Lögreglu ekki tilkynnt um innbrot í tölvu Sigmundar Davíðs

Rík­is­lög­reglu­stjóra hefur ekki verið til­kynnt um inn­brot í tölvu Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra. Þetta kemur fram í svari rík­is­lög­reglu­stjóra til Vísis.

Sig­mundur Davíð hélt því fram í ræðu á mið­stjórn­ar­fundi Fram­sókn­ar­flokks­ins um helg­ina að brot­ist hafi verið inn í tölvu hans, og hann hafi látið skoða það. Brot gegn stjórn­skipan rík­is­ins og æðstu stjórn­völdum þess heyrir undir grein­ing­ar­deild rík­is­lög­reglu­stjóra. Ekki hefur verið til­kynnt um neitt inn­brot í tölvu Sig­mundar Davíðs, sam­kvæmt svari þaðan.

Sig­mundur Davíð dró þó í land við eft­ir­grennslan Kjarnans um helg­ina, og sagði þá að reynt hefði verið að brjót­ast inn í tölvu hans.

Sigurður Már Jónsson, upp­lýs­inga­full­trúi rík­is­stjórn­ar­innar, sagð­ist í sam­tali við Kjarnann í morgun ekki þekkja málið. Mál af þessu tagi væru á for­ræði rekstr­ar­fé­lags stjórn­ar­ráðs­ins og rík­is­lög­reglu­stjóra og hann vís­aði á rekstr­ar­fé­lagið.

Rekstr­ar­fé­lag stjórn­ar­ráðs­ins hefur ekki svarað fyr­ir­spurn Kjarnans um málið, en þar var meðal ann­ars spurt hvort rétt væri að brot­ist hafi verið inn í tölvu Sig­mundar Davíðs, hver við­brögðin við inn­broti í tölvu for­sæt­is­ráð­herra væru og hvort lög­reglu hefði verið gert við­vart um málið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár