Þrettán smit innanlands – hópsmit í kringum leikskóla í Reykjavík

Í gær greindust fleiri með COVID-19 inn­an­lands en á nokkrum öðrum degi síðan 23. mars. Átta voru utan sótt­kvíar og hinir höfðu verið stutt í sótt­kví.

Þrettán manns greindust með COVID-19 innanlands í gær. Fólk er hvatt til að fara í skimun við minnstu einkenni.
Þrettán manns greindust með COVID-19 inn­an­lands í gær. Fólk er hvatt til að fara í skimun við minnstu ein­kenni. Mynd: Arnar Þór Ingólfsson

Þrettán manns greindust með COVID-19 inn­an­lands í gær. Þrátt fyrir að fimm af þeim hafi verið í sótt­kví hafði hún staðið stutt yfir, sam­kvæmt til­kynn­ingu frá almanna­vörnum.

Þetta er mesti fjöldi smita sem greinst inn­an­lands frá 23. mars, er fjórtán manns greindust með veiruna. Degi síðar, 24. mars, ákváðu stjórn­völd að herða sótt­varna­ráð­staf­anir veru­lega og var fyrst slakað á þeim síð­asta fimmtu­dag.

Í til­kynn­ingu almanna­varna segir að af þeim þrettán ein­stak­lingum sem greindust í gær hafi tíu tengsl við leik­skól­ann Jörfa í Reykja­vík, en allir starfs­menn og nem­endur þar eru nú í sótt­kví. Tæplega 100 börn eru í leik­skól­anum og starfs­menn eru 33 tals­ins.

„Samkvæmt nýlegum leið­bein­ingum um heima­sótt­kví þurfa allir sem dvelja á sama heim­ili að vera í sótt­kví og því má búast við að mjög margir verði í sótt­kví þessu tengt næstu daga,“ segir í til­kynn­ingu almanna­varna. Í dag verður öllum börnum, for­eldrum og starfs­mönnum boðið að fara í skimun.

Sótt­varna­læknir og almanna­varnir hvetja líka alla þá sem hafa umgeng­ist starfs­menn eða börn á leik­skól­anum Jörfa síð­ustu vik­una til þess að fara í skimun og á það við um börn jafnt sem full­orðna. Einnig eru íbúar sem búa í næsta nágrenni leik­skól­ans hvattir til að fara í skimun – ástæðan er sögð mikil sam­skipti á milli fólks og krakk­arnir eðli­lega mikið á ferð­inni.

[adspot]

Í til­kynn­ingu almanna­varna segir að mik­il­vægt sé að allir sem finni fyrir minnstu ein­kennum sem gætu bent til COVID-19 fari í skimun.

„Til upp­rifj­unar geta ein­kenni COVID-19 verið mis­mun­andi milli ein­stak­linga og sumir fá væg ein­kenni en þau geta verið: hiti, hósti, and­þyngsli, kvef, háls­bólga, bein­verkir, höf­uð­verkur; sjald­gæfari ein­kenni eru ógleði, þreyta, upp­köst og skyndi­legt tap á bragð- og lykt­ar­skyni,“ segir í til­kynn­ing­unni.

Fólk ætti að fara í sýnatöku við lok veikinda

Almann­varnir segja að ef fólk verði veikt ætti það almennt ekki að snúa aftur til vinnu fyrr en það hefur fengið nei­kvæða nið­ur­stöðu úr sýna­töku, við lok veik­ind­anna, þrátt fyrir að hafa fengið nei­kvæða nið­ur­stöðu áður, til dæmis við upp­haf veik­inda.

„Stjórn­endur og atvinnu­rek­endur eru beðnir að huga sér­stak­lega að þessu,“ segir í til­kynn­ingu almanna­varna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár