Er Evrópusambandið brennandi hús, draumaheimur eða hvorugt?

Evr­ópu­mál eru oft­ast nær rædd á for­sendum öfga á sitt­hvorum enda umræð­unnar. Þeirra sem eru stað­fast­astir á móti og þeirra sem eru blind­aðir af kostum aðildar. Vegna þessa fer umræðan oft­ast nær fram á grund­velli til­finn­inga, ekki stað­reynda.

Þrátt fyrir óum­deil­an­legt mik­il­vægi Evrópu sem mark­aðar fyrir Ísland, og þau ríku sögu­legu og menn­ing­ar­legu tengsl sem landið hefur við aðild­ar­ríki sam­bands­ins, þá hefur póli­tísk umræða um Evr­ópu­mál á Íslandi verið fremur rýr. Hún hefur að mestu farið fram á for­sendum þeirra tveggja hópa sem eru stað­fast­astir í afstöðu sinni, annað hvort með eða á móti. Öskrað er úr byrgj­unum sitt hvoru megin að Evr­ópu­sam­bandið sé annað hvort brenn­andi hús sem beri aug­ljós­lega að forð­ast með öllu eða ein­hvers­konar alltum­lykj­andi drauma­land sem muni leysa öll vanda­mál lít­illar þjóðar á eyju úti í Ball­ar­hafi. Umræð­unni fylgir því mikil heift og hún byggir að stóru leyti á til­finn­ingu og upp­hróp­unum, frekar en stað­reyndum. Þess vegna reyn­ist almenn­ingi oft erfitt að átta sig á hvað sé rétt og hvað ekki.

Þegar í það er rýnt er mjög auð­velt að kom­ast að einni grund­vall­araf­stöðu: Evr­ópu­sam­bandið og aðild að því hefur bæði kosti og galla. Það þarf síðan að vega og meta þá kosti og þá galla út frá stað­reyndum til að móta sér skyn­sam­lega afstöðu gagn­vart því hvort Ísland eigi heima innan þess eða ekki. Sú stað­reynda­mið­aða umræða fær því miður allt of sjaldan að eiga sér stað vegna fyr­ir­ferðar ofan­greindra hópa á umræðu­vett­vangnum.

Evr­ópu­mál voru til umræðu í nýjasta þætti Kjarnans á sjón­varp­stöð­inni Hring­braut. Gestur þátt­ar­ins er Lilja Alfreðs­dóttir, fyrr­ver­andi utan­rík­is­ráð­herra. Hægt er að horfa á við­talið við Lilju hér að neðan.

Staða Evrópumála á Íslandi

Ísland sótti um aðild að Evr­ópu­sam­band­inu árið 2009. Það var rík­is­stjórn Jóhönnu Sig­urð­ar­dóttur sem það gerði. Á þeim tíma var Ísland að glíma við ótrú­legt magn vanda­mála. Gengi krón­unnar hafði fallið um nálægt 50 pró­sent, atvinnu­leysi stefndi í tveggja stafa tölu, verð­bólga topp­aði skömmu síðar í tæp­lega 20 pró­sent­um, stýri­vextir voru 18 pró­sent og hall­inn á rekstri rík­is­sjóðs var yfir 200 millj­arðar króna. Með neyð­ar­lög­unum hafði ríkið til við­bótar búið til nýtt banka­kerfi – byggt á inn­stæðum og völdum eignum sem átti eftir að greiða fyrir – sem var að öllu ófjár­magn­að. Fjár­mögnun þess var talið kosta allt að 385 millj­arða króna, sem voru ekki til í rík­is­sjóði. Rúmur helm­ingur fyr­ir­tækja í land­inu var í van­skilum og talið var að um 70 pró­sent þeirra væru með nei­kvætt eigið fé, og þar með tækni­lega gjald­þrota. Tug­þús­undir heim­ila voru með fjár­mál sín í algjöru upp­námi af ýmsum ástæð­um. Sum höfðu skuld­sett sig of mikið til að hraða sér í lífs­gæða­kapp­hlaup­inu, (ís­lenskum heim­ilum tókst að verða þau skuld­sett­ustu í heimi á árunum fyrir hrun), sum voru með geng­is­tryggð eða verð­tryggð lán sem hækk­uðu tíma­bundið mikið við fall krónu og verð­bólgu­skot og sum glímdu við þann skyndi­lega veru­leika að fyr­ir­vinnan varð atvinnu­laus.

Það mátti því færa góð rök, ein­vörð­ungu út frá þessum aðstæðum, um að það ætti kannski ekki að vera for­gangs­at­riði að reyna að semja um aðild að Evr­ópu­sam­band­inu á nákvæm­lega þessum tíma. Þegar við bætt­ist að annar stjórn­ar­flokk­ur­inn – Vinstri græn – var andsnúin aðild, að ekki var meiri­hluti fyrir aðild innan þings og að skoð­ana­kann­anir sýndu að slíkur meiri­hluti var heldur ekki til staðar hjá þjóð­inni þá er eðli­legt að fólk klóri sér í höfð­inu yfir því af hverju var lagt í þessa veg­ferð. Það er skoðun margra Evr­ópu­sam­bands­sinna – meðal ann­ars fyrr­ver­andi lyk­il­manna innan Sam­fylk­ing­ar­innar – að engin ein gjörð hafi eyði­lagt meira fyrir mögu­leikum Íslands á að ganga í Evr­ópu­sam­bandið á næstu ára­tugum en sú ákvörðun að sækja um á þessum tíma.

Þrátt fyrir að Íslandi hefði verið lofað flýti­með­ferð var við­ræðum ekki lokið þegar leið að kosn­ingum 2013. Ástæður þess voru marg­þættar og bæði heima­til­búnar sem utan­að­kom­andi. Icesave-deilan spil­aði þar stóra rullu en það gerði líka mikil and­staða hluta þing­manna og ráð­herra Vinstri grænna gagn­vart ferl­inu. Á end­anum setti rík­is­stjórnin sem sótti um umsókn­ar­ferlið á ís. Og sú sem tók við, undir for­sæti Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar, sendi bréf til Brussel þar sem kom fram að Ísland liti svo á að við­ræðum væri hætt, þótt þeim hafi aldrei form­lega verið slitið. Þannig er staðan enn í dag.

Afdrifaríkt bréf

Bréfa­send­ing þáver­andi utan­rík­is­ráð­herra, Gunnars Braga Sveins­sonar, átti eftir að draga veru­legan og ófyr­ir­séðan dilk á eftir sér. Bjarni Bene­dikts­son, for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, hafði nefni­lega lofað því í aðdrag­anda kosn­inga 2013 að þjóð­ar­at­kvæða­greiðsla yrði um aðild­ar­við­ræð­urnar áður en þeim yrði hætt. Það gerði hann til að friða stóran hóp Evr­ópu­sinna innan síns flokks.

Benedikt Jóhannesson flytur ræðu á mótmælafundi í kjölfar þess að ríkisstjórn Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar lauk aðildarviðræðum við Evrópusambandið. Hann leiddi síðar Viðreisn í gegnum kosningar og situr nú í ríkisstjórn með Sjálfstæðisflokknum. Sama flokki og hann var að mótmæla á myndinni.
Benedikt Jóhann­es­son flytur ræðu á mót­mæla­fundi í kjöl­far þess að rík­is­stjórn Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar lauk aðild­ar­við­ræðum við Evr­ópu­sam­bandið. Hann leiddi síðar Viðreisn í gegnum kosn­ingar og situr nú í rík­is­stjórn með Sjálf­stæð­is­flokknum. Sama flokki og hann var að mót­mæla á mynd­inni.

Þegar á hólm­inn kom sagði Bjarni að það hefði verið „póli­tískur ómögu­leiki“ að halda slíka þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu þar sem ráða­menn beggja stjórn­ar­flokk­anna, Sjálf­stæð­is­flokks og Fram­sóknar, væru á móti aðild. Það varð til þess að lyk­il­menn úr ranni Evr­ópu­sinna yfir­gáfu Sjálf­stæð­is­flokk­inn. Og stofn­uðu Viðreisn.

Sá flokkur var form­lega stofn­aður í júní 2014 og hafði und­ir­bún­ingur þá staðið yfir mán­uðum saman. Mark­miðið var fram­boð í næstu þing­kosn­ingum og eitt helsta stefnu­málið yrði aðild að Evr­ópu­sam­band­inu.

Viðreisn gekk vel í kosn­ing­unum í októ­ber 2016 undir for­ystu Bene­dikts Jóhann­es­sonar, frænda Bjarna Bene­dikts­sonar. Flokk­ur­inn fékk 10,5 pró­sent atkvæða og sjö þing­menn kjörna. Annar flokkur sem var með Evr­ópu­sam­bands­að­ild á stefnu­skrá sinni, Björt fram­tíð, náði í 7,2 pró­sent atkvæða og fjóra þing­menn. Sá þriðji, Sam­fylk­ingin, beið hins vegar afhroð og hlaut ein­ungis 5,7 pró­sent atkvæða, sjö árum eftir að flokk­ur­inn hafði hlotið 29,8 pró­sent atkvæða í kosn­ingum.

Viðreisn og Björt fram­tíð mynd­uðu sam­stundis banda­lag sem þau kenndu við frjáls­lynda miðju og hófu stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræður við flest alla nema Fram­sókn­ar­flokk­inn. Fyrsta lota slíkra við­ræðna var við Evr­ópu­and­stöðu­flokk­inn Sjálf­stæð­is­flokk og strand­aði m.a. á Evr­ópu­málum. Eftir nokkra dansa flokk­anna þriggja við aðra náðu þeir aftur saman í jan­úar og mynd­uðu rík­is­stjórn.

Í stefnu­skrá hennar var ein skuld­bind­ing í Evr­ópu­málum skjal­fest: að Við­reisn og Björt fram­tíð, báðir Evr­ópu­sinn­aðir flokkar sem vilja þjóð­ar­at­kvæði um áfram­hald­andi við­ræð­ur, sam­þykktu að taka ekki afstöðu til þess máls komið það upp í þing­inu fyrr en undir lok kjör­tíma­bils­ins.

Það er í algjörri and­stöðu við stefnu beggja flokka. Í grunn­stefnu Við­reisnar seg­ir: „Þjóðin kjósi strax um hvort ljúka skuli við­ræðum um fulla aðild að Evr­ópu­sam­band­inu til þess að ná megi aðild­ar­samn­ingi sem bor­inn verði undir þjóð­ina.“ Í áherslum Bjartar fram­tíðar seg­ir: „Löndum góðum samn­ingi við ESB sem þjóðin getur eftir upp­lýsta umræðu sam­þykkt í þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu.“

Ljóst er að reyna mun mjög á afar við­kvæmt stjórn­ar­sam­starfið á næst­unni vegna þess­ara mála, enda hafa Píratar lagt fram þings­á­lykt­un­ar­til­lögu um að fram farið þjóð­ar­at­kvæða­greiðsla um hvort óska eigi eft­ir nýj­um við­ræðum við Evr­ópu­sam­bandið um inn­göngu Íslands í sam­bandið. Þjóðar­at­kvæðið á sam­kvæmt til­lög­una að fara fram vorið 2018.

Þegar til­lagan verður tekin til efn­is­legrar umræðu þurfa Viðreisn og Björt fram­tíð annað hvort að fara gegn eigin stefnu og hafna henni, til að verja stjórn­ar­sam­starfið, eða vera sam­kvæm sjálfum sér og stefna þar með stjórn­ar­sam­starf­inu í hættu.

Borgum fyrir aðgöngumiðann að innri markaði Evrópu

En hver er staða Íslands í Evr­ópu­málum sem stendur? Ísland er með nokk­urs konar auka­að­ild að Evr­ópu­sam­band­inu í gegnum samn­ing­inn um Evrópska efna­hags­svæðið (EES), sem tók gildi í byrjun árs 1994. Aðrir aðilar að þeim samn­ingi eru Evr­ópu­sam­bandið, Noregur og Liechtenstein. Samn­ing­ur­inn veitir Íslandi aðgang að innri mark­aði Evrópu á flestum sviðum án tolla og gjalda, en þorri alls útflutn­ings okkar fer á það svæði. Og raunar flytjum við mest innan þaðan líka.

Samningsviðræður um framlög Íslands og hinna EES-ríkjanna fyrir aðgang að innri markaði Evrópu hafa oft verið erfiðar. Síðast hafði verið ósamið í fimmtán mánuði þegar náðist saman.
Samn­ings­við­ræður um fram­lög Íslands og hinna EES-ríkj­anna fyrir aðgang að innri mark­aði Evrópu hafa oft verið erf­iðar. Síðast hafði verið ósamið í fimmtán mán­uði þegar náð­ist saman.

Það er lík­ast til ekki ofmælt að segja að fátt, ef nokkuð, hefur fært Íslandi jafn mikla hröðun á lífs­gæðum og vexti og EES-samn­ing­ur­inn. Hann var gíf­ur­lega umdeildur þegar hann var gerður og mik­ill þrýst­ingur var á Vigdísi Finn­boga­dóttur, þáver­andi for­seta lands­ins, að synja honum und­ir­skriftar og senda í þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu. Af því varð þó ekki.

Ísland þarf að und­ir­gang­ast reglu­verk Evr­ópu­sam­bands­ins að stórum hluta vegna samn­ings­ins, með nokkrum vel skil­greindum und­an­þágum. Þar á meðal er hið svo­kall­aða fjór­frelsi um frjálsa för vinnu­afls, fjár­magns, vöru og þjón­ustu um innri mark­að­inn. Ísland hefur hins vegar enga aðkomu að mótun þess reglu­verks sem landið er skuld­bundið til að inn­leiða, þar sem það er ekki aðili að Evr­ópu­sam­band­inu.

Ísland, og hin EES-löndin, greiða fyrir þessa auka­að­ild að Evr­ópu­sam­band­inu með fram­lögum í Upp­bygg­inga­sjóð EES. Þær greiðslur eru oft kall­aðar aðgöngu­mið­inn að innri mark­aðnum. Samið er um greiðslur á nokk­urra ára fresti, en síð­ast var samið sum­arið 2015 eftir langar og strangar við­ræður. Þá voru fimmtán mán­uðir liðnir frá því að fyrri samn­ingur rann út og mjög erf­ið­lega gekk að semja, aðal­lega vegna þess að Evr­ópu­sam­bandið hafði farið fram á allt að þriðj­ungs­hækkun í sjóð­inn.

Ef gengið hefði verið að upp­haf­legum kröfum Evr­ópu­sam­bands­ins myndi Ísland þurfa að greiða um 6,5 millj­arða króna í sjóð­inn vegna tíma­bils­ins 2014-2019. Fyrir síð­asta samn­ings­tíma­bil, sem stóð frá 2009-2014, greiddu Íslend­ingar 4,9 millj­arða króna. Því yrði um hækkun upp á 1,6 millj­arða króna að ræða. Ekk­ert EFTA-­ríkj­anna þriggja sem greiða í sjóð­inn voru til­búin til að ganga að þessum kröfum og taka á sig hækk­anir af þess­ari stærð­argráðu.

Nið­ur­staða við­ræðn­anna varð á end­anum sú að greiðslur Íslands hækk­uðu um ell­efu pró­sent, sem tald­ist innan marka verð­lags­breyt­inga frá 2009. Auk þess yrði inn­flutn­ings­kvóti toll­frjálsra sjáv­ar­af­urða frá Íslandi til Evr­ópu­sam­bands­ins aukin veru­lega. Samn­ing­ur­inn gildir í sjö ár, en fyrri tveir samn­ingar giltu í fimm ár.

Norðmenn greiða þorra þeirra fram­laga sem far í Upp­bygg­ing­ar­sjóð­inn, enda reikn­ast fram­lag út frá lands­fram­leiðslu og höfða­tölu.

Enn Evrópumeistarar í innleiðingarhalla

Líkt og áður sagði þá skuld­bindur Íslands sig til að taka upp í lögum sínum obba reglu­verks Evr­ópu­sam­bands­ins með aðild sinni að EES. Sú inn­leið­ing á að ger­ast innan til­tek­inna tíma­marka. Ef ekki tekst að inn­leiða til­skip­anir Evr­ópu­sam­bands­ins innan þeirra verður til það sem kall­ast inn­leið­in­ar­halli. Þ.e. hversu stórt hlut­fall inn­leið­inga land hefur ekki inn­leitt innan þeirra tíma­marka sem gefin voru.

Ísland er það aðild­ar­ríki EES sem stendur sig verst í því að inn­leiða þessar skip­anir. Eftir að frammi­staða Íslands í því að inn­leiða reglur frá Evr­ópu hafði batnað fram stöðugt frá nóv­em­ber 2013 til nóv­em­ber 2015 hefur frammi­staðan nú versnað í tveimur frammi­stöðu­mötum í röð. Nú eru 18 til­skip­anir sem Ísland hefur ekki inn­leitt innan tíma­marka, sem gerir inn­leið­ing­ar­halla upp á 2,2 pró­sent. Hin ríkin í EFTA, Liechten­stein og Nor­eg­ur, standa sig mun bet­ur. Inn­leið­ing­ar­halli Nor­egs er 0,4 pró­sent og Liechten­stein er með 0,9 pró­sent halla. Meðal inn­­­leið­ing­­ar­halli í Evr­­ópu­­sam­­bands­­ríkjum er 0,7 pró­­sent.

Þetta hefur ekki ein­ungis þau áhrif að Ísland er ekki að standa við samn­ing sem landið hefur gert heldur þýðir þetta líka að íslenskir rík­is­borg­ar­ar, og rík­is­borg­arar innan alls EES svæð­is­ins, njóta ekki að fullu kosta innri mark­að­ar­ins.

Eft­ir­lits­stofnun EFTA (ESA) hefur ítrekað sagt að Ísland þurfi að standa sig miklu betur til að standa við skuld­bind­ingar sínar gagn­vart inn­­­leið­ingu á lögum og reglum EES-samn­ings­ins.

Síð­asta rík­is­stjórn var með Evr­ópu­stefnu, þar sem meðal ann­ars var lýst yfir að ráð­ast ætti í mikið átak til að bæta inn­leið­ing­ar­hall­ann. Á fyrri hluta árs­ins 2015 átti hall­inn að vera kom­inn undir 1 pró­sent. Það varð hins vegar aldrei, og lægst fór hall­inn í 1,8 pró­sent áður en hann tók að aukast á ný.

Á móti aðild en fylgjandi þjóðaratkvæði

Skoð­ana­kann­anir um Evr­ópu­mál sýna nokkuð flókna stöðu. Meiri­hluti lands­manna hefur verið á móti því að Ísland gangi í Evr­ópu­sam­bandið í nær öllum könn­unum sem gerðar hafa verið frá því að sótt var um aðild sum­arið 2009. Í nýlegri könnun MMR kom fram að 54 pró­sent hennar væri á móti aðild, 25,9 pró­sent væru fylgj­andi en restin hefði ekki fast­mót­aða skoðun á mál­inu.

Afstaða íslensks almennings til Evrópusambandsins er að mörgu leyti sérkennileg. Meirihluti er á móti aðild en fylgjandi þjóðaratkvæðagreiðslu um hvort fara eigi í aðildarviðræður.
Afstaða íslensks almenn­ings til Evr­ópu­sam­bands­ins er að mörgu leyti sér­kenni­leg. Meiri­hluti er á móti aðild en fylgj­andi þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu um hvort fara eigi í aðild­ar­við­ræður.

Þegar spurt er hvort þjóð­ar­at­kvæða­greiðsla eigi að fara fram um hvort fara eigi fram aðild­ar­við­ræður við Evr­ópu­sam­bandið þá breyt­ist afstaðan hins vegar. Í slíkum könn­unum hefur um langt skeið verið afger­andi meiri­hluti fyrir því að þjóðin fái að kjósa um hvort farið sé í við­ræður eða ekki.

Draga má þá ályktun af ofan­greindu að stór hluti þjóð­ar­innar sé tor­tryggin gagn­vart aðild að Evr­ópu­sam­band­inu, en vilji fá betri upp­lýs­ingar um hvað felist í aðild í stað þess að láta harð­línu­fólk á sitt­hvorum væng afstöð­unnar til aðildar segja sér hvað sé um að ræða.

Mörg krefjandi vandamál Evrópusambandsins

En hver er staðan innan Evr­ópu­sam­bands­ins um þessar mundir? Af umræðu hér­lendis mætti ætla að hún sé afleit. Sam­bandið er að ganga í gegnum erf­ið­leika­tíma­bil, um það er engin vafi. Hröð stækkun hefur leitt af sér mikla vaxt­ar­verki, sér­stak­lega vegna þess að höf­uð­á­hersla var lögð á að búa til eitt mynt­svæði evru úr afar ólíkum efna­hags­legum kerfum aðild­ar­ríkja. Í þeirri veg­ferð leit Evr­ópu­sam­bandið með­vitað fram hjá aug­ljósum veik­leikum sumra aðild­ar­ríkja, t.d. Grikk­lands, sem hefðu átt að koma í veg fyrir að þau upp­fylltu þau skil­yrði sem sett voru fyrir aðild að evr­unni. Á barna­legu bjart­sýnis­tímum nán­ast ókeypis fjár­magns fyrir efna­hag­skrepp­una sem skall á árið 2008, gátu þessi ríki því gefið út gríð­ar­legt magn skulda­bréfa á baki láns­hæfi Evr­ópu­sam­bands­ins. Bréf sem þau gátu aldrei raun­hæft greitt til baka. Ósveigj­an­leiki stærstu ríkja Evr­ópu­sam­bands­ins til að taka á gríð­ar­legum vanda t.d. Grikkja og Ítala eftir efna­hag­skrepp­una, hefur opin­berað veik­leika hjá sam­band­inu.

Flótta­manna­mál hafa líka valdið miklum vanda. Flótta­menn hafa á und­an­förnum árum flykkst til Evrópu frá stríðs­á­tökum í mið­aust­ur­löndum og Norður-Afríku aðal­lega, í leit að betra lífi fyrir sig og sína. Evr­ópu­sam­bandið hefur nálg­ast flótta­manna­stöð­una með afstöðu sem hold­gervist í Dyfl­innar-reglu­gerð­inni. Í henni felst að flótta­menn eigi að sækja um hæli í því landi álf­unnar sem þeir koma fyrst til. Í ljósi þess að flestir flótta­menn­irnir eru að koma frá sömu vand­ræða­svæð­unum þá verður vandi sumra Evr­ópu­landa – t.d. Grikk­lands og Ítalíu – vegna flótta­manna­straums mun stór­tæk­ari en t.d. Þýska­lands. Ljóst var að þegar flótta­menn streymdu inn í Evrópu í fyrra að þetta kerfi myndi ekki halda. Fátækari lönd álf­unnar, sem áttu landa­mæri að helstu flótta­manna­svæðum, myndu ein­fald­lega ekki geta tekið við öllu þessu fólki. Og mörg önnur lönd í námunda við þau, t.d. Ung­verja­land og Búlgaría, ætl­uðu ein­fald­lega ekki að gera það. Þess vegna ákváðu þýsk stjórn­völd að opna landa­mæri sín tíma­bundið í fyrra fyrir straumnum sem lá frá Grikk­landi og í gegnum Austur- og Mið-Evrópu.

Þjóðflutningar flóttamanna sem hófust til Evrópu árið 2015 hafa reynt mjög á stoðir Evrópusambandsins.
Þjóð­flutn­ingar flótta­manna sem hófust til Evrópu árið 2015 hafa reynt mjög á stoðir Evr­ópu­sam­bands­ins.

Evr­ópu­sam­bands­þjóð­irnar hafa ekki enn komið sér saman um hvernig eigi að leysa flótta­manna­vand­ann. Fjögur lönd: Þýska­land, Svíþjóð, Ítalía og Frakk­land hafa tekið við lang­flestum þeirra flótta­manna sem hafa komið yfir Mið­jarð­ar­hafið frá árinu 2015, eða ⅔ hluta þeirra. Lagt hefur verið til að lönd sam­bands­ins dreifi flótta­mönn­unum um svæði sín, en um að hefur ekki nást sátt.

Þá á auð­vitað eftir að telja til Brexit, útgöngu Bret­lands úr Evr­ópu­sam­band­inu. Nær ómögu­legt er að ráða í hvernig hún mun verða, en ljóst er að útgangan mun hafa dramat­ískt áhrif á þróun og stöðu Evr­ópu­sam­bands­ins ann­ars vegar og Bret­lands hins vegar. Hvort sú þróun verður til góðs eða ills fyrir aðila máls á ein­fald­lega eftir að koma í ljós. En um verður að ræða flókn­asta hjóna­skilnað í sögu alþjóða­vædds heims.

Vöxtur og sífellt batnandi efnahagsaðstæður

Það fer ekki jafnt hátt og böl­sýnin, en Evr­ópu­sam­band­inu gengur líka mjög vel á mörgum sviðum. Í fyrra var til að mynda meiri hag­vöxtur á evru­svæð­inu en í Banda­ríkj­unum, í fyrsta sinn frá hruni. Atvinnu­leysi hefur minnkað hratt og er komið undir tíu pró­sent, störfum fjölgað mikið og jákvæðni gagn­vart hag­kerf­inu er meiri en hún hefur mælst í sex ár.

Nú hefur mælst hag­vöxtur á evru­svæð­inu í fjórtán árs­fjórð­unga í röð og spár gera ráð fyrir að árið í ár verði betra en öll síð­ust ár. Hag­vöxtur hefur farið batn­andi um allt evru­svæðið, nema á Ítal­íu, og til að mynda var 3,2 pró­sent vöxtur á Spáni í fyrra. Focus Economics, sem tekur saman ýmiss konar hag­spár, hefur vakið athygli á því að mesta hækk­unin í hag­vaxt­ar­spám fyrir þetta ár sé í Evr­ópu. Jafn­vel árið 2018, þegar skatta­lækk­anir og aðrar efna­hags­að­gerðir Don­alds Trump eiga að hafa sem mest áhrif, eru nýj­ustu spár fyrir evru­svæðið á pari við Banda­rík­in.

Þá heldur Evr­ópu­sam­bandið áfram að bæta stöðu neyt­enda þvert á landa­mæri. Frá og með júní næst­kom­andi munu til að mynda reiki­gjöld vegna snjall­síma­notk­unar leggj­ast af innan Evr­ópu­sam­bands­ins. Það þýðir að not­endur snjall­síma, sem eru nán­ast allt nútíma­fólk, þarf ekki lengur að hafa áhyggjur af því að kostn­aður vegna net­notk­unar eða sím­tala í gegnum sím­ann eða önnur sam­bæri­leg tæki taki nokkrum breyt­ingum þegar við­kom­andi ferð­ast á milli landa sam­bands­ins. Fjar­skipta­fyr­ir­tækjum verður óheim­ilt að taka af þeim við­bót­ar­gjald.

Það blasir því við að staðan Evr­ópu­sam­bands­ins er, líkt og oft áður, flókin. Margt gengur afar vel en annað síður.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

evrópumál

Mest lesið undanfarið ár