Jón Óttar: Skilaboðin endurspegla „dómgreindarbrest af minni hálfu“

Fyrr­ver­andi rann­sókn­ar­lög­reglu­maður segir að Samherji hafi ekki haft vit­neskju um skila­boð sem hann sendi til Helga Seljan. Honum finnst miður að hátt­semi hans sé bendluð við fyr­ir­tækið. „Hún er alfarið á mína ábyrgð.“

Jón Óttar Ólafsson
Jón Óttar Ólafsson

Jón Óttar Ólafsson segir að það hafi verið rangt af sér að senda Helga Seljan, blaða­manni hjá RÚV, SMS-skila­boð. Þau end­ur­spegli dóm­greind­ar­brest af hans hálfu og hann seg­ist sjá mikið eftir að hafa sent þau. Jóni Óttari finnst miður ef þessi gagn­rýni­verða hátt­semi hans verði á ein­hvern hátt bendluð við Samherja „og starfs­fólk þess því hún er alfarið á mína ábyrgð“.

Þetta kemur fram í yfir­lýs­ingu sem hann hefur sent Kjarn­anum vegna umfjöll­unar sem birt­ist fyrr í dag.

Í umfjöll­un­inni var greint frá því að Jón Óttar, sem starfað hefur fyrir Samherja og er fyrr­ver­andi rann­sókn­ar­lög­reglu­maður, hafi allt frá því að umfjöllun Kveiks og Stund­ar­innar um við­skipta­hætti Samherja í Namibíu birt­ist þann 12. nóv­em­ber á síð­asta ári verið tíður gestur á Kaffi­fé­lag­inu, kaffi­húsi í miðbæ Reykja­víkur, einatt til að hitta á og ná tali af Helga Seljan – en þar hitt­ist hópur fólks iðu­lega á morgn­ana til að spjalla um dag­inn og veg­inn.

[adspot]Kjarninn greindi enn fremur frá því að Jón Óttar hafi ítrekað sent Helga skila­boð, bæði í gegnum SMS og Facebook-reikn­ing eig­in­konu sinnar. Ingi Freyr Vil­hjálms­son, blaða­maður á Stund­inni sem fjallað hefur um Samherja, fékk einnig send skila­boð þar sem honum var hótað „umfjöllun“.

Í yfir­lýs­ingu Jóns Óttars segir hann:

„Vefritið Kjarninn fjallar í dag um SMS-skila­boð sem ég sendi Helga Seljan, frétta­manni hjá Rík­is­út­varp­inu. Það var rangt af mér að senda umrædd skila­boð, þau end­ur­spegla dóm­greind­ar­brest af minni hálfu og ég sé mikið eftir því að hafa sent þau. Ég vil nota þetta tæki­færi til þess að biðja Helga Seljan afsök­unar á þessum send­ingum.

[links]Án þess að ég vilji reyna að rétt­læta skila­boðin og efni þeirra finnst mér mik­il­vægt að fram komi að ég hef und­an­farið verið undir miklu álagi. Einkum vegna nei­kvæðrar umfjöll­unar í fjöl­miðlum um mig per­sónu­lega. Nær öll skila­boðin voru send fyrr í þessum mán­uði þegar umrædd fjöl­miðlaum­fjöllun var hvað mest áber­andi með til­heyr­andi óþæg­indum fyrir mig og fjöl­skyldu mína.

Þá finnst mér rétt að und­ir­strika að heim­sóknir mínar á kaffi­húsið Kaffi­fé­lagið við Skóla­vörðu­stíg voru ekki til þess að elta Helga Seljan, eins og kemur fram í umfjöllun Kjarnans, enda hef ég verið við­skipta­vinur kaffi­húss­ins í mörg ár. Hafa heim­sóknir mínar þangað ekk­ert með Helga að gera og er því umfjöllun Kjarnans röng hvað þetta snertir. Ég get hins vegar ekki stýrt því hvernig Helgi Seljan upp­lifir sam­skipti okkar í gegnum árin.

Eins og greint hefur verið frá í fjöl­miðlum hef ég sinnt ráð­gjöf fyrir Samherja hf. sem verk­taki. Tekið skal fram að stjórn­endur félags­ins höfðu ekki vit­neskju um skila­boð mín til Helga. Mér finnst miður ef þessi gagn­rýni­verða hátt­semi mín verði á ein­hvern hátt bendluð við félagið og starfs­fólk þess því hún er alfarið á mína ábyrgð.“

Hægt er að lesa umfjöllun Kjarnans um áreiti Jóns Óttars hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Samherjamálið

FréttirSamherjamálið

Hlut­hafar Samherja taka út millj­arð í arð eftir upp­skipt­ingu félags­ins

Veru­legar breyt­ingar voru gerðar á upp­bygg­ingu útgerð­ar­ris­ans Samherja í fyrra þegar fjár­fest­ing­ar­starf­semin var aðskilin frá útgerð­ar­rekstri með stofnun eign­ar­halds­fé­lags­ins Látra­fjalla ehf. Líklegt er að eig­endur Samherja ætli sér einnig að færa útgerð­ar­fé­lagið inn í eign­ar­halds­fé­lagið Látra­fjöll en skatta­legar ástæður geta legið þar að baki.
FréttirSamherjamálið

Almenn­ings­hluta­fé­lag í stórri eigu Samherja kaupir í sölu­fyr­ir­tæki Samherja

Þor­steinn Már Bald­vins­son, for­stjóri Samherja og stjórn­ar­for­maður Síld­ar­vinnsl­unnar, vék sæti þegar almenn­ings­hluta­fé­lagið ákvað að kaupa hluta­bréf í sölu­fyr­ir­tæki Samherja af útgerð­inni. Síld­ar­vinnslan ákvað einnig að kaupa hluta­bréf af fyr­ir­tæki í eigu Þor­steins Más og Krist­jáns Vil­helms­sonar fyrir rúm­lega 2 millj­arða króna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár