Um fjörutíu tilkynningar borist Lyfjastofnun eftir að byrjað var að veita örvunarskammta

Að svo stöddu hefur ekki borið á fleiri til­kynn­ingum um grun um auka­verk­anir eftir að heil­brigð­is­yf­ir­völd hófu að gefa við­bót­ar­skammta fyrir þá sem fengu Janssen bólu­efnið.

Lyfja­stofnun hefur borist um 40 til­kynn­ingar sem ann­að­hvort varða ein­stak­linga sem fengu örv­un­ar­skammt eða þar sem mögu­legt er að um hafi verið að ræða örv­un­ar­skammt. Verið er að vinna úr þessum til­kynn­ingum.

Þetta kemur fram í svari Lyfja­stofn­unar við fyr­ir­spurn Kjarnans.

Flestar til­kynn­ing­anna flokk­ast ekki sem alvar­legar og ein­kennin sem til­kynnt hafa verið eru almennt svipuð því sem hefur verið að koma inn, ein­kenni á stungu­stað, flensu­ein­kenni og breyt­ingar á tíða­hring, að því er fram kemur hjá Lyfja­stofnun.

„Að svo stöddu hefur ekki borið á fleiri til­kynn­ingum um grun um auka­verk­anir eftir að heil­brigð­is­yf­ir­völd hófu að gefa við­bót­ar­skammta fyrir þá sem fengu Janssen bólu­efnið,“ segir enn fremur í svar­inu.

Al­var­leg­ar auka­verk­an­ir geta komið upp – en þær eru fátíðar

Ung kona greindi frá því á TIkTok að hún hefði lam­ast fyrir neðan mitti eftir að hafa fengið örv­un­ar­skammt. Í kjöl­farið skap­að­ist umræða um alvar­legar auka­verk­anir af slíkum örv­un­ar­skömmtum. Þórólfur Guðnason sótt­varna­lækn­ir sagði í sam­tali við mbl.is í vik­unni að löm­un fyr­ir neðan mitti væri ekki þekkt auka­verk­un af bólu­setn­ingu gegn COVID-19. Hann sagði að þó al­var­leg­ar auka­verk­an­ir gætu komið upp vegna bólu­setn­ing­ar væru þær afar fátíðar og að auka­verk­an­ir af völd­um sýk­ing­ar væru mun al­geng­ari.

Á vef Embættis land­læknis kemur fram að allar bólu­setn­ingar geti valdið óþæg­indum. Flestar auka­verk­anir séu í raun afleið­ing virkj­unar ónæm­is­kerf­is­ins sem sé til­gangur bólu­setn­ing­ar­innar og séu yfir­leitt þær sömu óháð bólu­efni. Þær eru hiti, hrollur, vöðva-, bein- og lið­verkir, óþæg­indi á stungu­stað, þreyta og slapp­leiki, höf­uð­verkur og maga­ó­þæg­indi.

Örvunarskammtur „siðferðislega rangur“

Alþjóða­heil­brigð­is­mála­stofn­unin, WHO, hefur harð­lega gagn­rýnt ríkar þjóðir fyrir að gefa fólki örv­un­ar­skammt á meðan millj­ónir bíða eftir sínum fyrsta skammti. Ekki liggi fyrir nægi­leg gögn sem styðji við örv­un­ar­skammt­inn.

Í frétt RÚV um málið kemur fram að Mike Ryan, yfir­maður neyð­ar­að­gerða hjá WHO, segði örv­un­ar­skammt­inn sið­ferð­is­lega rangan. „Fólk í björg­un­ar­vestum er að fá annað björg­un­ar­vesti á meðan þeir sem ekki eru í neinu björg­un­ar­vesti drukkna.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár