Dagur ætlar að bjóða sig aftur fram

Dagur B. Egg­erts­son ætlar að gefa kost á sér í sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ing­unum sem fram fara í maí. Þessu greindi hann frá í við­tali á Rás 2 í morgun.

Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri Reykjavíkur.
Dagur B. Egg­erts­son, borg­ar­stjóri Reykja­víkur. Mynd: Hringbraut

Dagur. B Egg­erts­son, borg­ar­stjóri Reykja­víkur og odd­viti Sam­fylk­ing­ar­innar, ætlar að gefa kost á sér í sveita­stjórn­ar­kosn­ing­unum í maí. Þessu greindi hann frá í við­tali á Rás 2 í morgun. Dagur var í sótt­kví í síð­ustu viku og sagð­ist að því til­efni ætla að bíða með yfir­lýs­ingar um fram­hald sitt í póli­tík þar til henni lyki.

Í við­tal­inu í Morg­un­út­varp­inu á Rás 2 í morgun sagð­ist Dagur mögu­lega hafa tekið aðra ákvörðun um fram­boð sitt fyrir ári síðan en þá varð hann fyrir harðri gagn­rýni með aug­lýs­ingum fjár­sterkra aðila sem beindust sér­stak­lega að honum. Einnig var skotið á bíl hans fyrir utan heim­ili hans. Árásin hafði meiri áhrif á hann en hann vildi við­ur­kenna í fyrstu. Í við­tal­inu sagði hann þau hjónin hafa hætt að fara í göngu­ferðir á kvöldin í kjöl­far hennar.

[adspot]

Dagur hefur setið í borg­­ar­­stjórn lengur en nokkur annar sem þar situr nú, eða frá árinu 2002, fyrst fyrir Reykja­vík­­­ur­list­ann en síðan fyrir Sam­­fylk­ing­una. Áður en hann varð borg­ar­stjóri árið 2014 hafði hann einnig verið borg­­ar­­stjóri í hund­rað daga, frá októ­ber 2007 til jan­úar 2008.

Eina skiptið á ferli Dags sem hann hefur setið í minn­i­hluta er kjör­­tíma­bilið 2006 til 2010, að und­an­­skildum áður­­­nefndum 100 dög­um, en miklar svipt­ingar voru í borg­­ar­­stjórn á þeim árum og alls fjórir meiri­hlutar mynd­að­­ir.

Sam­fylk­ingin hefur ákveðið að bind­andi flokksval verði notað til að velja í efstu sex sætin á lista flokks­ins í Reykja­vík, en það mun fara fram 12.-13. febr­ú­ar. Atkvæð­is­rétt í flokksval­inu hafa bæði flokks­menn og stuðn­ings­menn flokks­ins, eldri en 16 ára.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2022

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár