Brottvísun systkinanna frestað fram í næstu viku

Vísa átti systkin­unum Ali, Kayan, Saja og Jadin og for­eldrum þeirra úr landi í dag en þeirri brott­vísun hefur verið frestað. „Þá munu þau verða flutt í beinu einka­flugi til Grikk­lands í boði íslenskra yfir­valda,“ segir Sema Erla Serdar.

Ali, Kayan, Saja og Jadin
Ali, Kayan, Saja og Jadin Mynd: Facebook/Sema Erla

Brott­vísun systk­in­anna Ali, Kayan, Saja og Jadin og for­eldra þeirra hefur verið frestað fram í næstu viku. Sema Erla Serdar, stofn­andi Solaris – hjálp­ar­sam­taka fyrir hæl­is­leit­endur og flótta­fólk á Íslandi, greinir frá þessu á Facebook-síðu sinni og stað­festir þetta í sam­tali við Kjarnann og segir að ekki sé komin nákvæm dag­setn­ing brott­vís­unar. Til stóð að vísa þeim úr landi í dag.

Rauði kross­inn á Íslandi mót­mælti í gær fyr­ir­hug­uðum brott­vís­unum barna­fjöl­skyldna til Grikk­lands þar sem þær hafa alþjóð­lega vernd. Í til­kynn­ingu frá Rauða kross­inum kemur fram að íslensk stjórn­völd hafi hingað til ekki sent börn frá Íslandi til Grikk­lands en nú hafi að minnsta kosti fimm fjöl­skyldur fengið til­kynn­ingu um að íslensk stjórn­völd muni flytja þau til Grikk­lands á næstu dögum og vikum.

„Á sama tíma ber­ast fregnir af hræði­legu ástandi við Mið­jarð­ar­haf, t.a.m. drukknun ungs drengs þegar hann og fjöl­skylda hans fóru yfir hafið frá Tyrk­landi á ótryggum bát. Þá er afar við­kvæmt ástand við landa­mæri Tyrk­lands og Grikk­lands þar sem fréttir herma að um 13.000 flótta­menn bíði inn­göngu. Þá ber­ast einnig fregnir af harð­ræði grísku lög­regl­unnar og öðrum yfir­völdum og að fólki sé meinað inn­göngu. Mikil ólga og andúð fólks í Grikk­landi á flótta­fólki er einnig áber­andi í fjöl­miðlum sem ætla má að fari aðeins vax­andi,“ segir í til­kynn­ingu Rauða kross­ins.

Flugvél fyllt af barnafjölskyldum?

Sema Erla segir í stöðu­upp­færslu sinni á Facebook að systk­inin Ali, Kayan, Saja og Jadin og for­eldrar þeirra verði flutt í beinu einka­flugi til Grikk­lands í boði íslenskra yfir­valda. „Þar til annað kemur í ljós geri ég ráð fyrir því að sú flug­vél hafi ekki verið tekin á leigu fyrir sex ein­stak­linga og verði því fyllt af barna­fjöl­skyldum og öðrum ein­stak­lingum sem sótt hafa um vernd á Íslandi en íslensk yfir­völd hafa hafnað og ætla að end­ur­senda á einu bretti til Grikk­lands – sem vekur upp ansi óþægi­legar til­finn­ingar,“ skrifar hún.

Þá segir hún að Íslend­ingar standi á tíma­mótum.

„Íslensk stjórn­völd hafa nú nokkra daga til þess að ákveða hvort fram­lag okkar til stærstu mann­úð­ar­krísu sög­unnar verði að veita flótta­börnum í við­kvæmri stöðu það skjól og öryggi sem þau þurfa nauð­syn­lega á að halda eða hvort fram­lag okkar verði að senda börn á flótta bein­ustu leið til hel­vítis, eins og stöð­unni á Grikk­landi er lýst í dag. Hvort fram­lag okkar muni ein­kenn­ast af mannúð og sam­kennd eða óskilj­an­legri grimmd og for­kast­an­legum aðgerðum sem fel­ast í að senda börn á flótta í aðstæður sem ein­kenn­ast af neyð­ar­á­standi, öfga­kenndu ofbeldi, óreiðu, óör­yggi, ótta og eymd.

Boltinn er í ykkar höndum kæru stjórn­völd. Það er undir ykkur komið að ákveða nú hvernig sagan muni dæma okkur fyrir með­ferð okkar á fólki á flótta og börnum í neyð!“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

hælisleitendur

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár