Nicola Sturgeon segir af sér sem fyrsti ráðherra Skotlands

Nicola Sturgeon, fyrsti ráð­herra Skotlands, hefur sagt af sé eftir átta ár í emb­ætti. Hún er sann­færð um að arf­taki hennar muni leiða Skota til sjálf­stæðis.

Afsögn
Afsögn Nicola Sturgeon til­kynnti afsögn sína á blaða­manna­fundi í Edinborg í morgun. Hún hefur verið fyrsti ráð­herra Skotlands frá 2014, lengur en nokkur annar. Mynd: AFP

Nicola Sturgeon hefur sagt af sér sem fyrsti ráð­herra Skotlands eftir átta ár í emb­ætti.  BBC greindi frá áformum Sturgeon í morgun og greindi hún frá afsögn sinni á blaða­manna­fundi í Edinborg skömmu fyrir hádegi.  

Sturgeon segir ákvörð­un­ina erf­iða, starfið sé það besta í heim­inum, og hún hafi velt því fyrir sér af alvöru í nokkrar vikur hvort hún ætti að segja af sér. Hún hefur nú ákveðið að gera svo og segir ákvörð­un­ina byggða á því sem hefur átt sér stað yfir lengri tíma en ekki vegna póli­tísks þrýst­ings vegna umdeildra mála svo sem frum­varps um kyn­rænt sjálf­ræði sem breska rík­is­stjórnin beitti neit­un­ar­valdi gegn í jan­úar.  

Hún tím­ann vera réttan, fyrir hana, fyrir flokk­inn og fyrir Skotland. Hún ætlar ekki að segja alveg skilið við stjórn­málin þó óljóst sé hvernig þátt­töku hennar verður háttað. Hún muni ekki leiða Skota til sjálf­stæðis. „Ég trúi því stað­fast­lega að arf­taki minn muni leiða Skota til sjálf­stæðis,“ sagði Sturgeon á blaða­manna­fund­inum, sem sjá má í heild sinni hér:

Afsögn hennar mun ekki taka gildi strax og ætlar Surgeon að sitja áfram þar til nýr ráð­herra hefur verið kjör­inn. Und­ir­bún­ingur þess er þegar haf­inn. 

Sturgeon, sem er 52 ára, hefur verið lengur í emb­ætti fyrsta ráð­herra Skotlands en nokkur annar. Samkvæmt heim­ildum BBC hefur Sturgeon ein­fald­lega „fengið nóg“. 

Sturgeon hefur setið á skoska þing­inu frá 1999 og tók við sem vara­for­maður Skoska þjóð­ar­flokks­ins árið 2004. Sturgeon tók við sem fyrsti ráð­herra Skotlands af Alex Salmond í kjöl­far þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu um sjálf­stæði Skotlands árið 2014. Þá vildu 45 pró­sent Skota sjálf­stæði en 55 pró­sent vildu áfram vera hluti af Bret­landi. 

Sjálfstæði og frumvarp um kynrænt sjálfræði

Aukin sjálfs­stjórn Skota hefur verið meðal bar­áttu­mála Sturgeon og í sumar lagði hún til að atkvæða­greiðsla um sjálf­stæði Skotlands færi fram 19. októ­ber næst­kom­andi. Sú til­laga hefur ekki náð fram að ganga og í nóv­em­ber úrskurð­aði Hæsti­réttur Bret­lands að Skotum væri ekki heim­ilt að halda þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu um sjálf­stæði án heim­ildar bresku rík­is­stjórn­ar­innar.  

Annað mál hefur hins vegar verið fyr­ir­ferða­meira upp á síðkastið. Um miðjan jan­úar beitti rík­is­stjórn Bret­lands neit­un­ar­valdi til að stöðva frum­varp um kyn­rænt sjálf­ræði í Skotlandi. Þetta var í fyrsta skipti í 23 ára sögu skoska þings­ins sem breska rík­is­stjórnin beitt neit­un­ar­valdi. 

Skoska þingið sam­þykkti í des­em­ber frum­varp um kyn­rænt sjálf­ræði. Frum­varpið flýtir fyrir og gerir ferlið um að breyta kyn­skrán­ingu auð­veld­ara, auk þess sem 16-17 ára ung­mennum verður heim­ilt að breyta kyn­skrán­ingu sinni. Með frum­varp­inu átti að fella kröfu um sjúk­dóms­grein­ingu á kynama úr gildi.  

Beiting neit­un­ar­valds­ins var meðal ann­ars rök­studd á þeim for­sendum að frum­varpið ógni öryggi kvenna og að það stang­ist á við jafn­rétt­islög. Alister Jack, ráð­herra mál­efna Skotlands, sagði áhyggjur rík­is­stjórn­ar­innar aðal­lega bein­ast að rýmum sem eru ætluð einu kyni, svo sem bún­ings­klefar, sal­erni og fang­elsi. Sturgeon sagð­ist vera til­búin til að verja frum­varpið fyrir hæsta­rétti.

Kjósa
4
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár