Borgaryfirvöld þurfi að læra á göngugötur ekki síður en íbúar

Borg­ar­full­trúi Sam­fylk­ingar og full­trúi í umhverfis- og skipu­lags­ráði seg­ist ætla láta skoða hvað sé hægt að gera í aðgeng­is­málum íbúa við göngu­götur. Hann var nýlega gagn­rýndur í aðsendri grein fyrir að segja að fólk þyrfti „bara að læra á“ göngu­götur.

Borg­ar­yf­ir­völd þurfa jafnt sem íbúar að læra inn á göngu­götur enda geta álita­mál vegna þeirra reglu­lega komið upp. Þetta segir Hjálmar Sveins­son, borg­ar­full­trúi Sam­fylk­ingar og full­trúi um umhverfis- og skipu­lags­ráði Reykja­víkur. Kjarninn leit­aði við­bragða Hjálmars við aðsendri grein sem nýlega var birt í Kjarn­anum og ber heitið Lærðu á þetta.

Í grein­inni segir Guðrún Pét­urs­dóttir frá vin­konu sinni sem á erfitt með gang og býr við götu í Reykja­vík sem nýlega var gerð að göngu­götu. Konan reiðir sig því á vini og ætt­ingja til að ferja sig á milli staða en Guðrún gagn­rýnir í grein­inni að aðstand­endur kon­unnar geti ekki með góðu móti kom­ist að húsi hennar á bíl. „Það verður að vera hægt að sækja sjúk­ling sem á heima við göngu­götu. Ef það gengur ekki verðum við að kalla til sjúkra­bíl í hvert sinn sem vin­kona mín þarf að fara milli staða,“ ritar Guðrún meðal ann­ars í grein­inni.

„Læra hvað, Hjálm­ar?“

Guðrún gerir útvarps­þátt­inn Flakk með Lísu Páls­dóttur að umtals­efni í grein sinni og vitnar til orða Hjálmars sem hann lét falla í þætt­inum þegar göngu­götur bar á góma. Guðrún ritar: „Þess vegna hjó ég í við­brögð Hjálm­ars við athuga­semd Lísu, um að það kunni að koma íbúum illa að bannað sé að aka um göngu­götur og þungar sektir liggi við því að aka eða leggja í göngu­götu. Hvað ef það vantar pípara með þungan bún­að, sem hann getur ekki borið langa leið? Hvað með ömmu gömlu sem á að bjóða í mat, en getur ekki gengið spöl­inn að bíln­um? Leigu­bílar fást ekki til að aka inn í göngu­göt­ur, því þeir eiga háar sektir yfir höfði sér. Þetta hlýtur að vera íþyngj­andi fyrir íbú­ana, sagði Lísa. Hjálmar Sveins­son hafði engar áhyggjur af þessu: Það hafa verið göngu­götur í öðrum löndum í ára­tugi. Fólk verður bara að læra á þetta.“

Í kjöl­farið beinir hún spurn­ingu til Hjálmars: „Læra hvað, Hjálm­ar?“

Þurfi að læra hvernig hægt sé að bregðast við álitamálum

„Þegar ég var í þessu við­tali endur fyrir löngu við hana Lísu og var að tala um að fólk þyrfti að læra inn á þetta þá átti ég nátt­úr­lega við að ekki bara þeir sem eiga versl­anir og íbúðir á göngu­götum þyrftu að gera það heldur líka borg­ar­yf­ir­völd. Það geta alltaf komið upp álita­mál eins og þessi dæmi­saga Guðrúnar lýsir,“ segir Hjálmar í sam­tali við Kjarnann. [links]

Hjálmar bendir á að stæði fyrir hreyfi­haml­aða séu við gatna­mót Lauga­vegar og þvergatna og segir að alltaf hafi verið lögð áhersla á að stutt sé í næsta stæði fyrir hreyfi­haml­aða allan þann tíma sem Lauga­vegur hefur verið göngu­gata.

„Varðandi svona ein­stök til­vik er ég kannski ekki með ein­hverjar lausnir á reiðum höndum en það er eitt af því sem við þurfum öll að læra, hvernig sé hægt að bregð­ast við svona til­vikum,“ segir Hjálmar.

Mun biðja um að þetta verði skoðað

Spurður að því hvernig hann ætli að bregð­ast við segir Hjálmar: „Ég ætla að biðja um að það verði athugað hvað er hægt að gera í til­vikum sem þessum. Ég hef ekki svörin við því en það eru þarna okkar ágætu borg­ar­hönn­uðir og svo þau sem sjá um umferð­ar­málin. Ég ætla að biðja um það að þetta verði skoðað.“

Aðspurður seg­ist Hjálmar ekki hafa hugsað út í það að hafa sam­band við Guðrúnu eða vin­konu hennar en bætir við: „Ég er alveg til í að hafa sam­band við Guðrúnu, það er kannski ágætis hug­mynd að gera það. Hún er mjög óánægð með þetta og ég er alveg sam­mála því að það þarf að skoða þetta.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár