Alvarlegt mál þegar kjarabarátta fer í að tala niður öryggi

ISAVIA þver­tekur fyrir að flug­ör­yggi á Íslandi sé ógnað. Alþjóða­sam­tök flug­um­ferð­ar­stjóra lýstu yfir áhyggjum af örygg­is­málum vegna mann­eklu í stétt­inni. ISAVIA segir alvar­legt þegar kjara­bar­átta fari í að tala niður öryggi.

Isavia full­yrðir að öryggi við flug­um­ferð­ar­stjórn á Íslandi sé ekki ógnað. Það segir fyr­ir­tækið að til­efni yfir­lýs­ingar Alþjóða­sam­taka flug­um­ferð­ar­stjóra, IFATCA, um miklar áhyggjur af flug­ör­yggi hér á landi vegna mann­eklu í stétt­inni. Eins og kunn­ugt er hafa flug­um­ferð­ar­stjórar verið í mik­illi kjara­bar­áttu und­an­farið sem hefur orðið til tölu­verðrar skerð­ingar á sam­göngum.

Minni þjónusta vegna undirmönnunar

Guðni Sig­urðs­son, upp­lýs­inga­full­trúi Isavia, segir í skrif­legu svari til Kjarnans að þegar erfitt hafi reynst að full­manna vaktir í flug­turnum og flug­stjórn­ar­mið­stöð hafi við­bragðs­á­ætlun vegna minni mönn­unar verið sett í gang.

„Við­bragðs­á­ætlun vegna minni mönn­unar gengur þannig fyrir sig að ef færri eru á vakt­inni þá er álag minnkað með því að minnka þjón­ustu,“ segir Guðni. „Það hefur ekki farið fram­hjá lands­mönnum að þjón­usta hefur oft verið minnkuð tölu­vert á flug­völlum lands­ins og það hefur ekki heldur farið fram­hjá flug­fé­lögum sem fljúga um íslenska flug­stjórn­ar­svæðið og þurft hafa að taka á sig sveig fram­hjá íslenska flug­stjórn­ar­svæð­inu með til­heyr­andi auk­inni elds­neyt­is­notkun, til þess að hægt væri að minnka álag um íslenska flug­stjórn­ar­svæðið.“

Alvarlegt að kjarabarátta tali niður öryggi

Hann segir við­bragðs­á­ætlun Isavia almenna og í sam­ræmi við alþjóða­lög og reglu­gerðir og hafi verið sam­þykkt af eft­ir­lits­stofn­unum.

„IFATCA eru sam­tök sem Félag íslenskra flug­um­ferð­ar­stjóra er aðili að og eru sam­tökin með þessu að taka þátt í kjara­bar­áttu flug­um­ferð­ar­stjóra. Það er alvar­legt mál þegar kjara­bar­átta fer á það stig að tala niður öryggi, sem er það mik­il­væg­asta þegar kemur að flugi,“ segir Guðni.

Vita af manneklu

Isavia viti þó af þeirri mann­eklu sem sé í röðum flug­um­ferð­ar­stjóra. Tvær meg­in­or­sakir séu fyrir henni, ann­ars vegar hafi aukn­ing á flugi verið gríð­ar­lega hröð og hrað­ari en nokkrar spár gerðu ráð fyrir.

„Hins vegar er það vegna þess að þó nokkuð margir úr stórum hópi nema í flug­um­ferð­ar­stjórn náðu ekki að klára námið og datt því stór hluti eins árgangs út. Nú eru yfir 30 nemar í þjálfun og munu þeir sem klára þá þjálfun bæt­ast í hóp flug­um­ferð­ar­stjóra á næstu 12 til 18,“ segir hann. „Vegna yfir­vinnu­banns sem var hluti af verk­falls­að­gerðum flug­um­ferð­ar­stjóra hefur námið þó taf­ist eitt­hvað, til dæmis hefðu nokkrir nem­anna nú þegar verið búnir að hefja störf sem flug­um­ferð­ar­stjórar ef bannið hefði ekki verið sett á.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár