Smit í öllum landshlutum nema á Austurlandi

Tólf af þeim þrettán sem greindust með COVID-19 í gær voru ekki í sótt­kví. Almanna­varnir hafa fengið margar ábend­ingar um að fólk sé ekki að fylgja tveggja metra reglu.

Víðir, Þórólfur og Alma á 92. upplýsingafundi almannavarnadeildar ríkislögreglustjóra og embættis landlæknis sem haldinn var fyrr í dag.
Víðir, Þórólfur og Alma á 92. upp­lýs­inga­fundi almanna­varna­deildar rík­is­lög­reglu­stjóra og emb­ættis land­læknis sem hald­inn var fyrr í dag. Mynd: Lögreglan

Af þeim þrettán sem greindust í gær voru tólf ekki í sótt­kví. Þetta kom fram í máli Þórólfs Guðna­sonar á upp­lýs­inga­fundi almanna­varna í dag. Þetta þýðir að síðan 30 ágúst hafa fjórir af þeim 31 sem greinst hafa verið í sótt­kví.

Tveir af þeim ein­stak­lingum sem greindust í gær voru á Norð­ur­landi en hinir ell­efu voru á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Í land­inu eru 72 virk smit og eru smit í öllum lands­hlutum nema á Aust­ur­landi. Það er áhyggju­efni að smitin séu dreifð að mati Þórólfs, það gæti bent til þess að dreif­ing veirunnar sé meiri en áður var talið. Næstu dagar muni skera úr um það hversu mikil dreif­ingin er en það tekur um eina til tvær vikur að sjá árangur af þeim hertu aðgerðum sem gripið var til á föstu­dag.

Fólk ekki að virða tveggja metra regluna

Almanna­varnir hafa fengið margar ábend­ingar um að fólk sé ekki að virða tveggja metra regl­una, til að mynda í versl­unum, kvik­mynda­húsum, á sund­stöðum og veit­inga­húsum svo dæmi séu tekin. Alma vildi því brýna fyrir fólki að fylgja fyr­ir­mælum. „Það er gríð­ar­lega mik­il­vægt að virða alla þessa þætti nú. Við viljum ná utan um þessi smit þannig að við verðum ekki í verri stöðu um miðjan ágúst þegar svo margt er að fara í gang, meðal ann­ars skólar,“ sagði Alma.

„Við höfum alltaf sagt að það er margt sem við vitum ekki. En við vitum þó að það sem skiptir máli það er ekki að regl­urnar séu nógu harðar. Heldur að þær séu þannig að fólk virði þær og fari eftir þeim. Og það er úti í sam­fé­lag­inu sem að smit­varnir eiga sér stað, það er ekki á skrif­stofum okkar,“ bætti Alma við eftir að hafa minnt á að veiran er til alls lík­leg líkt og dæmin sanna í öðrum löndum.

Íslensk erfðagreining skimar á Akranesi

Í skimunum Íslenskrar erfða­grein­ingar hafa tveir greinst jákvæðir af þeim 2.500 sem hafa farið í skimun hjá ÍE. Þórólfur sagði það benda til þess að smit sé ekki útbreitt en ÍE mun halda áfram að skima og skimar nú á Akranesi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár