Fyrrverandi ráðherra VG gagnrýnir flokkinn vegna sölunnar á Mílu

Jón Bjarna­son, fyrr­ver­andi ráð­herra, segir að hann og margir aðrir þrái að sjá for­ystu í íslenskum stjórn­málum sem standi með þjóð­inni og end­ur­heimti grunn­inn­viði í almanna­eigu.

Þráir stjórnmálamenn sem standa með þjóðinni
Þráir stjórn­mála­menn sem standa með þjóð­inni Jón Bjarna­son trúir vart sínum eigin eyrum varð­andi söl­una á Mílu. Mynd: Pressphotos

„Ég man þá tíma á Alþingi þegar beittur stjórn­mála­flokkur barð­ist gegn einka­væð­ingu og sölu Símans og sér­stak­lega grunn­nets­ins og vildi tryggja almanna­eign á þess­ari líf­taug þjóð­ar­innar. Við hétum því þá að end­ur­heimta grunn­netið við fyrsta tæki­færi.“

Þetta skrifar Jón Bjarna­son, fyrr­ver­andi þing­maður og ráð­herra Vinstri grænna, í grein í Morg­un­blað­inu í dag. Í grein­inni birt­ist lítt dulin gagn­rýni Jóns á fyrr­ver­andi flokks­systk­ini sín vegna aðgerða­leysis þeirra þegar kemur að sölu fjar­skipta­inn­viða­fyr­ir­tæk­is­ins Mílu til franska sjóð­stýr­inga­fyr­ir­tæk­is­ins Ardian France SA. „Einu af óska­börnum þjóð­ar­innar er fórnað opin­ber­lega á alt­ari alþjóð­legrar gróða­hyggju,“ skrifar Jón og seg­ist bæði dol­fall­inn yfir frétt­unum og jafn­framt trúi hann vart sínum eigin eyrum.

„Enginn Land­spít­ali kom, engin jarð­göng, engar skuldir greiddar“

Jón rekur í grein­inni sögu einka­væð­ingar Símans árið 2005 og seg­ist vel muna það þegar salan á Símanum hafi verið „keyrð í gegnum þingið af miklu offorsi“. Haldið hafi verið á lofti að hægt yrði að gera ótal margt fyrir þá fjár­muni sem fengjust fyrir Símann; byggja nýjan Land­spít­ala, leggja Sunda­braut og greiða niður skuldir, svo fátt eitt væri nefnt. Ekkert af þessu hafi orðið að veru­leika, skrifar Jón. „Enginn Land­spít­ali kom, engin jarð­göng, engar skuldir greiddar. Og sölu­verð Símans aldrei greitt.“

Jón minnir líka á að grunn­net Símans hafi ekki átt að aðskilja frá móð­ur­fyr­ir­tæk­inu en það hafi engu að síður verið gert, þvert á lof­orð, og það þrátt fyrir að kann­anir hafi sýnt að mik­ill meiri­hluti þjóð­ar­innar hafi viljað halda grunn­inviðum þjóð­ar­innar í almanna­eigu.

Lög og reglur dugi skammt gegn valdi alþjóðlegra auðhringa

Jón víkur síðan aftur að söl­unni á Mílu og segir að stjórn­völd séu nú á handa­hlaupum undan sjálfum sér við að reyna að með laga­flækjum að bjarga grunn­rétti þjóð­ar­innar. Verið sé að þyrla ryki í augu almenn­ings.

Því skorar Jón á stjórn­völd að stöðva söl­una á Mílu og end­ur­heimta fyr­ir­tækið í almanna­eigu. „Við mörg þráum að sjá for­ystu í stjórn­málum sem taki af skarið og standi með þjóð­inni og byggðum lands­ins í þessu stóra máli. Við lærðum það í banka­hrun­inu 2009 að betra er að ráða grunn­stoðum sam­fé­lags­ins sjálf. Einhver lög og reglur til heima­brúks duga skammt gegn valdi alþjóð­legra auð­hringa. Yfir­lýs­ingar hins nýja franska kaup­anda eru þær sömu og hjá íslenskum ráð­herrum sem ætl­uðu aldrei að selja Símann.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (4)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Ásgeir Överby skrifaði
    Það er eins og Jón hafi gleymt því að Katrín gerði son hans að Seðlabankastjóra?
    0
  • Landsnet næst?
    0
  • OÖM
    Oddur Örvar Magnússon skrifaði
    “. Haldið hafi verið á lofti að hægt yrði að gera ótal margt fyrir þá fjármuni sem fengjust fyrir Símann; byggja nýjan Landspítala, leggja Sundabraut og greiða niður skuldir, svo fátt eitt væri nefnt. Ekkert af þessu hafi orðið að veruleika, skrifar Jón. „Enginn Landspítali kom, engin jarðgöng, engar skuldir greiddar. Og söluverð Símans aldrei greitt.“
    Það er ekki bara Kasper, Jesper og Jónatan.
    0
  • Viðar Magnússon skrifaði
    Það er gott að Jón sé vaknaður og sér hverslags flokkur Vinstri Græn er orðin undir stjórn katrínar Jakobsdóttur
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár