Nýtt brunavarnasvið HMS á Sauðárkróki nærri fullmannað

Búið er að ráða fram­kvæmda­stjóra, for­varna­full­trúa og sér­fræð­inga í bruna­vörnum og slökkvi­starfi á bruna­varna­sviði HMS sem tekur til starfa á Sauð­ár­króki 1. októ­ber. Enginn starfs­maður í deild bruna­varna í Reykja­vík mun starfa á nýju sviði á Sauð­ár­króki.

Nýtt brunavarnasvið Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar tekur til starfa á Sauðárkróki þann 1. október næstkomandi.
Nýtt bruna­varna­svið Húsnæðis- og mann­virkja­stofn­unar tekur til starfa á Sauð­ár­króki þann 1. októ­ber næst­kom­andi. Mynd: Wikimedia

Sex starfs­menn hafa verið ráðnir til starfa á nýju bruna­varna­sviði Húsnæðis- og mann­virkja­stofn­unar (HMS) á Sauð­ár­króki. Nýtt bruna­varna­svið HMS mun taka til starfa á starfs­stöð stofn­un­ar­innar á Sauð­ár­króki þann 1. októ­ber næst­kom­andi. Tilkynnt var um flutn­ing starf­sem­innar til Sauð­ár­króks í byrjun sum­ars en flutn­ing­ur­inn er liður í áformum rík­is­stjórn­ar­innar um að fjölga opin­berum störfum á lands­byggð­inni. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá HMS.

[links]Fyrr í þessum mán­uði fjall­aði Kjarninn um ráðn­ingu Þorgeirs Óskars Mar­geirs­sonar í stöðu fram­kvæmda­stjóra en nú er búið að ráð for­varna­full­trúa og fjóra sér­fræð­inga á sviði bruna­varna og slökkvi­starfs. Alls bár­ust á þriðja tug umsókna um störfin. Fimm af starfs­mönn­unum sex munu flytj­ast á Sauð­ár­krók á næstu mán­uðum ásamt fjöl­skyldum sínum en einn starfs­maður býr þar nú þegar.

[adspot]

Forvarnafulltrúi og sérfræðingar í brunavörnum og slökkvistarfi ráðnir

Í stöðu for­varna­full­trúa bruna­varna­sviðs­ins hefur verið ráðin Eyrún Vikt­ors­dóttir. Hún starf­aði áður sem lög­fræð­ingur og verk­efna­stjóri við­skipta­þró­unar hjá Arctic Fish og sem lög­fræð­ingur hjá Dattaca Labs sem sér­fræð­ingur í per­sónu­vernd. Hún er lög­fræð­ingur frá Háskól­anum í Reykja­vík og í til­kynn­ingu segir að í störfum Eyrúnar hafi hún komið að almanna­tengslum, kynn­ingar- og fræðslu­málum og greina­skrifum.

Þeir Ásgrímur Sveins­son og Grétar Þór Þor­steins­son hafa verið ráðnir sem sér­fræð­ingar í bruna­vörnum. Ásgrímur er að ljúka meist­ara­prófi í verk­fræði frá DTU og Grétar Þór er umhverfis- og orku­tækni­fræð­ingur og vél­virkja­meist­ari.

Þá hafa þeir Stefán Árnason og Þorlákur Snær Helgason verið ráðnir sem sér­fræð­ingar í slökkvi­starfi. Stefán er mennt­aður slökkvi­liðs- og sjúkra­flutn­ings­maður, er með meistara­gráðu í stjórnun og stefnu­mótun og B.Sc. gráður í líf­fræði. Þorlákur Snær er einnig mennt­aður slökkvi­liðs- og sjúkra­flutn­inga­maður.


Nýtt svið tvöfalt stærra en það gamla

Í til­kynn­ing­unni segir að nýtt bruna­varna­svið verði tvö­falt stærra en það gamla. „Hlutverk hins nýstofn­aða bruna­varna­sviðs verður að stýra og stór­efla bruna­varnir á vegum rík­is­valds­ins. Fjórir starfs­menn sinna nú þessum mála­flokki sér­stak­lega hjá HMS í deild bruna­varna í Reykja­vík. Tveir starfs­menn deild­ar­innar hafa þegið störf á nýju sviði öryggis mann­virkja hjá HMS og munu þeir starfa áfram hjá HMS í Reykja­vík. Sex starfs­menn munu hefja störf á bruna­varna­sviði á Sauð­ár­króki í haust og gert er ráð fyrir að átta starfs­menn muni sinna þessum verk­efnum á Sauð­ár­króki þegar sviðið verður full mannað á næstu mán­uðum,“ segir í til­kynn­ing­unni.

Í til­kynn­ing­unni segir að ljóst sé að breyt­ingin muni hafa „umtals­verð og jákvæð áhrif á íbúa­fjölda og mann­lífið í Skaga­firði.“ Það sé ánægju­legt að með breyt­ing­unni hafi skap­ast atvinnu­tæki­færi sem geri ungum fjöl­skyldum mögu­legt að snúa til starfa í sinni gömlu heima­byggð þar sem þau ólust upp segir þar enn fremur.

Líkt og áður segir munu tveir starfs­menn sem nú starfa í deild bruna­varna í Reykja­vík ekki flytja til Sauð­ár­króks og hafa þeir þegið störf í öðrum deildum HMS. Tveir starfs­menn sem starfað hafa í deild bruna­varna hafa sagt upp störfum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár