Rússland hugsanlega bannað á Ólympíuleikum

Sér­stakur gerð­ar­dómur fyrir íþróttir hafn­aði áfr­í­un­ar­kröfu rúss­nesku ólymp­íu­nefnd­ar­innar um að öllu rúss­nesku frjáls­í­þrótta­fólki verði bannað að keppa á Ólymp­íu­leik­unum í Río sem hefj­ast í byrjun ágúst. Alþjóða ólymp­íu­nefndin mun kynna ákvörðun sína um hvort bannið muni taka til allra rúss­neskra íþrótta­manna á leik­unum um helg­ina.

Tvær sér­stakar rann­sókn­ar­nefndir sem könn­uðu lyfja­mis­ferli rúss­neskra íþrótta­manna hafa komið upp um stór­fellt lyfja­svindl á vegum rúss­neskra stjórn­valda. Á mánu­dag­inn kynnti rann­sókn­ar­nefnd undir for­ystu Richard McLaren nið­ur­stöðu sína um að stundað hafi verið víð­tækt lyfja­notk­unar- og lyfja­pró­fasvindl meðal rúss­neskra íþrótta­manna á Vetr­ar­ólymp­íu­leik­unum í Sotsjí árið 2014. Svindlið hafi verið gert undir leið­sögn íþrótta­mála­ráðu­neyt­is­ins í Moskvu.

Í kjöl­farið hafa ómað æ hávær­ari raddir um að rúss­neska ólymp­íulið­inu verði bannað að keppa á Ólymp­íu­leik­unum í Ríó. Óvíst er hins vegar hvort alþjóða ólymp­íu­nefndin muni grípa til þess ráðs að gera for­dæmi úr öllum ólymp­íu­förum Rúss­lands enda hafa ekki verið færðar sönnur á að allir hafi tekið þátt í svindlinu.

Thomas Bach, for­manni ólymp­íu­nefnd­ar­innar alþjóð­legu, hefur borist bréf frá tólf sam­tökum sem berj­ast gegn lyfja­mis­notkun í íþróttum þar sem hann er hvattur til að banna rúss­nesku ólymp­íu­nefnd­ina og meina íþrótta­mönnum á hennar vegum að keppa í Ríó.

Í bréf­inu, sem greint er frá á vef The Guardian, er þeim til­mælum beint til Bach um að hann þurfi að sinna skyldu sinni og taka afstöðu gegn „stofn­ana­væddum, rík­is­reknum lyfja­mis­ferlum og mis­notkun á íþrótta­mönnum“. Þannig verði orð­spor Ólymp­íu­leik­anna ekki fyrir hnekki.

Hvernig sem fer þá er ólík­legra en hitt að frjáls­í­þróttaliðið verði það eina sem bannað verði. Alþjóða kraft­lyft­inga­sam­bandið er sagt vera við það að banna rúss­neska kraft­lyft­inga­liðið, auk lið­anna frá Hvíta-Rúss­landi, Búlgaríu og Kasakstan.

Það er ekki víst að heið­ar­legir rúss­neskir íþrótta­menn geti keppt. Ef ólymp­íu­sam­bandið ákveður að úti­loka Rússland frá leik­unum munu íþrótta­menn­irnir sótt um und­an­þágu tak­ist þeim að sýna fram á sak­leysi sitt. Þá fá þeir keppn­is­rétt á leik­unum og keppa undir hlut­lausu flaggi Ólymp­íu­leik­anna.

Þær ákvarð­anir sem teknar verða nú í aldrag­anda leik­anna í Ríó munu auð­vitað setja mark sitt á keppn­ina. Alþjóða lyfja­eft­ir­lits­stofn­unin hefur sagt að eftir leik­ana verði unnið hörðum höndum að því að gera rúss­neskt íþróttaum­hverfi öruggt fyrir íþrótta­menn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

ólympíuleikar

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár