Mál Borgunar til héraðssaksóknara – Grunur um refsiverða háttsemi

FME vís­aði í gær máli Borgunar til hér­aðs­sak­sókn­ara. Grunur leikur á um að fyr­ir­tækið hafi van­rækt að sinna kröfum um aðgerðir gegn pen­inga­þvætti, sem er refsi­vert.

Fjár­mála­eft­ir­litið (FME) hefur vísað máli Borgunar til hér­aðs­sak­sókn­ara, þar sem eft­ir­litið telur að Borgun hafi van­rækt af ásetn­ingi eða stór­kost­legu hirðu­leysi að kanna áreið­an­leika upp­lýs­inga um erlenda við­skipta­vini sína. Samkvæmt upp­lýs­ingum Kjarnans var mál­inu vísað til emb­ætt­is­ins í gær og rann­sóknin því stutt á veg komin. Ástæða þess að mál­inu var vísað til hér­aðs­sak­sókn­ara er sú að van­ræksla fjár­mála­fyr­ir­tækja á því að fylgja lögum um varnir gegn pen­inga­þvætti getur leitt af sér refs­ingu.

Þeir erlendu við­skipta­vinir sem um ræðir eru, sam­kvæmt við­mæl­endum Kjarnans, í þannig starf­semi að önnur færslu­hirð­ing­ar­fyr­ir­tæki hafa veigrað sér við að taka þau inn í við­skipti.

Uppfylla ekki kröfur laga um aðgerðir gegn peningaþvætti

Á föstu­dag­inn var greint frá því að Fjár­mála­eft­ir­litið hefði kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu, eftir athugun sem stóð í um níu mán­uði, að fram­kvæmd, verk­lag og eft­ir­lit Borg­unar í tengslum við aðgerðir gegn pen­inga­þvætti og fjár­mögnun hryðju­verka vegna færslu­hirð­ingar félags­ins erlendis upp­fylli ekki með við­un­andi hætti þær megin kröfur sem gerðar eru í lög­um. Borgun voru gefnir tveir mán­uðir til að ljúka úrbótum vegna athuga­semda eft­ir­lits­ins.

Fjár­mála­eft­ir­litið tók úrtak 16 við­skipta­manna á alþjóða­sviði Borg­unar þegar það fram­kvæmdi athugun á eft­ir­liti með pen­inga­þvætti og fjár­mögnun hryðju­verka hjá fyr­ir­tæk­inu. Í til­viki 13 af 16 við­skipta­manna var ekki fram­kvæmd könnun á áreið­an­leika upp­lýs­inga um við­skipta­menn­ina sam­kvæmt lögum um aðgerðir gegn pen­inga­þvætti og fjár­mögnun hryðju­verka. Á meðan að á athugun Fjár­mála­eft­ir­lits­ins stóð, en hún hófst 27. maí 2016 og lauk í febr­úar 2017, sleit Borgun við­skipta­sam­bandi við þrjá þess­ara við­skipta­manna. Þetta er meðal þess sem kemur fram í nið­ur­stöðu athug­unar Fjár­mála­eft­ir­lits­ins.

Þar segir einnig að eft­ir­litið hafi gert athuga­semd við að í til­viki fimm af 16 við­skipta­vina Borg­unar sem voru kann­aðir hafi Borgun ekki greitt fyrstu greiðslu á grund­velli samn­ings um færslu­hirð­ingu inn á reikn­ing við­skipta­manns­ins, eins og lög segja til um. „Í öllum til­vikum var um að ræða við­skipta­menn sem eru ein­göngu í starf­semi erlendis og voru ekki á staðnum til að sanna deili á sér við upp­haf við­skipta. Þá voru ekki fyr­ir­liggj­andi samn­ingar um að Borgun hf. hefði útvi­stað fram­kvæmd áreið­an­leikak­ann­anna til þriðja aðila sem staddur væri á sama stað og við­skipta­mað­ur­inn og þannig tryggt að við­skipta­mað­ur­inn teld­ist vera á staðnum til að sanna á sér deili við fram­kvæmd áreið­an­leika­könn­un­ar.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár