Guðni Th. fagnar framboði Davíðs

Guðni Th. telur ekki að svart­nætti sé framundan ef ein­hver annar en Davíð Oddsson eða Ólafur Ragnar Grímsson verði for­seti. Þeirra tími sé lið­inn. Hann hefur líka svarað skýrt hver afstaða hans til Icesave-samn­inga var.

Guðni Th. Jóhann­es­son fagnar því að Davíð Oddsson hafi ákveðið að bjóða sig fram til emb­ættis for­seta Íslands. Hann hafi heyrt af fram­boð­inu í gær og því hafi yfir­lýs­ing Davíðs ekki komið sér neitt mjög á óvart. Nú taki hann þátt í að móta sög­una, í stað þess að skrifa bara um hana sem sagn­fræð­ingur. Ákvörðun Davíðs hafi engin áhrif á ákvörðun Guðna að bjóða sig fram til for­seta, en Guðni til­kynnti um ákvörðun sína síð­ast­lið­inn fimmtu­dag. Þetta kom fram í við­tali við Guðna í útvarps­þætt­inum Sprengisandi á Bylgj­unni í dag, sem er í fyrsta sinn í umsjón Páls Magn­ús­sonar, fyrrum útvarps­stjóra.

Davíð til­kynnti í sama þætti í morgun að hann ætl­aði að bjóða sig fram. Taldi Davíð sér það m.a. til tekna að vera mann sem sundrar ekki fólki, sem sé óhræddur við að taka ákvarð­anir, geti brugð­ist við og láti engan rugla í sér. Þjóðin þekkti hans kosti og galla og því kæmi Davíð henni ekki á óvart. Guðni sagði að sú mynd sem Davíð dró upp af sjálfum sér í við­tal­inu væri í sam­ræmi við þá sem sagn­fræð­ingar myndu fall­ast á. Það sé ekki svart­nætti framundan án þess að „vera undir handjaðri Davíðs eða Ólafs Ragnars." Þeirra tími sé að mati Guðna lið­inn, en auð­vitað sé það fólks­ins að ákveða það.

Guðni seg­ist ekki sam­mála þeim rök­semd­ar­færslum sem Davíð færði fyrir fram­boði sínu. Hún væri sam­hljóma því sem Ólafur Ragnar Grímsson, for­seti Íslands, hafi fært fyrir fram­boði sínu. Þ.e. að þeir verði að standa vakt­ina því að svo miklir óvissu­tímar séu nákvæm­lega núna.

Svaraði spurningum um afstöðu til Icesave

Í Sprengisandi svar­aði Guðni því skýrt hver afstaða hans væri til Icesave-máls­ins. Guðni benti á að þegar það mál reið yfir hafi hann ekki verið í for­seta­fram­boði, heldur sagn­fræð­ingur úti í bæ. Hann hafi ekki komið á ákvörð­unum um málið líkt og sitj­andi for­seti né hafi hann verið for­maður banka­stjórnar Seðla­banka Íslands þegar Icesave-samn­ing­arnir urðu að veru­leika, eins og Davíð var. Því hafi staða hans verið allt önnur en þeirra tveggja.

En Guðni sagði skýrt að varð­andi Icesave I, hinn svo­kall­aða Svav­ars­samn­ing, þá hafi ein­ungis 64 ein­stak­lingar tekið ákvörðun í því máli. Þeir hafi verið þing­menn þjóð­ar­innar, en Alþingi sam­þykkti þá og inn­leiddi í lög, og Ólafur Ragnar Grímsson, sem skrif­aði undir lögin. Samn­ing­unum hafi hins vegar verið hafnað af Bretum og Hol­lend­ingum sem sættu sig ekki við þá að öllu leyti. Í Icesave II hafi hann kosið á móti samn­ing­unum en með Icesave III, samn­ingnum sem kenndir hafa verið við Lee Buchheit.

Guðni segir að Ólafur Ragnar hafi verið að mörgu leyti góður for­seti, en að mörgu leyti ekki. Hann hafi farið fram úr sér fyrir banka­hrun í þjónkun við útrás­ina. Það hafi líka mögu­lega verið mis­tök hjá Ólafi Ragnars að hafa sam­þykkt Icesave I. Þá hafi sú ákvörðun Ólafs Ragnars að bjóða sig fram í sjötta sinn verið röng. En á heild­ina hafi Ólafur Ragnar verið far­sæll for­seti.

Guðni segir að for­seta­fram­boð sitt verði háð á jákvæðum og skemmti­legum nótum. Hann muni aldrei hvetja fólk til að kjósa sig vegna þess að hinir séu svo slæmir. „Svo sjáum við hvað setur."

Hann telur ekki óhugs­andi að Ólafur Ragnar dragi fram­boð sitt til baka. „Kannski lítur hann svo á að á sjón­ar­sviðið sé kom­inn óskak­andi­dat­inn og því dragi hann sig í hlé."

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

forseti2016

Fréttirforseti2016

Hvert atkvæði Davíðs kost­aði rúm­lega 1.100 krónur

Davíð Oddsson, rit­stjóri Morg­un­blaðs­ins, greiddi 1.103 krónur fyrir hvert atkvæði sem hann fékk í for­seta­kosn­ing­unum í sumar. Hann fékk rúm­lega 25 þús­und atkvæði og hafn­aði í fjórða sæti í kosn­ing­unum, með 13,7 pró­sent atkvæða. Andri Snær Magnason greiddi næst mest þeirra sem skip­uðu efstu sætin í kjör­inu. Hann greiddi 576 krónur fyrir hvert greitt atkvæði, en Andri Snær hlaut 14,6...
Fréttirforseti2016

Guðni Th. myndi rétt merja Höllu í ann­ari umferð for­seta­kosn­inga

Guðni Th. Jóhann­es­son, nýkjör­inn for­seti Íslands, myndi fá 52 pró­sent atkvæða ef haldin yrði önnur umferð í for­seta­kosn­ing­unum þar sem valið stæði á milli tveggja efstu fram­bjóð­end­anna. Halla Tóm­as­dóttir, sem fékk næst flest atkvæði, myndi fá 48 pró­sent atkvæða í slíkri kosn­ingu. Þetta kemur fram í könnun sem MMR hefur gert um málið. Eldra fólk studdi frekar Guðna Th. en...
Fréttirforseti2016

Skiptir engu máli að for­seti sé ekki í þjóð­kirkj­unni

Það er ekk­ert atriði að for­seti Íslands sé ekki í þjóð­kirkj­unni, segir verð­andi for­seti Íslands, Guðni Th. Jóhann­es­son. Það sé trú­frelsi á Íslandi sem sé varið í stjórn­ar­skrá. „Forseti á að geta staðið utan trú­fé­laga kjósi hann það. Hann á að geta verið í hvaða trú­fé­lagi sem er. Ég mun rækja mínar skyldur gagn­vart kirkj­unni eins og vera ber þrátt...

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár