Ekki spurning um stól heldur aðferð

„Meiri hetjan hún Katrín Jak­obs­dóttir,“ skrifar Svandís Svav­ars­dóttir á Facebook.

Svandís Svavarsdóttir (lengst til hægri) stendur fast að baki Katrínu Jakobsdóttur (fyrir miðju) í stjórnarmyndunarviðræðum við Sjálfstæðisflokkinn og Framsóknarflokkinn.
Svandís Svav­ars­dóttir (lengst til hægri) stendur fast að baki Katrínu Jak­obs­dóttur (fyrir miðju) í stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræðum við Sjálf­stæð­is­flokk­inn og Fram­sókn­ar­flokk­inn. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Svandís Svav­ars­dóttir, þing­kona Vinstri grænna, hrósar Katrínu Jak­obs­dóttur, for­manni flokks­ins, í hástert í færslu á Facebook-síðu sinni í dag. Hún segir að það yrði stór­kos­legt tæki­færi fyrir þjóð­ina „ef það tekst að ganga frá mál­efnum þannig að hún geti orðið for­sæt­is­ráð­herra lands­ins.“

[links]„Það er ekki spurn­ing um stól heldur aðferð, við­horf og nýja nálgun. Traustið hrundi fyrir efna­hags­hrunið og hefur ekki tek­ist að end­ur­reisa það. Með nýjum vinnu­brögðum og end­ur­reisn inn­við­anna þá gæti það tek­ist,“ skrifar Svandís enn­fremur.

Katrín var við­mæl­andi Gísla Marteins Bald­urs­sonar í þætt­inum Vikunni á RÚV í gær­kvöldi og í Viku­lok­unum á Rás 1 í morgun. Katrín ræddi þar stöð­una í stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræðum Vinstri grænna, Sjálf­stæð­is­flokks­ins og Fram­sókn­ar­flokks­ins. Í dag er hlé á við­ræð­unum.

„Það þarf að gefa henni og VG tæki­færi til að mynda rík­is­stjórn - mál­efnaum­ræðan er ekki komin á enda og það er ekk­ert búið fyrr en allt er búið,“ skrifar Svandís sem biðl­aði á dög­unum til sam­flokks­manna sinna að yfir­gefa ekki flokk­inn vegna stjór­ar­mynd­un­ar­við­ræðn­anna fyrr en mál­efna­samn­ingur lægi fyrir og hægt væri að taka efn­is­lega afstöðu til máls­ins.

„En þjóðin sér Katrínu í for­ystu­hlut­verki. Hún hefur bent á að hags­munir þjóð­ar­innar skipti öllu - þröngir flokks­hags­munir mega ekki ráða för. Við kusum hana aftur til for­mennsku í VG fyrir nokkrum vikum og til að hún nái að skila verk­efnum af sér þurfum við að veita henni stuðn­ing. Þannig stöndum við reyndar ekki aðeins með henni heldur líka með sjálfum okkar sem kusum hana í verkin.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2017

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár