Vill að þeir sem sýna af sér „óæskilega hegðun“ verði tilkynntir til stjórnvalda svo hægt sé að „grípa til fyrirbyggjandi aðgerða“

Ólöf Nordal, inn­an­rík­is­ráð­herra og odd­viti á lista Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Reykja­vík­ur­kjör­dæmi suður, telur að fram undan séu tímar þar sem grípa þurfi til aðgerða í þágu öryggis og friðar sem fólk kunni að upp­lifa sem tak­mörkun á mann­rétt­indum sínum. Vaxandi útlend­inga­hatur sér­stakt áhyggju­efni.

Fram undan eru tímar þar sem grípa þarf til ýmissa aðgerða til að tryggja öryggi og frið, meðal ann­ars úrræða sem fólk gæti upp­lifað sem tak­mörkun á mann­rétt­indum sínum. Þetta er full­yrt í skýrslu Ólafar Nordal inn­an­rík­is­ráð­herra um mann­rétt­inda­mál sem dreift var á Alþingi í gær. Í skýrsl­unni er hvatt til þess „að ein­stak­lingar sem sýna af sér óæski­lega hegðun séu til­kynntir til stjórn­valda svo hægt sé að grípa til fyr­ir­byggj­andi aðgerða“. Ekki kemur fram hvort þarna sé verið að boða for­virkar rann­sókn­ar­heim­ildir, en haft hefur verið eftir Ólöfu Nordal í fjöl­miðlum að rétt sé að skoða mögu­leik­ann á heim­ildum til slíkra rann­sóknar­úr­ræða.

„Fram undan eru tímar þar sem ljóst er að grípa verður til ýmissa aðgerða á grund­velli alþjóða­samn­inga til að tryggja öryggi og frið. Hætt er við að litið verði á ýmsar af þeim aðgerðum sem tak­mörkun á mann­rétt­indum ein­stak­linga þrátt fyrir að slíkir samn­ingar séu almennt gerðir með þeim for­orðum að virða beri mann­rétt­indi að fullu,“ segir í kafla skýrsl­unnar sem fjallar um helstu áskor­anir sem Íslend­ingar standa frammi fyrir. „Má hér nefna sem dæmi upp­lýs­inga­öflun vegna örygg­is­mála ann­ars vegar og frið­helgi einka­lífs og vernd þess hins vegar. Mik­il­vægt er því að skapa traust um þær aðgerðir sem hugs­an­lega munu telj­ast nauð­syn­legar.“ 

Bent er á að umræða um örygg­is­mál sé nátengd mann­rétt­indum. „Í sinni ein­föld­ustu mynd má skil­greina öryggi ein­stak­lings­ins eða sam­fé­lags­ins út frá því hvort mann­rétt­indi séu virt bæði af stjórn­völdum og öðrum,“ segir í skýrsl­unni.

Vaxandi útlendingahatur sérstakt áhyggjuefni

Fram kemur að öfga­hyggja og vax­andi útlend­inga­hatur vegna komu hæl­is­leit­enda og flótta­manna til Evrópu sé sér­stakt áhyggju­efni.

„Barátta gegn öfga­hyggju og hat­urs­glæpum er mik­il­vægur liður í því að tryggja mann­rétt­indi til fram­tíðar. Stjórn­völd þurfa að móta sér stefnu um for­varnir gegn öfga­hyggju. Aukið sam­starf félags­þjón­ustu og lög­reglu getur skipt sköpum í bar­átt­unni gegn öfga­hyggju. Einnig þarf að byggja upp traust á milli almenn­ings og stjórn­valda þannig að ein­stak­lingar sem sýna af sér óæski­lega hegðun séu til­kynntir til stjórn­valda svo hægt sé að grípa til fyr­ir­byggj­andi aðgerða. Viðbrögð stjórn­valda þurfa að vera með áherslu á for­varnir og að reynt sé að aðstoða við­kom­andi ein­stak­linga til að taka eðli­legan þátt í sam­fé­lag­inu. Má í þessu sam­bandi benda á að dönsk stjórn­völd hafa sett sér stefnu um ,,de-radicalisation“ sem byggir á hand­leiðslu fyrir ein­stak­linga sem aðhyll­ast öfga­hyggju. Sam­starfið byggir á náinni sam­vinnu skóla, félags­þjón­ustu og lög­reglu.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár