Fjarnámið hefur reynst mörgum nemendum erfið glíma

Vænt­um­þykja, umburð­ar­lyndi og sveigj­an­leiki hafa verið lyk­il­stef í fjar­kennslu Halldórs Björg­vins Ívars­sonar, kenn­ara við Fram­halds­skól­ann í Mos­fellsbæ. „Það er eins með nem­endur og okkur flest að þetta ástand dregur úr okkur, það tæmir tank­inn.“

Ég hef það bæri­legt, miðað við allt,“ segir Halldór Björgvin Ívarsson, kenn­ari við Fram­halds­skól­ann í Mos­fellsbæ. Hann er þó léttur í bragði. „Ég er staddur í úti­búi FMOS í Kópa­vog­inum,“ segir hann hlæj­andi. „Útibúið“ er heim­ili hans. Þar situr hann á skrif­stofu sinni að fara yfir verk­efni og setja saman ný. „En ég er í sömu stöðu og flestir í þessu ástandi, að vinna að því að kom­ast í gegnum þetta. Þetta er lang­hlaup og tekur þannig séð á, bæði í vinn­unni sem og öðru.“

Það á einnig við um nem­endur hans. Flestir hafa „haldið mjög góðum sjó“ í sínu námi eftir að sam­komu­bann var sett á og fjar­nám tók við. En svo eru það aðrir sem eiga erfitt. Finnst erfitt að fóta sig í þessum nýja veru­leika, gengur verr en áður að koma sér að verki og hafa dreg­ist aftur úr í nám­inu. „Það er líka rétt að hafa í huga að við erum ekki bara í fjar­námi heldur í fjar­námi í þessum aðstæðum þannig að það er að fleiru að huga en nám­inu,“ minnir Halldór á. „Nemendur eru að velta fyrir sér vinnu í sumar, í fjöl­skyldum þeirra hafa verið veik­indi og þeir sjálfir hafa þurft að vera í sótt­kví. Það er því ýmis­legt sem flétt­ast inn í þetta. Fjar­kennsla í eðli­legu árferði væri ann­ars konar en núna.“

Halldór ólst upp á Djúpa­vogi og gekk þar í grunn­skóla, „en við skulum ekk­ert ræða neitt um árang­ur­inn þar,“ bætir hann við og hlær. Við tók nám í Fram­halds­skól­anum í Austur-Skafta­fells­sýslu þaðan sem hann varð stúd­ent vorið 1993. Eftir stutt náms­hlé lá leiðin svo í Háskóla Íslands þar sem hann lagði stund á bæði sagn­fræði og stjórn­mála­fræði. „Og síðan hef ég verið að kenna.“

Fyrsti kennslu­vetur Halldórs hófst í Varm­ár­skóla í Mos­fellsbæ haustið 1998. Samhliða kennsl­unni tók hann kennslu­rétt­indi utan skóla frá Háskól­anum á Akureyri. Í Varm­ár­skóla starf­aði hann í fjórtán ár, síðan í nokkur ár í Árbæj­ar­skóla og eina önn í Breið­holts­skóla . Frá vor­inu 2017 hefur hann svo kennt við Fram­halds­skól­ann í Mos­fellsbæ.

Góður andi í skólahúsinu

Fram­halds­skól­inn í Mos­fellsbæ tók til starfa árið 2009 í gömlu skóla­húsi að Brú­ar­landi en flutti inn í nýja og glæsi­lega bygg­ingu 2014. „Þegar ég mætti í atvinnu­við­talið og gekk í fyrsta skipti inn í bygg­ing­una fann ég strax að það var góður andi í hús­inu.“

Halldór kennir fyrst og fremst sögu en þessa önn er hann einnig með áfanga í áhuga­ljós­myndun og hluta úr tölvu­á­fanga. Í ljós­mynda­á­fang­anum bað hann nem­endur sína að mynda eitt­hvað í tengslum við fjar­námið. Margrét Linda Krist­jáns­dóttir, einn nem­enda hans, ákvað að myndefnið skyldi verða kenn­ar­inn sjálfur og má mynd hennar sjá hér efst í grein­inni.

„Skóla­árið byrj­aði vel eins og öll önnur skólaár,“ rifjar Halldór upp. „Ég mætti eftir sum­arið fullur til­hlökk­unar, með bros á vör og gleði í hjarta, að hitta nem­endur og takast á við verk­efnin.“ Vorönnin fór einnig vel af stað í Mos­fells­bænum en fljót­lega fóru að ber­ast fréttir utan úr heimi af veiru­far­aldri sem breidd­ist hratt út. „Svo kom sam­komu­bannið og þá breytt­ist allt.“

Viku áður en sam­komu­bannið var til­kynnt taldi hann sig vita í hvað stefndi. Viðbrögð yfir­valda í Wuhan í Kína og á Ítalíu gáfu tón­inn fyrir það sem mögu­lega var í vændum. „Það var við­búið að okkar við­brögð yrðu sam­bæri­leg. Þannig að ég var búinn að und­ir­búa mig ágæt­lega og hafði til dæmis tekið fjar­kennslu­æf­ingar með nem­end­unum í skól­anum.“

Svona birtist Halldór nemendum sínum. Í áfanganum áhugaljósmyndum var eitt verkefnið að taka mynd sem tengdist fjarnáminu.
Svona birt­ist Halldór nem­endum sínum. Í áfang­anum áhuga­ljós­myndum var eitt verk­efnið að taka mynd sem tengd­ist fjar­nám­inu.

Halldór seg­ist ágæt­lega tölvu­væddur og það að fara inn í netheima hafi ekki reynst honum stór­kost­lega flókið skref. Í Fram­halds­skól­anum í Mos­fellsbæ eru allir nem­endur með tölvur í kennslu­stundum, annað hvort sínar eigin eða fá þær að láni hjá skól­anum og þeir því vanir allri tölvu­vinnu.

Föstu­dag­inn 13. mars var til­kynnt að sam­komu­bann yrði sett á eftir helg­ina og að öllum fram­halds­skólum og háskólum lokað. „Þessa helgi voru flestir kenn­arar á haus,“ segir Halldór. „Og það var nán­ast unnið allan sól­ar­hring­inn.“

Mikilvægt að fara vel af stað

Eins og gengur og ger­ist í nýjum aðstæðum var ýmis­legt prófað í því að miðla kennslu­efn­inu og vinna verk­efni. Að mati Halldórs skipti miklu máli að fara vel af stað og gefa góðan tón strax frá upp­hafi.

Misjafnt er hvaða leiðir kenn­arar fóru í fjar­kennsl­unni en Halldór ákvað að kenna áfram eftir stunda­skrá, rétt eins og hann hafði gert í kennslu­stof­unni vik­urnar á undan. Í sam­skiptum við nem­endur valdi hann að nota for­ritið Discord sem hentar meðal ann­ars vel til hópa­vinnu. Forritið er auk þess þekkt í tölvu­leikja­heim­inum og margir nem­endur kunna því á það. „Oft var það þannig að þau voru að kenna mér eitt og annað sem snýr að þessu for­riti. Svo voru þau einnig að hjálpa mér við að kenna öðrum nem­endum á það.“

En hvernig er kennslu­stund í fjar­kennsl­unni hjá Halldóri?

Hann reynir að vera mættur tím­an­lega við sína tölvu og þegar tím­inn byrjar eru nem­end­urnir flestir sestir við og „komnir inn“. Þá býður Halldór öllum góðan dag­inn, eins og vera ber, og kennslan hefst. Spjallað er um verk­efnin, sum vinna nem­endur hver fyrir sig en í öðrum er hópnum skipt upp og 3-4 vinna saman. Við það nýt­ast kostir Discord-for­rits­ins vel. „Ég flakka svo á milli hópanna og tek stöð­una,“ útskýrir Halldór.

Ekki sama tenging og inni í kennslustofu

Umræður eru stór þáttur í sögu­kennslu. Halldór segir að við núver­andi aðstæður nái hann ekki alveg sömu teng­ingu við nem­endur og inni í kennslu­stof­unni. „Þau eru mis­jafn­lega frökk að tjá sig í gegnum netið, sumum finnst það óþægi­legt. Umræð­urnar í gegnum netið virka betur í minni hópum. En segja má að það sama eigi við í kennslu­stof­unni .“

Flestum nem­endum fannst til­hugs­unin um að fara í fjar­námið frekar spenn­andi að sögn Halldórs. Fyrir ein­hverja þeirra var þetta þægi­legra og betra og þegar til greina kom eftir 4. maí, er fyrstu skref voru stigin í aflétt­ingu sam­komu­banns, að færa kennsl­una aftur að ein­hverju leyti inn í skól­ann vildi meiri­hluti nem­enda ljúka önn­inni í fjar­námi.

Og það var lend­ingin. Nem­end­unum býðst hins vegar að hitta Halldór og aðra kenn­ara í skól­anum ef þeir kjósa.

Halldór lagði ýmislegt á sig til að fjarkennslustundirnar kæmu sem best út. Hann kom m.a. upp svokölluðum grænskjá bak við sig á heimaskrifstofunni. Þannig gat hann sett ýmsan bakgrunn til að lífga upp á kennsluna.
Halldór lagði ýmis­legt á sig til að fjar­kennslu­stund­irnar kæmu sem best út. Hann kom m.a. upp svoköll­uðum grænskjá bak við sig á heima­skrif­stof­unni. Þannig gat hann sett ýmsan bak­grunn til að lífga upp á kennsl­una.

Vel getur verið að sögn Halldórs að runnið hafi upp fyrir mörgum að und­an­förnu hversu mikið sam­fé­lag skóli er. „Er ekki ein­hvers staðar sagt að eng­inn viti hvað átt hefur fyrir en misst hefur? Ég fann það líka á sjálfum mér, það var mjög gott að mæta aftur í skól­ann 4. maí og hitta sam­starfs­fólkið og þá nem­endur sem þangað hafa komið. Við starfs­menn höfum verið að hitt­ast á fjar­fundum en það kemur aldrei í stað­inn fyrir að setj­ast niður og spjalla saman augliti til auglitis. Mikill hluti af því sem við lærum í skóla er ekki í bókum eða á net­inu heldur liggur í sam­skipt­unum.“

Nemendur í Fram­halds­skól­anum í Mos­fellsbæ eru flestir á fram­halds­skóla­aldri en margir eru þó eldri, stundum nem­endur sem ekki hafa fundið sína fjöl í öðrum skólum. „Nemendum líður mis­jafn­lega með þeta allt saman. Staða þeirra heima fyrir er líka ólík. Flestum hefur gengið mjög vel að tækla þetta verk­efni, öðrum hefur reynst það erfitt.“

Að fóta sig í nýjum aðstæðum

Halldór á í reglu­legum sam­skiptum við hvern og einn nem­anda í gegnum netið en svo hefur hann líka hringt í þá sem eiga í erf­ið­leikum í fjar­nám­inu. „Þeim finnst erfitt að halda utan um námið, vinna verk­efnin og segja að fjar­námið eigi ekki við þá. Ég held að það sé stað­reynd, og ástæðu­laust að fela það eitt­hvað, að það verða nem­endur sem falla út af þessu ástandi. Það nást ekki allir í land.“

Að hans mati ætti það ekki að koma mikið á óvart að sumum nem­endum hafi reynst erfitt að fóta sig í þessum nýju kring­um­stæðum. „Það er stórt skref fyrir marga að fær­ast úr stað­námi yfir í fjar­nám og reyn­ist mörgum hverjum erfið glíma.“

Ástæða er að sögn Halldórs til að hafa áhyggjur af því að ein­hverjir missi flugið og skili sér ekki í skól­ana í haust. „Við þurfum öll að vera með­vituð um það og reyna að kom­ast að því hvaða nem­endur eru í þeirri hættu og halda eins vel utan um þá og við mögu­lega getum.“ Það er þó hans von og til­finn­ing að flestir eigi eftir að skila sér í námið í haust. Þó að önnin fari ef til vill ekki í sögu­bæk­urnar fyrir fram­úr­skar­andi náms­ár­angur hjá sumum þá sé mik­il­vægt að horfa á stóru mynd­ina.

„Þetta er lang­hlaup. Það er eins með nem­endur og okkur flest að þetta ástand dregur úr okkur, það tæmir tank­inn. Flestir mínir nem­endur hafa verið að halda sjó mjög vel, hafa staðið sig virki­lega vel og eiga hrós skilið fyrir flotta frammi­stöðu í þessu nýja námsum­hverfi og þessum nýju aðstæðum.“ Kom til dæmis í ljós þegar Halldór tók saman mæt­ingu fyrir fjar­náms­vik­urnar fram að páska­fríi að í einum áfang­anum var hún að með­al­tali betri en fyrir fjar­námið. Fyr­ir­komu­lagið hentar því klár­lega mörgum.

Í einum áfanga Halldórs var mæting nemenda betri í fjarnámi en í staðnáminu.
Í einum áfanga Halldórs var mæt­ing nem­enda betri í fjar­námi en í stað­nám­inu.

Í sumar ætlar Halldór að fara yfir það sem hann hefur lært, hvað hefur reynst vel og hvað betur hefði mátt fara í kennsl­unni. „Ég á eftir að fara í góða nafla­skoðun þegar skóla­ár­inu lýkur og gera upp þessa reynslu. Skoða hvort að það sé eitt­hvað sem ég geti heim­fært yfir í stað­námið. Ég sé til dæmis fyrir mér að þetta sam­skipta­form geti gagn­ast nem­endum sem ná af ein­hverjum ástæðum ekki að sinna stað­námi reglu­lega.“

Vor­önn­inni fer senn að ljúka. Önn sem á eftir að vera í minnum höfð í ár og ára­tugi jafn­vel. Þegar allir pökk­uðu saman í skól­unum og sett­ust við tölv­urnar heima. Héldu áfram. Að minnsta kosti flestir. Bæði kenn­arar og nem­endur hafa lagt mikið á sig, eins og Halldór lýsir. „Þetta hefur í hrein­skilni sagt reynt mikið á margt fólk,“ segir hann og rifjar upp orð Lilju Alfreðs­dóttur mennta­mála­ráð­herra sem sagði í við­tali nýverið að inn í þetta dæma­lausa verk­efni, að halda uppi skóla­starfi í miðjum veiru­far­aldri, hafi verið farið með „ákveð­inni vænt­um­þykju, umburð­ar­lyndi og sveigj­an­leika.“

Þetta er einmitt málið, segir Halldór. „Þetta er það sem kenn­arar hafa reynt að til­einka sér í þessum aðstæðum. Ráð­herr­ann hitti þarna naglann á höf­uðið.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið undanfarið ár