Bob Dylan hlýtur Nóbelsverðlaun í bókmenntum

Banda­ríski tón­list­ar­mað­ur­inn Bob Dylan hlýtur bók­mennta­verð­laun Nóbels árið 2016. Þetta var til­kynnt fyrir skömmu. Hinn 75 ára gamli Dylan hlýtur verð­launin fyrir að hafa skapað nýja ljóð­ræna tján­ingu innan banda­rískrar tón­list­ar­hefðar.

Sara Danils hjá sænsku Nóbels­nefnd­inni til­kynnti um verð­launa­hafann og sagði Dylan hafa verið að í 54 ár og á þeim tíma sé hann sífellt að gera nýja hluti. Mögulega komi valið ein­hverjum á óvart, en ef litið er langt til for­tíðar þá hafi Homer og Sappho skrifað ljóð­ræna texta fyrir fimm þús­und árum síðan, og þeir textar hafi verið ætl­aðir til flutn­ings. Sömu sögu sé að segja með Bob Dylan.

Venju­lega er það svo að Nóbels­verð­launin í bók­menntum séu veitt í sömu viku og önnur Nóbels­verð­laun, en svo var ekki í þetta skipti. Miklar vanga­veltur hafa verið uppi um að ástæðan sé ágrein­ingur innan nefnd­ar­innar sem velur verð­launa­hafa, en þessu hefur nefndin reyndar vísað á bug, þótt sænskir fjöl­miðlar hafi gefið lítið fyrir það.

Í morgun var keníski rit­höf­und­ur­inn Ngugi wa Thiong’o tal­inn lík­leg­astur til að hreppa verð­launin af veð­mála­fyr­ir­tæk­inu Lad­brokes, og þar á eftir hinn jap­anski Haruki Murakami og sýr­lenska skáldið Adonis.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár