Átröskun á jólunum: „Ég borðaði mandarínu á aðfangadag“

„Þetta er sjúkdómur sem fer ekki í jólafrí,“ segir Elín Ósk Arnars­dóttir, sem hefur glímt við átröskun í þrettán ár. Hún segir jóla­hátíðina einn erfiðasta tíma ársins fyrir fólk með sjúk­dóminn þar sem matur spilar stórt hlutverk og úrræðum fækkar fyrir sjúklinga. Elín er nú á batavegi og hvetur fólk til að tala hlutlaust um mat og sleppa því að refsa sér.

Elín Ósk Arnarsdóttir
Elín Ósk Arn­ars­dóttir Segir að átröskun sé sjúk­dómur sem fari ekki í jóla­frí. Mynd: Golli

„Jólin eru martröð,“ segir Elín Ósk Arnars­dóttir um hátíðina en hún hefur glímt við átröskun í rúman áratug. Sjúk­dómurinn getur haft alvarlegar líkamlegar og andlegar afleiðingar og er dánar­tíðni hans sú hæsta á meðal geðsjúk­dóma í heiminum. „Ég finn til með þeim sem eru að ganga í gegnum það sem ég hef verið að ganga í gegnum síðustu þrettán ár,“ segir Elín. 

Samkvæmt upplýsingum frá Land­spítalanum glíma sex prósent kvenna og tvö prósent karla við átröskun hverju sinni. Tíu prósent allra kvenna á Íslandi munu glíma við átröskun á einhverjum tíma­punkti í lífi sínu.

„Jólin eru martröð“

Elín er nú á góðum batavegi og hlakkar í fyrsta skipti í langan tíma til jólanna. Heimildin tók hana tali og spurði hana hvernig það er að glíma við átröskun yfir jóla­hátíðirnar, fyrstu jólin í bata og hvernig samfélagið getur stuðlað að heilbrigðara sambandi …

Kjósa
11
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár