Fyrsta lúxussnekkjan boðin upp eftir innrás Rússa

Snekkja sem rúss­neski auð­mað­ur­inn Dmitrí Pump­i­an­skí átti verður seld á upp­boði í vik­unni þar sem hann hafði ekki greitt af láni til JPMorgan Chase & Co.

Axioma er sannkallað lúxusfley.
Axioma er sann­kallað lúx­us­fley. Mynd: NICO_

Rúss­neski millj­arða­mær­ing­ur­inn Dmitrí Pump­i­an­skí hefur ekki getað borgað af banka­láni vegna lúx­us­snekkju sem hann hafði fest kaup á og verður hún því boðin upp. Þetta er fyrsta snekkja úr eigu rúss­neskra auð­manna sem fer á upp­boð, segir frétta­stofa Bloomberg, eftir að Rússar gerðu inn­rás í Úkraínu í febr­úar. Í kjöl­far inn­rás­ar­innar voru eignir Rússa víða um heim frystar, fjöldi lúx­us­snekkja þar á meðal.

Fyrst þess­ara snekkja til að fara á upp­boð heitir Axioma. Lagt var hald á hana í Gíbraltar í mars. Gíbraltar er undir breskum yfir­ráðum. Snekkjan er metin á 63 millj­ónir punda, vel yfir 10 millj­arða íslenskra króna. Í frétt BBC segir að lík­legt sé að sölu­verðið verði lægra. Mikill áhugi er sagður fyrir kaup­unum.

JP Morgan fór í mál við Pump­i­an­skí vegna tæp­lega 3 millj­arða króna láns sem hvílir á skút­unni.

Skútan Axioma er sann­ar­lega lúx­us­fley mikið. Á því eru fimm þil­för, stór sund­laug og þrí­víddar bíó­salur svo fátt eitt sé nefnt.

Pump­i­an­skí efn­að­ist á stál­iðn­aði. Þar til í mars á þessu ári stýrði hann stærsta fram­leið­anda stál­röra í Rúss­landi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár